Ársfundur Félags Nýlistasafnins var haldinn 5. maí 2011 kl. 19.00.

Ný stjórn var kjörin

Aðalstjórn
Gunnhildur Hauksdóttir, formaður
Bjarki Bragason, ritari
Guðni Gunnarsson
Hjalti Þorkelsson
Indíana Auðunsdóttir

Varastjórn

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Gunnar Helgi Guðjónsson
Tinna Guðmundsstjóri

STARFSMENN SAFNSINS 2011
Gunnhildur Hauksdóttir, safnstjóri
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri


Hér fyrir neðan má lesa skýrslu fráfarandi stjórnar:

Skýrsla stjórnar Nýlistasafnsins - Aðalfundur 2011

Skýrsla tímabilsins 14. október 2010 til 5. maí 2011

Stjórn safnsin 2010-2011
Birta Guðjónsdóttir, formaður, til 1 árs
Gunnhildur Hauksdóttir, varaformaður, til 1 árs
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, gjaldkeri, til 2 ára
Guðni Gunnarsson, ritari, til 2 ára
Páll Haukur Björnsson, stjórnarmeðlimur, til 1 árs, sem sagði sig úr stjórn nýlega, en Þorgerður Ólafsdóttir steig inn sem varamaður, í hans stað.

Tinna Guðmundsdóttir, varamaður í stjórn
Þorgerður Ólafsdóttir, varamaður í stjórn
Sigrún Jenny Barðadóttir, varamaður í stjórn

STARFSMENN SAFNSINS 2010-2011

-Birta Guðjónsdóttir, formaður stjórnar, 70% staða
-Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri, 60% staða

STARFSMENN Í SÉRSTÖKUM VERKEFNUM
-Gunnhildur Hauksdóttir vann við þróun og heimildaöflun í Arkíf um Listamannarekin rými. Hún vann við heimildasafn safnsins um listamannarekin sýningarými til 6 mánaða og lauk hennar vinnutímabili í desember 2010.
-Hildur Rut Halblaub listfræðinemi vann við skráningu safneignar, verkaláns-umsýslu og forvörsluverkefni og lýkur hennar vinnutímabili í lok maí 2011.

FÉLAGSMENN
Félagsmenn eru nú 308 talsins.
18 gengu í félagið frá síðasta aðalfundi.

STJÓRNARFUNDIR
Alls voru haldnir 16 stjórnarfundir frá síðasta ársfundi.

SAFNEIGN
-Hildur Rut Halblaub, sem hefur starfað í hlutastarfi við skráningu síðan skráningaverkefnið hófst árið 2008, hefur starfað við skráningu verka inn í Virtual Collection gagnagrunninn síðan í október. Hún vinnur jöfnum höndum við að bæta þar inn í og laga, og svo við forvörsluverkefni safnsins.

-Styrkir fengust frá Þjóðhátíðarsjóði og Safnasjóði til forvörslu þeirra verka safneignarinnar sem hafa orðið fyrir skemmdum í gegnum tíðina. Um er að ræða ca. 10 verk eftir Dieter Roth, ca. 20 verk eftir íslenska og erlenda listamenn og svo önnur 8 verk sem þarfnast fyrirbyggjandi forvörslu. Í verkefninu felst faglegt mat forvarða og listamanna, samantekt upplýsinga, samskipti við listamenn og aðstandendur þeirra, undirbúningur og umsýsla með vinnusvæði, efniskaupum, pökkun og skráningarviðhaldi.


KÚLUSPILSMÁLIÐ
Á síðasta ársfundi var greint frá því að Sveinn Þórhallsson, í Gallerí Nútímalist, hafi komið í safnið í umboði Magnúsar Jóhannssonar, sem áður rak Kúluna með Dieter Roth og Magnúsi Pálssyni, til að „sækja“ verkið „Kúluspil“ eftir Dieter frá 1961, sem hefur tilheyrt safneign safnsins síðan Magnús gaf það safninu árið 1994. Magnús lánaði safninu verkið fyrir sýningu á Listahátíð í Reykjavík. Þegar Níels Hafstein, þá formaður stjórnar Nýlistasafnsins, ætlaði að skila verkinu eftir sýningarlok vildi Magnús gefa safninu verkið. Verkið hefur verið í vörslu Nýlistasafnsins, skráð, sýnt og álitið sem í eigu þess í 16 ár.

Í eina af dagbókum Níelsar Hafstein frá árinu 1994 skrifar hann í tvígang um verkagjöf Magnúsar Jóhannssonar. Dagbókin er í vörslu Nýlistasafnsins ásamt öðrum dagbókum Níelsar sem formanns. Níels man glöggt eftir símtalinu við Magnús varðandi verkagjöfina.
 
Lögfræðingur Magnúsar Jóhannssonar sendi safninu bréf snemma í janúar 2011 og óskaði eftir því að safnið skilaði verkinu til hins meinta eiganda; Magnúsar Jóhannssonar.

Að ráðleggingu Ragnars Aðalsteinssonar lögfræðings skrifaði formaður ítarlegt bréf stuttu síðar til lögfræðings Magnúsar Jóhannssonar, þar sem allt ferlið er rakið; frá því beiðni um lán á verkinu barst frá Níelsi til Magnúsar. Í bréfinu er farið yfir þau rök Ragnars að hér eigi hefðarréttur við og verkið sé í réttri eigu Nýlistasafnsins.

Síðan hefur ekkert heyrst í lögfræðingi Magnúsar, Magnúsi sjálfum né Sveini Þórhallssyni varðandi umrætt listaverk.

HEIMILDASAFN OG INNRI STARFSEMI SAFNSINS
- Í byrjun febrúar hófust fundir Birtu, Gunnhildar og Hugins Þórs Arasonar með þeim 20 gjörningalistamönnum, sem þau hafa valið til þátttöku í samstarfsverkefni Nýlistasafnsins og útvarpsþáttarins Víðsjár á RÚV. Verkefnið er liður í söfnun á og miðlun heimilda um gjörninga. Frásagnir listamanna af eigin gjörningum eru teknir upp á hljóð og þeim útvarpað vikulega í Víðsjá. Sömu hljóðupptökur verða svo hluti af heimildasafni Nýlistasafnsins um gjörninga á Íslandi. Verkefnið er enn í gangi.

- Þann 14. janúar tók formaður við styrk til safnsins frá Sjóði Hlaðvarpans, vegna verkefnisins Listamannarekin sýningarými – kvennarými. Birta Guðjónsdóttir mun starfa áfram við það verkefni fram á sumar. Verkefnið hverfist um öflun, flokkun og skráningu heildar-heimilda um sýningarými sem rekin hafa verið af konum á Íslandi. Miðað er við að vinna með tveimur sagnfræðingum, sem leggja áherslu á kvennasögu, og miðla heimildunum í formi kynningar í safnrými og útgáfu bæklings.

SÝNINGAR OG VERKEFNI OPIN GESTUM Í SAFNRÝMINU
Fimm sýningar voru opnaðar í safninu á tímabilinu og nokkur fjöldi viðburða áttu sér stað;

-SJÓNÞING: UPPRIFJUN OG YFIRLIT(Bjarni H. Þórarinsson
Þann 23. október opnaði sýning á verkum Bjarna Þórarinssonar í sýningarstjórn Jóns Proppé. Bjarni sýndi ný og eldri verk. Stór hluti sýningarinnar er byggður á hljóðupptökum og vídeóupptökum af upplestri ýmissa textaverka Bjarna.

-Á Degi íslenskrar Tungu, þriðjudaginn nóvember, stóð Nýlistasafnið fyrir dagskrá þar sem flutt voru, og fjallað um, textaverk eftir Bjarna, Magnús Pálsson,(Birgi Andrésson,(Gunndísi Ýr Finnbogadóttur,(Harald Jónsson(og Sigtrygg Berg Sigmarsson.

-Á sýningartímanum voru gestum svo boðið á tvo aðra atburði; panel-umfjöllun Godds, Jóns Proppé og Bjarna H Þórarinssonar um verk Bjarna, svo og leiðsögn og spjall Bjarna og Jóns Proppé.

-TIME ME UP, Samsýning nemenda Erlings Klingenbergs í myndlistardeild Listaháskóla Íslands, sem bar titilinn „Time me up“ var opnuð þann 10. desember. Nemendurnir sýndu tímatengd verk. Sú sýning stóð yfir í þrjá daga.

-0667 0778 3195 1716((úr röðinni VÍDEÓRÍSÓM). Sýningarárið 2011 hófst á einkasýningu brasilíska listamannsins Marcellvs L, sem opnaði þann 8. janúar. Marcellvs L sýndi vídeóverk í aftara rými. Sýningin var styrkt af Goethe Institute.

-Marcus Steinweg. Í tengslum við sýningu Marcellvs L bauð safnið þýska heimspekingnum Marcus Steinweg í safnið, í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Félag áhugamanna um heimspeki.
Marcus hélt þrjá fyrirlestra í Reykjavík; fyrirlesturinn „Bjögun Staðreynda/Obscurantism of facts“ í safnrými Nýlistasafnsins, fyrirlesturinn „On Philosophy & Art“ í fyrirlestrasal Listaháskólans í Laugarnesi og fyrirlesturinn „Between Form and Formlessness (Adorno´s affirmationism)“ í stofu HT-101 (hringstofu á Háskólatorgi). Koma Marcusar Steinweg var styrkt af Goethe Institute.

-KJARVALSDEILDIN. Þann 26. febrúar var sýningin Kjarvalsdeildin opnuð. Sýnendur voru 14 talsins, 10 íslenskir og 4 erlendir.

-Listamenn sýningarinnar gerðu gjörninga á hverjum laugardegi á sýningartímanum.

-Síðasta sýningardag sýningarinnar stýrði Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, stjórnarmeðlimur og framkvæmdastjóri, listamannaspjalli um sýninguna en þátttakendur voru þau Hulda Vilhjálmsdóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson, Snorri Ásmundsson og Valgarður Bragason. Vel var mætt og sköpuðust mjög áhugaverðar umræður.

-SEQUENCES. Þann 1. apríl opnaði Sequences listahátíðin. Nýlistasafnið bauð uppá gjörninga þýska listamanna-tvíeykisins Gernot Faber og hollenska fjöllistamannsins Peter Fengler, auk vídeóverks dansk-austurríska listahópsins Signa.

-KODDU. Þann 16. apríl síðastliðinn opnaði sýningin „Koddu“ í safnrými Nýlistasafnsins og í Alliance húsinu úti á Granda. Sýningarstjórar eru Ásmundur Ásmundsson, Hannes Lárusson og Tinna Grétarsdóttir. Sýnendur eru yfir 40 talsins.

-Sýningin og pólitíkin í kringum hana hefur vakið sterk viðbrögð. Eins og félagsmenn hafa fengið sendar tilkynningar um, þá var safninu hótað málssókn, vegna höfundar- & sæmdarréttar, ef safnið yrði ekki við kröfu um að fjarlægja eitt verka sýningarinnar; „Fallegasta bók í heimi“. Stjórn óskaði þegar í stað eftir því við sýningarstjóra Koddu að þeir gengjust formlega við verkinu sem höfundar þess og undir nafni, en þeirri ósk var ekki svarað. Ljóst var að ef stjórn hefði horft framhjá kröfu Crymogea færu málaferli af stað. Stjórn Nýlistasafnsins leitaði álits hjá lögfræðingum og eftir miklar umræður og mat á aðstæðum ákvað stjórn að fjarlægja verkið.

Fráfarandi stjórn hefur ákveðið að kalla til félagsmenn og ræða þessa atburði á sérstökum félagsfundi síðar í maímánuði.

ÖNNUR STARFSEMI SAFNSINS, SAMSTARF OG NÁMSKEIÐ
-Safnið hefur, það sem af er árs, lagt mikla vinnu í að finna og skanna inn ljósmyndir og gögn fyrir Listasafn Íslands, vegna heimildaöflunar fyrir hina Íslensku Listasögu.

-Í október hófst svokallaður fleygur í myndlistardeild Listháskólans sem stýrt var af Gunnhildi Hauksdóttur varaformanni. Fleygurinn fókuseraði á arkíf Nýlistasafnsins um listamannarekin sýningarými á Íslandi, Sérstök áhersla var lögð á vinnu með alþjóðlega verkefnið Mobshop, sem Magnús Pálsson var upphafsmaður að og stýrði í upphafi 9. áratugarins. Nemendur hittu Gunnhildi í safnrýminu og í húsnæði skólans.

-Í október fór fram námskeið í hönnunardeild Listaháskólans undir stjórn Ármanns Agnarssonar, grafísks hönnuðar. Námskeiðið fókuseraði á Nýlistasafnið. Nemendum var uppálagt að hanna kynningarefni fyrir safnið og kynntu sér vel sögu þess og safneign. Tinna Guðmundsdóttir þáverandi framkvæmdastjóri safnsins var Ármanni til aðstoðar. Birta Guðjónsdóttir og Daníel Björnsson tóku þátt í heils dags yfirferð yfir verkefni nemendanna í lok námskeiðs.

-Í febrúar auglýsti safnið eftir umsóknum um þátttöku í samsýningunni Grasrót, sem verður opnuð í safninu í haust. Kristjana Rós Guðjohnsen hefur tekið að sér að stýra sýningunni og stjórn fékk þau Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur og Markús Þór Andrésson til þess að skipa valnefnd fyrir sýninguna, ásamt Kristjönu. Um 70 umsóknir bárust og völdu þau 8 myndlistarmenn af yngri kynslóðinni í sýninguna.

-Í mars dvöldu nemendur myndlistardeildar Listaháskólans heilan dag í safninu við að skoða og ræða um valin bókverk úr safneign safnsins, undir stjórn Aðalheiðar Lilju Guðmundsdóttur listheimspekings og Ingólfs Arnarssonar myndlistarmanns.

FJÁRMÁL
-Safnið fékk 4.200.000 kr. styrk frá Reykjavíkurborg, 200.000kr niðurskurður frá fyrra ári. Niðurskurður var hinsvegar um 800.000kr. af Fjárlögum frá síðasta ári, og nemur styrkur þessa árs  7.200.000 kr.

-Í ljósi þessa mikla niðurskurðar lagði formaður safnsins til við stjórn að starfshlutfall hennar yrði lækkað og þar með sparaðist safninu fé. Starfssvið formanns minnkaði þó ekki sem slíkt heldur var um að ræða launalækkun.

-Ingunn Fjóla framkvæmdastjóri mun skýra nánar frá fjármálum safnsins hér á eftir.

HÚSNÆÐISMÁL

-Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á efri hæðum byggingarinnar að Skúlagötu 28 síðan í október 2010, en þar mun KEX Hostel opna á næstu dögum.

-Mikil truflun hefur verið af þessum framkvæmdum frá því fyrir áramót, því allt inntak ramagns, vatnsleiðslna osfrv. er að finna í safnrýminu á jarðhæð.

-Truflunin hefur annarsvegar falist í miklum hávaða, viðgerðum í safnrými og því stöðugum tilfærslum, sem hafa útheimt mikið eftirlit, fundarsetu, samningagerð, trygginga-mat og bara stöðugan barningi, af hendi formanns og framkvæmdastjóra.

-Formaður fékk fellda niður leigu í einn mánuð vegna þessa óþæginda. Starfsemi safnsins var þó haldið áfram sleitulaust á tímabilinu.

-Þess má þó geta að hinir nýju leigjendur, eigendur KEX Hostels, hafa sýnt eins mikla tillitssemi og þeir hafa getað, samskiptin eru mjög góð á milli safnsins og hostelsins og munu eflaust verða góð samlegðaráhrif í húsinu, ásamt dansverkstæðinu á efstu hæð, á komandi árum.

FRAMUNDAN ERU ÞESSI VERKEFNI STAÐFEST Í SAFNINU Á ÁRINU 2011
Einkasýning sænska listamannsins Carl Boutard, Sumarsýning úr safneign; Lestur í sýningarstjórn JBK Ransú, Grasrót 2011 í sýningarstjórn Kristjönu Rósar Guðjohnsen. Ýmislegt annað er í burðarliðnum sem enn er óstaðfest, bæði varðandi tímasetningar og annað.

Lýkur hér skýrslu stjórnar fyrir tímabilið.

Kærar Þakkir fyrir hönd stjórnar,
Birta Guðjónsdóttir
formaður stjórnar Nýlistasafnsins