| Tinna mætti eldhress í morgunn að garfast í skjalasafninu að vanda. Hún er að taka saman umfjallanir um starfsemi Nýló í dagblöðum landans frá 9. og 10. áratugnum. Það gengur frekar hægt og líður eins og hún sé föst í tíma. Svo er bumban að stækka svo um munar. Dísa hjálpaði henni mikið að dobbultjékka upplýsingarnar sem fundust á gagnaveitum og sjá hvort eitthvað fyndist nú þegar um viðburðina sem skutu upp kollinum. Andrea var í fríi í dag og var heima að pakka búslóðinni sinni. Hún ætlar að flytja í nýuppgerða glæsivillu sína í Garðabænum um helgina. Villan ku vera spitting image af D-Salnum í Hafnarhúsinu. Grá og brúntóna með olíubrák, muskulytkandi og sækadelik. Nett eins og Coco Chanel á sýru. Mjög spennandi. Hún ætlar að vera með ilmvatns og fataframleiðslu í kjallarnum. Elín var líka í fríi. Hún er ekki að flytja heldur að lesa undir próf. Huginn kom eftir hádegi, hringdi í Helga listaverkaflutningamann um flutning á verkum eftir sig og Díter Rót á sýningu í Melbourne með Franz Graf og tók saman lista yfir bókverk í eigu safnsins frá Kidda Gúmm. Hann kom við á laugardaginn var og bað um lista svo hann gæti séð hverju hann gæti bætt við í eignina. Nína fór mjög mikinn í dag, var inn og út. Td hringdi Kastljósið og vildi fá í settið með Snorra í uppgjör útaf inngripi Landsbankans inní opnunarhátíð Klinksins um árið. Nína neitaði því. Ási náði þó skottið á henni og fóru þau yfir málin fyrir útgáfupartíið hans á fimmtudaginn. Það verður rosa góð stemming og hefur Pepsi, öðru nafni Dj Musician bæst í hópinn en hann ætlar að spila ýmis remix eftir sjálfan sig af uppáhalds lögum Díönu Prinsessu. Svo verður kaffi og hvítvín. Engar snittur, en Andrea hafði vonast til í leyni að skella í nokkrar brauðtertur með Halla Jóns, Jóni Atla Hairdoctor og Dj Margeir. Það verður kannski gert fyrir ammæli Nýlistasafnsins sem frestaðist á dögunum. Halli kom við seinni partinn og kíkti á bókverkasýninguna og þreifaði á nokkru góðum bókum í Útúrdúr. Spjallaði við Huginn um stöðu Listaháskólans, brottfall úr námi, rómantískar sýnir nemenda um hvaðan hugmyndir koma og nauðsynin á að verbalísera þau. | |