Nýlistasafnið Í Reykjavík

miðvikudagur, 17. mar 13:44

Tryggir lesendur dagbókar verða enn og aftur að fyrirgefa okkur skrifstífluna en hér á sjávarsíðunni er alltsaman í lukkunar velstandi.


Opnunarhátíðin með sinni pomp og prakt tókst vel og stuttu seinna opnaði fyrsta sýningin í nýju rými. Samræði við safneign þar sem stjórnin fór höndum um safneignina og valdi úr. Sú sýning er róterandi og munu bætast við hana verk á sýningartímabilinu auk þess sem eventar fléttast inní hana.


Birta og Páll Haukur hafa fengið til liðs við sig þau Kristínu Rúnarsdóttur, Etienne de France, Þorgerði Ólafsdóttur, Þorvald Jónsson, Magnús B. Hafsteinsson, Hörpu Dögg Kjartanssdóttur og Björk Viggósdóttur sem eru um þessar mundir að grúska í safneignni og þau ætla að kynna sitt val með spjalli laugardaginn 10. Apríl kl 17:00. Stjórnin er enn að grúska, Gunnhildur bæði í munnlegum heimildum og ætlar að skipta út teikningum Árna Ingólfssonar fyrir ljósmyndavek og enn er á huldu hvað kemur útúr frekara grúski en ýmislegt í burðarliðnum.


Erling kom með nemendur í byrjun mánaðar og þau settu upp í safninu upp afrakstur sex vikna í helvíti með Erling sem gjörbreytti safninu og safneignarsýningunni þannig að allt var hér á iði.


Málþing Listfræðingafélagsins verður haldið þriðjudaginn 30. Apríl í Nýló klukkan 17:00


Martha Wilson frá Franklin Furnace kemur í heimsókn og heldur hér fyrirlestur um listamannarekin rými og performansa en hún er og hefur verið leiðandi afl og frumkvöðull á því sviði. Mæli með því að kíkja nánar á hana Fyrilesturinn er 26. Apríl í Nýlistasafninu og svo aftur í Laugarnesinu daginn eftir ásamt Gunnhildi Hauksdóttur en hún ætlar að kynna starfsemi safnsins um söfnun á heimildum um listamannrekin rými á íslandi.


Hér er að lokum hellingur af myndum sem glöggir lesendur geta glöggvað sig á.
Lifið heil.

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 

 
miðvikudagur, 16. des 17:15
Dagurinn í dag var með þeim rólegri í Nýló, eiginlega bara grunsamlega rólegur, enda eru framkvæmdir í rýminu í biðstöðu sökum sílan-áburðar (gólfefna-vörn, fyrir óinnvígða), sem ekki má ganga á og fylgja óæskilegar eiturgufur, svo stjórnarmeðlimir fóru í vímu af og fabúleruðu fáránleg nöfn fyrir 30.000 ára sýningaryfirlitsbókina, sem þjóðin bíður auðvitað spennt eftir að komi út.

Útgáfa bókarinnar frestast aðeins og verður gefin út laugardaginn 20. febrúar 2010, um leið og hið nýja rými Nýlistasafnsins, að Skúlagötu 28, verður formlega opnað.

Stjórnarfundur var í gær og nokkrar mikilvægar ákvarðanir teknar í góðu geimi. Þetta lítur rífandi vel út og við erum full spennings og tilhlökkunar.

Í dag var bara rosa venjulegur dagur á forstjóraskrifstofunni á 3.hæð, kaffi þambað og mörgu praktísku komið í verk.

Erling Klingeberg kíkti við og leist vel á. Nokkrir aðrir góðir félagsmenn hafa litið við uppá síðkastið og verið ánægðir með stöðuna, s.s. Magnús Pálsson, Ingólfur Arnarson, Steingrímur Eyfjörð og Magnea Ásmundsdóttir.

Á morgun munu Birta og Gunnhildur taka til við að múra heilan vegg í aftara rýminu og búast við að massast við það.

Haukur frændi Gunnhildar mun lappa uppá glugga rýmisins á meðan. Hlustað verður á jólalög og hver veit nema boðið verði uppá smákökur, frá Frón, fyrir duglega iðnaðar-listamenn…
 
þriðjudagur, 8. des 16:11

Nú verða tryggir lesendur Dagbókarinnar að sjá aumur á okkur. Sökum flutninga og gífurlegra anna hafa öll skrif setið á hakanum. Hér hefur mikið gengið á. Nýlistasafnið er ennþá að flytja, öll starfsemin er komin niður á Skúlagötu, netsamband er komið á og símalína tengd. Hvað er hægt að biðja um meira?

Við tókum við kexverksmiðjunni Frón og hreinsuðum út úr henni risastórum ofnum, hámuðum í okkur kex og drullu, ásamt iðnaðarmönnum og örfáum en öflugum velunnurum. Nú er að komast mynd á þetta. Það er verið að gangafrá gólfi og veggjum, pússa, spúsla, splæsa, smíða, mála og dútla.

Safneignin hefur á meðan tímabundið fengið að hreiðra um sig á þriðju hæð, innpökkuð í baðmull og dún. Við hlið safneignar er fyrrverandi skrifstofa Frónforstjóra og þar hafa tölvukostur og gögn skrifstofunnar tímabundið tekið sér bólstað með andríkar umræður um framtíðna svífandi yfir vötnum.

Stefnan er að Bókin komi út 23. janúar og þá verða dyrnar á Skúlagötu opnaðar uppá gátt með guðaveigum. Það verður alltsaman nánar auglýst síðar.

 Smelltu

Gólfið - Before and after.

 Smelltu

 Flísalögn í farvatninu. Flísa uppvask.

  Smelltu

Óli hreinsar flísalím.

 Smelltu

Við vöskum upp hverja einustu flís.

 Smelltu

Líkt og værum við hermenn í refsingarvinnu. Ekki ósvipað t.a.m kartöfluskræli.

 Smelltu

Skrifstofan tímabundna en vel teppalagða.

 Smelltu

Tinna heldur utan um málin, en hver heldur utan um Tinnu.

 Smelltu

Forstjóraútsýnið, milljón dollarar.

 
fimmtudagur, 15. okt 13:45
þetta er Kristján" sagði Tinna við Kristján í símann alveg ringluð enda vinnuálagið mikið á Nýló þessa dagana. Hún og Unnar sitja öll kvöld yfir Bókinni sem mun komast í heimsfréttir innan skamms og líka í jólabókaflóðið. Á daginn er nóg að gera í flutningum og pökkun. Elín setur þetta allt í tetris og raðar eins og óð safneigninni á bretti. Gunnhildur er með alla iðnaðarmenn í vasanum með kúbein í annarri og símann í hinni.  Allir félagsmenn (sem eru í tengslum við líkama sinn) eru hvattir til að hafa samband og hjálpa til við að skúffa út kexinu og fá sér slice í leiðinni. Birta multi er á leið til New York að pikka upp stjörnur handa Nýló. Páll Haukur fylgist grannt með og greinilega með ýmislegt í pokahorninu uppúr hugleiðslunni í fenjunum. Huginn heilsar på. Karlotta brúar bil. Andrea sást baðandi út öngum á laugarveginum með seðlana gúlpandi uppúr vösunum. Christof hennar Nínu sást keyrandi með tryllingsglampa í augunum með trukkinn fullan af bleyjum. Gunnar er digital aksjón.    
 
þriðjudagur, 13. okt 11:23
Ný stjórn er tekin við. Huginn og Unnar eru forfallaðir vegna útbrota og búið að senda þá í lónið, Karlotta er haldin síþreytu og sjónauka. Nína búin að unga út litlum prinsi og nýtt nýjabrum er að taka við, nýtt og ferskt blóð farið að streyma um safnið. Og sviti, og líka nokkur tár. Gunnsí og Gunni fórna útlimum í æðiskastinu við að rífa niður palla og leysa úr snúruflækjum. Elín pakkar safneigninni og skipuleggur aksjónið. Gunnsí hefur staðið í ströngu og nánu samstarfi við fagmenn.is sem ætla aðstoða við að smúla burt kexmylsnur á gæjalegan hátt í nýja rýminu á skúlagötunni. Tinna hreinsar til í kerfinu og þær Birta berjast eins og hundar fyrir klausum í leigusamningnum. Gunnsí var búin að sjá nokkra refi og gaf lýsingu á því til Tinnu og Birtu sem nýta sér það í samningagerðunum og má sjá kallana koma froðufellandi með blóðhlaupin augu eftir að hafa lent í Birtu og Tinnu. Jafn einbeittir og markvissir fundir eru haldnir mörgum sinnum í viku um framtíð safnsins og stefnt er á gleðifögnuð og alvarleika í hárréttu hlutfalli allt næsta ár. Páll Haukur heldur áfram að striplast í Feneyjum en til að halda uppi hópeflinu er búið að ramma inn mynd af honum til að hafa á borðið, við hliðiná myndinni af súm-draugnum. Og svo dóminóstilboð handa öllum, með brauðstöngum. 
 
mánudagur, 28. sep 18:04
Unnar er mættur á svæðið hress og ferskur (fyrir utan flensuna) og gott að fá ný augu inn í safnið sem nú er allt í drasli og rykfallið og bíður þess að fá að komast í nýtt hús (eins og fönixinn margumtalaði uppúr öskustónni). Birta er líka komin frá speed-deitvinnuþrælkuninni í Malmö þar sem vel var tekið á móti henni, Hilton, kampavín og glóbalkærleikur og öll norræna og baltíska myndlistarelítan saman í einni rútu syngjandi í kór, eplahátið og gufuböð. Nína telur niður dagana fram að fæðingunni og er að hnýta síðustu hnútana í formennskunni, scram-a milljón krotmiða og hafa uppá Håkan smið sem var valinn félagsmaður mánaðarins og fékk 230 þúsund í verðlaun beint af reikningi safnsins. Hann er löngu farinn till Noregs með peninginn. Karlotta þarf sennilega að fljúga yfir til að afhenda verðlaunaskjalið. Gunnhildur nýstjórnarliði mætti galvösk og reddaði stafrænu bakköppi og þær Elín tóku til í tölvum, tæmdu kubb og fylltu annan enda miklir digital snillingar þar á ferð. Yvonne hélt áfram að rýna í skjöl og föndra möppur og Karlotta umsýslaði. Nokkrir góðir komu í heimsókn, nokkrir slæddust inn í Útúrdúr (td. Hannibal tvífari Antony Hopkins), nokkrir flottir hringdu og nokkrir frábærir röltu framhjá.
 
föstudagur, 25. sep 16:42

Á þriðjudaginn var var haldinn aðalfundur og kosin ný stjórn. Fundurinn var vel sóttur og gekk vel, umræður skemmtilegar og allmennt jákvæður. Sumir höfðu eðlilega tekið þessu bloggi bókstaflega og bjuggust við bjór og snakki en fundu fyrir bónuskleinur og verkamannakaffi en þeir bloggtímar eru liðnir og nú verður einungis sagt frá staðreyndum. Nína var kvödd með virktum og Andrea líka, mikið klappað og nokkur tár sáust falla í tilfinningaumrótinu enda miklar breytingar framundan og stórkostleg afrek að baki. Nýja stjórn skipa: Birta Guðjónsdóttir formaður, Tinna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri, Páll Haukur Björnsson, Gunnar Már Pétursson og Gunnhildur Hauksdóttir í aðalstjórn en áfram sitja þau Huginn Þór Arason, Unnar Örn og Karlotta Blöndal á varamannabekknum. Það er ljóst að það eru mörg spennandi verkefni framundan og heldur betur björt framtíðin í höndum nýrra stjórnarliða.

 
mánudagur, 21. sep 16:23
Mánudagur fyrir aðalfund var frekar viðburðalítill. Yvonne og Tinna sátu hlið við hlið við vinnu sína og Nína við endan, komin hálfa leið inn í mjólkurþokusæluna margumtöluðu og man ekkert stundinni lengur, Karlotta þurfti stöðugt að minna hana á hvað einföldustu hlutir hétu eða væru, við hvern hún væri að tala þá stundina og hvaða dagur væri. Það er ekki seinna vænna að skipa nýjan forman. Á morgun verður blásið til kosninga og hefur stjórnin áhyggjur af því að lýðurinn hakki í sig stofnunina en það er auðvitað vitleysa því félagsmenn Nýlistasafnsins eru allt öðlingsfólk sem vit hefur á því að leggja nafn sitt við Nýló. Það er mikill spenningur í safninu yfir því hverjir munu bjóða sig fram á móti tillögu sitjandi stjórnar. Það verður kosningavaka, fylgst með nýjustu tölum af flatskjá og boðið upp á bjór og snakk. Verður bylting? Eða bara kósí?
 
föstudagur, 18. sep 16:38
mánudagur, 14. sep 15:11
föstudagur, 11. sep 16:38
fimmtudagur, 10. sep 16:25
miðvikudagur, 9. sep 12:36
miðvikudagur, 2. sep 14:49
miðvikudagur, 26. ágú 16:16
þriðjudagur, 11. ágú 16:16
miðvikudagur, 5. ágú 11:09
föstudagur, 31. júl 15:59
miðvikudagur, 29. júl 16:34
mánudagur, 27. júl 16:56
þriðjudagur, 21. júl 16:56
mánudagur, 13. júl 16:11
mánudagur, 13. júl 10:37
fimmtudagur, 9. júl 21:47
miðvikudagur, 8. júl 13:55
mánudagur, 6. júl 15:47
föstudagur, 3. júl 10:30
fimmtudagur, 2. júl 13:35
miðvikudagur, 1. júl 16:54
mánudagur, 29. jún 16:19
 
analoji fen bilgisi