|
Karlotta hefur opnað mjög snemma seinustu daga en ekki í dag. Unnar var fyrstur eftir að hafa ekki getað sofið vegna martraða. Unnar var búinn að róa sig niður um 10 leytið þegar liðið rúllaði inn en var frekar uppstökkur fram eftir degi sem náði hámarki á ritstjórnarfundi um þrjú leytið. Unnar getur ekki setið fundi lengur og stífnar allur upp. Birta þurfti að nudda Unnar smá eftir fundinn og var hann sendur í brotsjóinn í Gróttu með Ása og Karlottu. Fundur var annars afar gjöfull. Ákveðið var að vinna betur í skrá yfir viðburði Nýló, farið var yfir greinar úr dagblöðum til þýðingar, rædd um ýmissa viðauka, tjékkað á Shaunu til að þýða og Karlotta og Nína ætla að fara yfir partímyndirnar sem Birta ætlar að skanna eins og eldurinn í sumar. Í hádeginu var kveðjupartí fyrir Lizzie Lærling en snýr hún aftur til Connecticut til vinnu í Safnasafninu þar. Karlotta keypti sushi og var alveg heilluð af bleikum og súrsuðum næpum sem fylgdu með. Nína keypti rice krispies köku í eftirrétt (í forrétt fyrir sig) og var sannkölluð sumargleði í Hangsinu. Dísa, Elín, Halblaub, Yvonne og Lizzie héldu svo áfram að vinna í þrívíðuverkunum sem tekin voru út í gær. Græni Pallurinn er nú sneisafullur af verkum og hefur salurinn breyst í rosa fabrikku eftir tilfæringarnar í gær. Í dag fóru þær td yfir Earthquake, Growing sculpture eftir Guðrúnu Þorkels, pisspottinn hans Ása frá 2002 og H20 eftir Óla Lár. Unnar leitaði mikið að samnefndum katalóg og ýmsu bréfsefni tengdu sýningunni. Unnar var viss um að verkið var gert í tilefni þeirrar sýningar. Skráningin er kominn langt fram úr áætlun og eru nú 900 verk í eigu safnsins fullskráð. Ekkert heyrist í Andreu við saumastörfin sín en nú styttist óðfluga í opnun Tískutvíæringsins. Huginn skyldi ekkert afhverju lítið væri fjallað um hann í íslenskum fjölmiðlum. Majonessa von Hamborg sendi boðsmiða á frumsýningu óperu eftir Certih Wyn Evans og Florian Hecker í Feneyjum og ætlar Birta sð skella sér fyrir Nýló hönd. Birta mun heldur betur skanna svæðið, fara um eins og sinubruni. Aðrir stjórnarmeðlimir eru frekar óhressir með að komast ekki sjálfir. Nína er bomm og busy, Huginn á engann pening (þó hann eigi boðsmiða á bíennalinn fyrir tvo) og ekki Karlotta heldur, Andrea hefur öðrum bíennölum að hneppa, Tinna með báðar hendur fullar en Unnari finnst þetta ekkert skemmtilegt. |
|