| Frekar gestkvæmt hefur verið á safninu í dag. Erla Þórarins kom og sótti nokkur verk og sagði frá Steingrími Sig og æfintýrum hans og Ljóni Norðursins. Þær Elín ræddu líka sameinginleg ættmenni sín en báðar eru af mjög langlífum glæsikonum komnar. Erla kom hjólandi en hringdi eftir leigubíl undir verkin eins og alminnilegt fólk. Svo hringdi Hreinn og spjallaði um hitt og þetta við Karlottu og lofaði að skipta út módeli fyrir verk þegar hann kemur í ágúst. Þá verður aldeilis kaffi og með því. Rúnar draumamaskína kom og leit á tækin fyrir morgundaginn, hann býst við miklum skynvilluhrifum hjá gestum, það gæti jafnvel einhver endað alsber upp í hillu án þess að vita af því. Siggi kom við að prenta út, fann heyrnatólin sín og skrúfaði fyrir vatnið í krananum inná baði. Rannver hjá ríkinu vill bítta við nýló á tímaritum og er Karlotta að telja saman tölublöðin. Sænski strákurinn sem kom seint í gær og hitti fyrir Birtu, kom aftur og hélt ennþá að Nýló væri SÍM resídensí. Hann hafði komið beint úr flugvélinni á Nýló og spurt hvar hann ætti að sofa. Birta sendi hann í SÍMvortexið. Huginn skondraði við og spjallaði við Karlottu í blíðunni undir veggnum þar til Alex týnda hrossið gekk framhjá að leita að bás fyrir multinational listamenn með styrk frá Sameinuðu þjóðunum. Snorri og Mundi komu með plaköt og pr og má búast við múgæsingi um helgina, allir bestu eru búnir að skrá sig á námskeiðið. Túristarnir hafa líka streymt inn og heilmikil umsvif hafa verið í Útúrdúr í dag, Karlotta eflaust búin að rugla eitthvað í bókhaldinu þar en halaði um leið inn nokkrum þúsundköllum. Yrsa og Birta verða svo með kolólöglegt bíó og með því í kvöld. | |