LEIRÞERAPÍA Á STOFNUN UM ALMANNAHEILL Þerapisti Ásta Bjartsdóttir
Leiraðu að þér góðar minningar eða frá þér slæmar minningar.
Innan stofnunar um almannaheill sem opnaði formlega 24. nóvember síðastliðin að Laugarvegi 26 (áður Nýlistasafnið) er deild þerapíu. Þar er boðið upp á leirþerapíu eða leirmeðferð þar sem Ásta Bjartsdóttir, hliðarsjálf Valgerðar Guðlaugsdóttur, tekur á móti gestum og tekst á við tilfinningar þeirra í þessu mjúka efni, leirnum.
Fastir viðtalstímar Ástu verða á fimmtudögum og sunnudögum frá kl: 15:00 -17:00
Unnar mætti með lærlingana sína eldsnemma í morgunn. Andspyrnungana. Unnar fræddi þá um Nýlistasafnið, vonir og drauma. Andrea fór yfir félagalistann á meðan. Nemendurnir voru til hádegis í predikun. Andrea fann út hvaða félagsmenn hafa borgað og hverjir ekki. Það hafa nokkrir ekki borgað síðan árið 2002. Til dæmis Posi, Hanna Stormur og Steingrímur Eyfjörð. Andrea hefur áhyggjur af því. Hvað á gera við skuldapésa? Gula spjaldið? Hins vegar er Dalla Lóritz hrósað fyrir að hafa borgað á hverju einasta ári uppsett verð síðan hann gerðist félagsmaður. Hann fær kannski bónus. Hekla Dögg (sem hefur borgað félagsgjöldin þetta árið) kom nýklippt að ná í skúnkapelsinn sem Nína stal fyrir nokkru. Hún fekk sér kaffi líka. Huginn og Unnar settu upp hillur inní tækjaverið og ný sýning leit dagsins ljós inná skrifstofu. Úr safneigninni, en heyrst hefur að hún sé ein sú besta í heimi. Því hvíslaði lítill og montinn fugl. Á sýningunni er að finna verk eftir td Ástu Ólafs, Svölu Sigurleifs og Jón Axel. Dorothy fékk að hanga áfram. Til að koma sýningunni fyrir voru drög að dagskrá næsta árs færð inná rannsóknarstofu. Glatt var á hjalla í Hangsinu seinni partinn. Þar sátu ungir drengir við listköpun og snúðaát. Bryndís Ragnars, fyrrverandi formaður, kom og ætlaði að skoða sýningu Olgu og Völu en hafði gleymt því að safnið er lokað á þriðjudögum. Stjórnarfundur var í dag. Það vantaði Sergey og Tinnu. Huginn keypti rúsínu og hnetu súkkulaði og kúlu súkk. Unnar lagðist á bekkinn. Pælt var í sýningarumhverfi safneignarinnar og skjalasafnsins, útlitshugmyndir viðraðar og einkennisklæðnaður ræddur. Ákveðið var að ræða við nokkra vel valda einstaklinga og þeir inntir eftir hugmyndum. Stjórnin er of samdauna safninu til að ákveða nokkuð.
Andrea mætti rétt fyrir 12 til þess að setja sýninguna í gang. Henni til mikillar gleði var búið að ganga vel frá og þrífa allt (Huginn að standa sig). Afgangur af skinkuslati kominn inn í ísskáp og 2 hvítvínsflöskur voru eftir, ótrúlegt en satt. Vel gekk að kveikja á sýningunni en Surts gerði tæknina einfalda fyrir þessa sýningu af sinni einstöku snilld. Það var ekki laust við að hrollur færi um Andreu, fannst henni andrúmsloftið á sýningunni hrollvekjulegt (hringekjur og stórir hestar...) og ekki bætti úr skák að það snjóar og snjóar. Varð hún rólegri þegar gestir safnsins fóru að streyma inn um hálf eitt leytið. Vala kíkti við og ræddu þær Andrea leirþerapíuna sem auglýst verður betur seinna í vikunni. Vala er komin með flensuna en þurfti samt að fara upp í Myndhöggvarfélag að þrífa, þeir eru víst rosalega strangir þar. Rétt á eftir henni mætir Olga, nývöknuð og lækkaði í græna videóinu. Ætlar hún að tala við Úlfhildi varðandi enska þýðingu á textanum um Almannaheillinn. Huginn tók við af Andreu um þrjú leytið og ræddu þau við Kristínu Reynis og Gísla Fannberg um lífið og listina. Gísla brá í brún við að sjá peysufötin frá Rúrí, systur sinni, inná skrifstofu. Þau hafði hann ekki séð lengi eða síðan 74 í Háskólabíó á stúdentafundi. Rétt áður en Andrea fór hófst skipulagning á Jólablóti Almannaheilla. Hangikjöt og uppstúf, glögg og hjálpræðisherinn eru á blaði. Minntist Huginn líka árlegrar jólasveinagleði Ása og Ragga. Þeir voru eitthvað búnir að gera hosur sínar grænar. Pingó kom og lentu Huginn og Olga í mikilli krufningu á menningarlandslaginu; lokun Safns, hvort Klingararnir væru búnir að finna húsnæði og möguleikann á að Suðsuðvestur hætti starfsemi sinni. Leikurinn æstist svo um munaði er Hannes Lár kom í hús. Krufðu þeir uppvakningu SÚM (Hreinn og Kristján með sýningar), tengsl i8 og Safns í mennigarpólítkinni, áhrif Frú Vigdísar í forsetatíð sinni, sýningu Olgu og Völu, samstörf, Íslenska Bæinn hans Hannesar og hvernig pendúllinn sveiflar milli dauða og lífs, uppvakningar og greftrunar. Svo róaðist smám saman og það hélt áfram að snjóa.
i see you crying
see the patterns
they come and go
leave you shattered
you shed for so many untrue
can you cry for a shadow
can you cry for a heart crying out for you
can you cry for a shadow
no one asked you to
they don't deserve yr priceless tears
and the whisper
fill yr ears
a reflection of a love long due
can you cry for a shadow
can you cry for a heart crying out to you?
can you cry for a shadow?
i've cried for a few
can you cry, cry, cry?
dry the tears and try try try?
stop cryin
it doesn't matter
just come closer
so i can gather
every drop of yr precious tears
can your cryin for a shadow
can your cryin for a heart cryin out to you
can your cry for a shadow?
like i cried for you
can you cry? cry cry
dry the tears and try
stop crying
doesn't matter
just come closer
so i can gather
every drop of yr precious tears
when you're crying for a shadow
crying for a shadow
like i cried for you
Beat Happening, 1991