Ákveðið var af nýrri stjórn sem tók til starfa nú um miðjan mánuðinn að breyta opnunartímum safnsins og er það nú opið miðvikudaga til sunnudags 12-17 og á fimmtudagskvöldum til 21.
Vill stjórnin með þessu gefa gestum tækifæri á því að nýta sér eitt kvöld vikunnar þ.e fimmtudaga til þess að kíka á yfirstandandi sýningu hverju sinni. Þar verða stjórnarmeðlimir til viðtals um sýninguna og léttar veitingar á lágu verði í nýuppgerðu hangsi safnsins.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórnin
Aðalfund Nýlistasafnsins átti að halda sunnudaginn 22.apríl, en ekki mættu nógu margir til þess að fundurinn yrði löglegur og var honum því frestað til 08.mai.
Maður fer að velta fyrir sér hvers vegna svo fáir félagsmenn láti sjá sig á aðalfundi. Er þeim alveg sama, vilja ekki vera að skipta sér af, eru ánægðir með starfið eins og það er núna....hver veit. Stjórnin var meira að segja búin að skella í pizzur...
Framhaldsfundurinn verður löglegur sama hversu margir mæta á hann skv. lögum en að sjálfsögðu vonum við að fólk láti sjá sig og kjósi bæði í stjórn og um lagabreytingar.
Því má svo við bæta að boðið verður upp á freyðivín á fundinum í þeim tilgangi að lokka fólk............
Fljótlega eftir að ný stjórn tók til starfa á síðasta ári var ákveðið að safnið þyrfti á léttri andlitslyftingu að halda. Ráðist var í verkefnið og ákveðið að fara í samstarf við Ólaf Breiðfjörð. Kom hann með þá hugmynd að kalla Nýlistasafnið NÝLÓ (sem er víst allt annað en ný af nálinni)og setja saman “lógó” sem notað yrði á skilti, í alla kynningarstarfsemi og á nýja vefsíðu safnsins. Hefur þetta gengið vel og stjórnin í skýjunum með nýja merkið, skiltið er á leiðinni en til að byrja með skelltum við upp límstöfnum á glugga bæði við inngang og eins inni á hangsi. Viljum við endilega fá viðbrögð félagsmanna sem og almennings á þessu nýja “looki.
Nýlega var tekið til í geymslunni á Nýló, ef geymslu mátti kalla...Það þurfti lítinn sendilbíl til að fara með allt ruslið á hauganna. Endalaust af brotnu og ónýtu drasli. Það er eins og stefnan hafi verið að taka alla afganga eftir hverja sýningu og setja í nokkra kassa, allt á sama stað, málning,skrúfur, teip, óhreinir sokkar....Nýlo er geymsló... Ekki lengur. Hér eftir er stranglega bannað að nýta sér geymslu Nýlistasafnsins fyrir hvaða drasl sem er. Það hefur ótrúlegur tími farið í að leita að hinu og þessu af því að það er alltaf drasl, þetta verður gífurlegur tímasparnaður. Þá á bara eftir að fara í innri skrifstofuna sem er í álíka miklu rugli og karlaklósettið sem af e-m ástæðum rústaðist....
Mánaðarlega verður einn félagsmaður safnsins kynntur til sögunnar , og er sá fyrsti
myndlistarmaðurinn Haraldur Jónsson. Eftirfarandi eru 4 myndir og texti frá listamanninum.
Ég reyni að halda íbúðinni minni eins hreinni og ég mögulega get og í kringum mig er aðeins það allra nauðsynlegasta. Fataskápurinn geymir föt sem ég nota reglulega en frammi á gangi er ég alltaf með eitt skópar til skiptanna. Ég forðast að kaupa hluti og mér líður frekar illa þegar ég fæ óvæntar gjafir. Um leið og eitthvað er komið upp á vegg er líka meira en að segja það að ná því niður aftur. Ef ég skil eitthvað hugsunarlaust eftir inni í íbúðinni og því tekst að vera þar lengur en einn sólarhring þá er nokkuð víst að það týnist. Það er engu líkara en það fari í feluliti og ég muni ekki finna það í nánustu framtíð. Ef það birtist hins vegar aftur fyrir framan augu mín þá er það alltaf meiriháttar uppgötvun. Ég bý einn en það er örugglega ekki eina ástæðan.
Poipoidrome
Á Safnanótt sem haldin var 24.02 var opið á Nýlistasafninu til miðnættis. Þar var spilaði franski listamaðurinn Gérald tónlist og var sýningarstjórinn Serge Comte til viðtals við gesti og gangandi. Aðsóknin þetta kvöld var hin besta. Þegar mætt var á sunnudaginn og safnið opnað kemur í ljós að skemmdarverk hafa verið unnin á einu verkanna kvöldið áður, nánar titekið Poipoidrome eftir Robert Filliou og Joachim Pfeufer. Þetta verk er 4 herbegi og í einu þeirra er gestum boðið að rita málshætti á vegginn með litum. Þarna hafði e-r tekið málin í sínar hendur og krotað út um allt á veggi verksins, ekki málshætti heldur barnaleg, dónaleg orðatiltæki, auk þess að teikna klúrar myndir.....Af þessum orsökum var verkinu lokað í nokkra daga meðan á viðgerðum stóð. Við skulum vona að þetta endurtaki sig ekki og þess má geta að þeir sem hafa áhuga á því að rita málshætti inn í herbergið verða að biðja um litina inni á skrifstofu.
Pétur og Vala frá Glitni með stjórnarmeðlinum.
Skrifað var undir þriggja ára samstarfssamning milli Nýlistasafnsins og Glitnis í gær, en bankinn mun styrkja safnið um átta milljónir króna á samningstímanum.
Framundan eru mjög spennandi tímar hjá safninu en það á 30 ára afmæli á næsta ári og af því tilefni munu Glitnir og Nýlistasafnið kynna sérstaklega hina einstöku safneign NÝLÓ sem inniheldur mörg lykilverk, ekki eingöngu í íslenskri samtímalist heldur einnig evrópskri. Nýlistasafnið hefur notið stuðnings opinberra aðila um árabil en dregið hefur hlutfallslega úr honum síðustu ár. Það er því ljóst að stuðningur Glitnis við Nýlistasafnið er afar mikilvægur og gerir safninu kleift að hlúa að íslenskri samtímalist.