föstudagur, 21. des 16:30
Það hefur ekki verið mikið um gesti í dag. Andrea hefur setið yfir GirlkArl textanum og var mjög glöð að fá símtal frá G.Unnar þar sem hann hafði lagfær textann eilítið var hann loks sendur á hana Guddu hjá Listahátíðinni. Hildigunnur Birgisdóttir sem sýnir á safninu á næsta ári kíkti við og henti þá Andrea á hana stórri sprengju varðandi sýningu hennar á næsta ári en hún ætlar að melta málið. Haugurinn birtist um þrjú leitið nýkominn frá Balí, en Freskan og Óli El voru víst farin heim svo ekkert varð úr samstarfinu. Mun Haugurinn hefja störf hér á Nýlistasafninu í byrjun næsta árs með nokkrum nemendum og endurblása lífi í gamla gjörninga sem og að safna nýjum. Vala er búin að vera sveitt við að taka myndir af sýningunni í allan dag, Hrafnhildur stundum kennd við i8 kíkti við og var ofboðslega hrifin af sýningunni og sagði orðrétt "ég vildi óska að ég hefði gert þetta". Palli smjörvi sem mun sitja yfir um helgina kíkti og Andrea sýndi honum á tækin, hræðist hann þau ekki, samt er búið að setja Surt á speed-dial ef e-d fer úr böndunum um helgina. Stjórnin vill hvetja alla til að mæta á leiðsögn Olgu og Völu á morgun kl 15:00 og óskum við ykkur öllum blogg-lesurum Nýlistasafnsins Gleðilegra jóla og frasældar á komandi ári, vonum við að þið munið kjósa www.nylo.is sem bestu nýju heimasíðuna og www.nylo.is/dagbok besta bloggið. Lifið heil.
 
fimmtudagur, 20. des 15:52
Andrea var mætt til að opna og skömmu síðar mætti Surts til að redda tæknimálunum einu sinni enn á þessari sýningu. Perur hafa verið að springa, lampar að losna og svo mætti lengi telja, mætti halda að SÚM draugurinn sé kominn á stjá. Surts beið síðan til tvö eftir Baldri kleinu sem ætlaði að fá lánað hljóðkerfi en virtist hann hafa sofið yfir sig. Er hann einmitt með útgáfupartý í Katusnum/útúrdúrnum nýju bókverkabúðinni á Njálgötunni nú í eftirmiðdag en hann var að gefa út bókina Heimsendir er í nánd og óskum við honum til hamingju með það. Fyrstu gestir dagsins voru 2 verkamenn sem vildu ólmir komast í að kaupa Angelinu Jolie og hrifust mjög af vinadúkkunum hennar Völu, sérstaklega kvenfólkinu (þó ekki Ingibjörgu Hólrúnu). Næst mættu á svæðið 2 rosknar konur sem gáfu sér mikinn tíma í að skoða sýninguna og vildu fá nákvæmar lýsingar á öllum verkunum hjá Andreu, hvatti hún þær til þess að mæta á leiðsögnina sem listakonurnar munu vera með á laugardaginn kl 15:00, sögðust þær ætla að mæta. Um 2 mætir vinur hans Baldurs til að sækja hljóðkerfið en hann var ekki á bíl og þess vegna hætti hann hreinlega við. G.Unnar kom og kíkti á GirlKarl textann fyrir Listafestivalið og ræddi auk þess við einn nemanda sinn vel og lengi inn á hangsi. Erlingur frá banginu mætti vatnsgreiddur með jólapakka handa Ninski og verður hann hér niðrá safni þangað til formaðurinn kemur til baka frá París. Ásimundur mætti með lykla handa Ninski, sem var þó ekki jólagjöf heldur einfaldlega lyklarnir hennar sem hann átti eftir að skila. Vala rétt kíkti inn og lét Andreu vita af því að ekki væri hægt að kaupa leirstytturnar hennar inní leirþerapíuherberginu en önnur roskna konann hafði mikið spurt um hana. Ungur kani kom og var að leita að Kaktus/útúrdúrnum og var hann líkt og verkamenninrnir orðlaus út af vinadúkkunum og vildi panta nokkrar. Garfaðist hann lengi í bókahorni safnsins. Pingó kíkti stutt við og var spenntur að vita hvernig málin liggja í safneignarviðræðunum en hann hefur verið einn helsti talsmaður þess að bjarga bestu safneign í heimi nú um langt skeið og er hann mjög ánægður með ákvarðanir stjórnarinnar í þeim málum. Rétt fyrir 4 mættu Baldur sem var nývaknaður og vinur hans frá því fyrr í dag með sígarettur í kjaftinum og náðu í restina af hljóðkerfinu. Eina gjöfina í viðbót fékk Ninski þegar G.Unnar áritaði nýútkomna bók sína fyrir formaninn og líka fyrir gjaldkerann. Andrea reyndi mikið að ná í Hauginn í dag út af GirlKarl textanum en hann er með slökkt á símanum og kominn í jólafrí til Balí að hitta Barónskinkuna og Óla Él með samstarf í huga.
 
miðvikudagur, 19. des 16:51
Þegar Andy mæti rétt fyrir hádegi var búið að planta risastórum flutningabíl beint fyrir innganginn svo ekki var möguleiki að komast í einkastæði safnsins, aus Andy reiði sinni á vörubílsstjóarnn og vonar nú að þeir hjá Lnadic fari að sjá að sér. Varla hefur sála sést í dag, ætli það seú ekki allir að hugsa um e-d annað en myndlist svona rétt fyrir hátíð ljóssins, en stjórnarmeðlinurinn hun Tinnska mætti mjög hress og gerði Launamiða fyrir 2006 fyrir Skattinn með Andreu, gekk það vel og vonandi leggur nú skatthundurinn skuldina niður sem hann hafði sent á safnið. G.Unnar kíkti stutt við og afhenti Nýlistasafninu formlega bókverk sem hann vann með nemendum sínum í Listsakólanum nú fyrir nokkru, er það fagurbliekt. Ninski hringdi sveitt frá París en þar er hún að kaupa jólagjafir fyrir stjórnina og var hún að reyna að ná í hann Bokka okkar, Andu reyndi líka að ná í hann en enginn svaraði. Geggert kom og fann það sem hann var að leita að, lista af verkum frá Peter Schmitt með verðum, en hann sýndi hér sælla mininga 1979 í Nýlisatsafninu og er mjög eftirsóttur í dag þó hann blessaður hafi látist langt fyrir aldur fram. Vala kom brosandi og kastaði kveðju á safnið, ætlar hún að reyna að ná nokkrum góðum myndum á morgun af sýningunni. Olga mætti einnig með her af gestum og var með privat leiðsögn fyrir þessa VIP-gesti. Andy reddaði Hjálpræðishernum en mun sönghópur hersins koma og syngja næstkomandi Laugardag kl 18:30 og hvetjum við alla til að mæta.
 
sunnudagur, 16. des 17:14
Það komu fáir í grenjandi rigningu. Huginn þornaði smám saman yfir daginn. Fyrst við að pikka inn texta Evu Heisler á íslensku til að setja á heimasíðuna. Huginn kann það reyndar ekki og verður að bíða eftir að Andrésa geri það á mánudaginn. Þvalur sat Huginn við tölvuna þegar Ási, fyrrverandi safnstjóri, og G.Unnar komu rauðir í kinnum eftir erfiðan morgunfund á Seljavegi. Fengu þeir og Huginn sér kaffi, ræddu ástandið, afdrifaríka stjórnartíð Ása, minningar og drauga og jákvæða gagnrýni á Stofnun um almannaheill sem birtist í Lesbókinni í gær. Huginn sýndi Unnari og Ása blogg gullpensilsins Ransu, eða Bokka eins og hann var víst kallaður back in the days, en þar birtir hann smá yfirlit frá málþingi Moggans um gagnrýni, sem fram fór í vikunni. Gaman var að lesa það og frá bloggi Bokka var kíkt á nokkra aðra myndlistarmenn og síður þeirra. Hlyn Hallsson og fleiri góða. Ási opnaði blogg þegar hann var í Istanbul. Ekki persónulega, heldur fyrir Puttann sinn. Eftir milljón færslur málefni líðandi stundar var dottið í lukkupott gleðinnar á tónlist.is. Þar er hægt að sjá öll myndbönd með Ný Dönsk. Rúsínan í pylsuendanum var Kirsuber. Vala kom klukkan þrjú, stundvíslega, og opnaði þerapíuna sína. Í sömu andrá birtust Helgi Þorgils, gullpensill með meiru, og frú. Þau fengu leiðsögn með Völu um sýninguna og spjölluðu heilmikið við Huginn um Ganginn, safneignina og sérstaklega um Svölu Sigurleifs, sem á vinsælasta verk á randomsýningu á verkum úr eigu safnsins sem nú hangir inn á skrifstofu. Verkið er af haus og handalausum skrifstofumanni. Helgi og frú sögðu Huginn frá heimasíðu Svölu. Þar getur maður skoðað nánast allan hennar feril. Mjög spennandi, enda er Svala búin að vera Huginn hugleikinn um tíma. Í umræðum um afmælisárið kom það uppúr dúrnum að Goddur hafi sett nokkur verk frá Helga og félögum í geymslu safnsins og þeir aldrei fengið þau til baka. Goddur hafði víst troðið þeim inn eftir Gullströndin gaf upp öndina um árið. Eða Gullöndin strandar, eins og Helgi kallar sýninguna. Búið er að margreyna að fá verkin til baka enn ekkert gengið. Ási var hrifnastur af verki Ástu Ólafs á randomsýningunni. Hann þurfti reyndar að geta þrisvar um hver ætti heiðurinn að verkinu. Ásta er uggandi yfir að verkið hangi uppi. Það er of líkt verkum Sigga Gúmm að hennar mati. Hann var víst að kenna henni á þessum tíma. Vert er að taka það fram að Ásta er félagsmaður mánaðarins. Ási og Unnar forvitnuðust í kjölfarið um litla landslagsmynd eftir Sigríði Björnsdóttur. Huginn upplýsti að það hún hefði verið kona Dieters. Þær upplýsingar fékk hann frá Eggerti Péturs. G.Unnari hafði reyndar grunað það. Eggert ætlar að kíkja í vikunni inná rannsóknarstofu og garfast í kössum. Aðallega Suðurgötu 7 kassan. Svo vill hann finna verk eftir Peter Schmidt úr safneigninni og taka mynd af því. Í lok dagsins kom Olga og smellti nokkrum góðum af sýningunni. Þau Huginn fengu sér kaffi og ræddu mikið saman. Bar á góma sýning Margrétar í Hafnarhúsinu, en það er víst erfiðasta sýning í áraraðir að mati almennings. Sýningin þykir brjálæðislega ögrandi og brýtur allar viðteknar hugmyndir fólks um myndlist. Rífur himnuna. Sker upp heróp. Listasafnið skelfur á beinunum og upplifir skilningsleysi og reiði. Sem er frábært fyrir safnið, listina og listumhverfið. Einnig ræddu þau gagnrýni Morgunblaðsins og hvernig stæði á því að aspirnar í aftara rými laufgist. Drumburinn á gólfinu líka. Olga og Vala stefna á jólaglögg og kórsöng fyrir jól.
 
fimmtudagur, 13. des 16:56
Huginn kom um hádegisbilið að Nadreu brjálaðri í símanum við Yðar óskir í við að hafa uppi á einhverjum sem hafði lagt uppá stétt fyrir framan safnið. Viðkomandi fannst ekki og hvoki Viðar né Óskar könnuðust við umræddan vínrauðan sendibíl. Gnístandi tönnum hringdi hún í Landic til að ausa úr barmafullum skálum sínum. Örn hjá Landic svaraði ekki símanum. Reiðin lak smám saman niður. Franska sendiráðið er ennþá í fýlu og halda samskipti Lárusar og Andreu áfram við sendiráðið. Serge fór á fund hjá þeim í dag að miðla málum með plástra í míglekan gúmmíbátinn. Nína og Huginn skrifuðu texta um framlag safnsins til Listahátíðar. Þau spöruðu sér sporin og fundu fínan texta um verk Karl Holmqvist á netinu. Hann hefur ekkert verið í sambandi uppá síðkastið. Eins létu þau gamminn geisa um gjörningaverkefnið. Engu var þó lofað uppí ermina. Textinn verður sendur á morgunn og fór Serge heim með skemmtilega mynd af skeggjuðum manni í rauðum bol til að skanna og láta fylgja textanum til Tótu 2000. Maðurinn drekkur vatn af áfergju og er búinn að hella á sig. Áður en Serge fór hengdi hann upp ljóskastarann fyrir Völu. Hún fékk gesti til sín í þerapíu og var mikið hnoðað, pælt, hlegið og mótað. Óli Breiðfjörður, hönnuður nylo.is, kom og ræddi við Nadreu, Huginn og Nínu um væntanlegt uppgjörsplakat og blessað hand outið sem er búið að grámygla á teikniborðinu. Það er lengsta og stærsta verkefni sem þessi stjórn hefur tekist á við. Stefnt er á að koma uppgjörsplakatinu í prentun fljótlega eftir áramót. En það lítur út fyrir að ekki náist að koma plakatinu út til félagsmanna á afmælisdag Nýló 7. janúar, því miður. Við sjáum til með handoutið. Kannski er það einungis til myglað í draumi. Óli kom með góðar hugmyndir að hönnun og umbroti og brýndi Andrea hnífana fyrir Huginn og Nínu; velja þarf myndir úr sögu safnsins á næstu dögum. Barónsskinkan hafði samband frá Balí og hefur hún loksins millifært úr Gleðibankanum. Óli E bað að heilsa. Þá getur stjórnin djammað og djúsað að vild á jólafagnaði sínum á Austur Indíafjelaginu annað kvöld. Ekkert djammviskubit.
 
miðvikudagur, 12. des 16:24
Vikan byrjaði af krafti. Stormur. Samanlímdi bíllinn hennar Nínu sem var búin að hanga hérna á planinu í marga daga var dreginn í burtu. Hún talaði við Huldu hjá Samskipum og komst að því að stjórn fyrirtækisins hafi fundist umsókn safnsins til sjóðs þeirra afar áhugaverð. Búast má við milljónasvari frá Samskipum í janúar. Nadrea stendur ennþá í ströngu vegna franska klúðurmálsins; flutningsmála á verkum fyrir sýninguna presque rien. Það ætlar engan enda að taka. Lalli Vill, fyrrverandi framkvæmdarstjóri var dreginn ínní málið og skrifaði Lalli reiðilega og langa langloku til Mennatmálaráðuneytisins. Þykjast þau ekkert kannast við málið á þeim bænum. Nadrea hefur ákveðið að leggja fyrir stjórn tillögu sem hamlar fröskum að sýna í safninu til næstu tveggja ára. Áhrifamikill stjórnarfundur var haldinn í gær og lagði Serge, grátandi, til að ýtt yrði á pásu í framkvæmdarsukki stjórnarinnar. G.unnar tók undir þetta með titrandi röddu og faðmaði þá formaðurinn hann að sér. Unnar kastaði þvínæst sprengju yfir hópinn og tilkynnti að hann hygðist fara aftur til Suðurríkjanna um miðjan janúar og ekki koma til baka fyrr en í endaðan apríl. Þar bíða hans djúpsteiktir kjúklingavængir, 100 gervihnattastöðvar og ástsæl eiginkonan. Sprengjuegnið hófst þar með og tilkynnti Nína ferð sína til Kúbu í janúar í dúndur djammferð með sjöunda besta listamanni í heimi (samkv. nýjasta lista Art review). Huginn fær ekkert frí á næsta ári þar sem hann tók það út í Noregi um daginn og Nadrea fær langa helgi í Lundúnum milli jóla og nýárs (þegar safnið er hvort sem er lokað). Kínverskuneminn Serge stefnir á ferð til fyrirheitna landsins, hversu lengi veit enginn og Tinna er horfin. Í dag er allt í volli á bílastæðinu. Andrea hringdi tryllt í eiganda guls sendibíls sem lagt hafði fyrir BMW-inn hennar. Anna Líndal, prófessor LHÍ, fékk illt auga frá Andreu eftir að lagt jeppanum sínum í leyfisleysi í stæði safnsins. Viðar og Óskar: Yðar óskir í við eru í ruglinu og er Andrea að missa þolinmæðina gagnvart þeim. Unnar lagði til að prentaðir yrðu límmiðar sem skellt yrði á framrúðuna ef lagt er í leyfisleysi í stæðin. Límmiða sem erfitt yrði að plokka af. Rukkun kom frá Listahátið. Safnið á eftir að skila til hátíðarinnar staðfestingu á framlagi sínu. Ekkert bólar á gullpeningunum frá Gleiða Bankanum, en Barónsskinkan er vant við látin. Heyrst hefur að hún sé á ferðalagi með Ólavi Elíassyni á umhverfisráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna á Balí. Ólavur þykir vera mjög grænn listamaður. Haffi Haff frá Hamraborg kíkti við vill kaupa verk af sýningu Olgu & Völu; Stofnun um almannaheill. Hvaða verk það verður, veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. Vonandi fá þær stöllur spikfeita jólagjöf. Gunnar Dungall kom á fund við Nínu, Unnar og Andreu í gær. Þau ræddu saman um verkefni næsta árs, safneignina, verðmætin og söguna. Spáð var í framtíðina og talaði Gunnar um breytt menningarlandslag, aukið peningaflæði og tækifæri til listaverkakaupa. Lagði hann til að stjórn safnsins yrði ráðin í vinnu hjá stórfyrirtækjum sem ráðgjafar um listaverkakaup. Þar væru mikil sóknarfæri enda fyrirtæki farinn að færa út kvíarnar og meiri áhugi væri að vakna um kaup á samtímalistum.
 
miðvikudagur, 12. des 15:41

I was walking down the street the other day
A sight came before my eyes
It was a little hippie boy I must have been twice his size
His appearence typied his strange breed
Gaudy clothers long stringy hair hanging down
I'd seen perhaps a thousand in my early trips to town
As he walked on beside me on down the block
I noticed no unpleasing smell

He might have been on the weed or even LSD
But if he was I couldn't tell
So we walked together that way through this neighborhood
Finally  he turned around to me  
And he said friend  we're a million miles apart
But you know something  we can enjoy the sunshine and the weather
So why don't we put our differences aside and just talk to each other
You see this box beneath my arm to you it's plain, it has no charm
But to someone dearest to my heart this box has played a tragic part
This little one can't tell you himself about his life and how he died

But if anyone else could speak for him I guess I'm qualified
This boy was in Chicago he didn't know why he was there
He was with his family and friends and he didn't really care
You might have been one of those who saw the struggle there on your television screen
The tragic thing is so much else happened that no one else could have seen
A stranger handed this boy a dollar to do a simple chore
To carry a package to a nearby hotel
And when he returned he'd get two more
But when he came back he sort of lost his way walking thru  the crowd

One of them things you ask yourself,  how the Lord allowed
But when he was found he was like he is now, dreaming sweet and still
And in his little hand was a crumpled dollar bill
Now you can take that dollar, get four cents on it compound it quarterly
At  any downtown bank
So they can back some hot new tank or atom bomb
Well what I'm going to tell you now, you can stay or you can leave
You kind of listened to my story so far but just one more thing
It's the same for any hippie, bum or hillbilly out on the street
Just remember this little boy and never carry more than you can eat
Now could you help us sing this song, please
There will be peace in the valley for him now we pray
I will think of the little hippie boy that way

The Flying Burrito Brothers  (Chris Hillman)
Copyright @ 1968 Irving Music Inc.(BMI)
From "Gilded Palace Of Sin"
A & M Records

 
laugardagur, 8. des 16:29

Ekki kjaftur hefur látið sjá sig í sólskini og snjó. Jólamartröðin? Maður spyr sig. Páll Smjörvi kom þó að færa bílinn sinn og fékk einn bolla á hraðferð. Gísli Galdur reykti eina fyrir utan safnið. Olga hringdi og frestaði viðtali sem Huginn ætlaði að taka við listakonurnar um Stofnun um almennaheill. Huginn skemmti sér yfir að afrita gagnrýnan texta frá Evu Heisler sem hún skrifaði árið 2000 í tilefni af samræði við safneign. Sýningin var haldin 22. janúar og stóð til 13. febrúar, það árið. Má með sanni segja að hún rýni til gagns í texta þessum. Unnar kom með hamborgara í bréfpoka og bókverk undir hendinni sem hann og Huginn eiga eftir að signera. Þau verða til sölu í Útúrdúr Bókabúð sem opnar í dag. Bókverkin gerðu þeir úr gömlu drasli frá sýningunni ASÍ Fraktal Grill. Einning mun Unnar selja seinustu sex eintökin af Mjólkurpóstinum, fer þá hver að verða síðastur. Nína er heima að fagna milljónunum sem hún græddi eftir Art Basel í Miami.

The sandman is sending me a special gift
A sleepy dream memory of our first kiss
Cast a shadow in my direction
Cast a shadow in my direction

The sandman comes at night i have a request
A snapshot dreamy keepsake of your embrace
Cast a shadow in my direction
Cast a shadow in my direction

Cast a shadow in my direction
Cast a shadow in my direction

Cast a shadow over here
We'll make shadow plays
We'll dig shallow graves
In my shady shallow cave

The shadow grows longer in my twilight sleep
I wallow and remember, you lock and key
Cast a shadow in my direction
Cast a shadow in my direction

Cast a shadow in my direction
Cast a shadow in my direction
Bring back shadow of your affection
Cast a shadow in my direction
Bring back shadow of your protection
Cast a shadow...
in my... direction

Beat Happening

 
föstudagur, 7. des 13:08
miðvikudagur, 5. des 11:06
mánudagur, 3. des 18:16
mánudagur, 3. des 18:02
mánudagur, 3. des 12:23
laugardagur, 1. des 17:45