Hvar er Raggi? Hann er í Króatíu en kemur á morgun með vasana fulla af peningum. Jane Mansfield efnið kemur líka á morgun og þá geta Hrafnhildur og Kristín hafið saumaskapinn. Serge sittur sveittur að hanna kynningarplakatið og boðskort, kom upp skemmtileg hungmynd frá Davíð Þór (Flísrara) að myndefni fyrir plakatið. Tinna og Unnar eru í miklum samskiptum þessa daganna (Atlanta-Reykjavík) varðandi fyrirhugaða umsókn um rannsóknarstyrk. Bréfin eru löng og ítarleg, gott teymi þar á ferð. Fyrirhugað er að brjóta niður vegg í vikunni og finna lausn á upphengis vandamálinu. Nína er ennþá í Króatíu, fer svo til Berlínar með Kling og Bang genginu að halda sýningu á Thorstrasse 111, óskum við þeim góðs gengis. Andrea hefur áhyggjur af peningamálum en þó eru nokkrar stórar lausnir í sigtinu, þetta fer allt að koma í ljós. Ekkert hefur heyrst frá Stoðnum í sambandi við breytingar á húsnæði. Magnea hjá Ræsir bendir á framkvæmdarstjórann í hillumálunum...ekkert hefur spurst til Fjölnis lengi. Frést hefur að Dagblaðið Vísir sé fastagestur á bloggi Nýlistasafnsins í von um slúðurfréttir..Óskum vioð Kela kút innilega til hamingju með Sjólistaorðuna, vel af sér vikið. Villi Naglbítur var frábær og er honum óskað til hamingju með sýningu sína í deiglunni...Einning er Nýlistasafnið mjög forvitin að vita hver þessi opinbera bygging er sem Högna Sigurðardóttir talaði um i heiðursræðu sinni? Ef einhver veit það, endilega sendið okkur póst á [email protected]
föstudagur, 28. sep 17:26
Ragnar Kjartansson var mættur kl 8:30 í morgun til þess að skrifa undir samninga við sína styrktaraðila (Nessuna og gleðibankann) en voru þeir ekki komnir í hús þá. Ræddu hann og Andrea aðeins peningamál og skildi ragnar eftir skissu fyrir Serge og Huginn að hugsanlegri skjá-lausn fyrir myndbandsverkið. Huginn kíkti um hádegisbilið og brunuðu þau Andrea upp í Latabæ í Garðabæ að kíkja á Ragga og félaga í studíóinu. Sviðsmyndin er rosaleg og hafa saumakonurnar okkar Hrafnhildur og Kristín aldeilis staðið sig í stykkinu. Þetta er fabulous og verður flottasta verk í heimi. Latabæjarstúdíóið iðaði af lífi og fjöri. Davíð Þór var æstur á píanóinu og Helgi Svavar var að skrúfa samanperluhúðað trommusett. Vildi hann meina að þetta væri dýrasta trommusett í heimi. Sást til Magga íþróttaálfs að smakka á veitingum Ragnars, hafði hann pantað :Jarðaber, plómur,hraunbita, heilsukex frá Ágústu Johnson og camenbert. Streymdu hljóðfæraleikararnir inn og var sérstaklega erfitt að bera nýþunga hörpuna fyrir Marion hörpusnilling. Myndaðsit mikill æsingur við hlaðborðið. Rafael ljósmyndari smellti myndum af herlegheitunum og voru tæknimenn Latabæjar á hverju strái. Æstust Andrea og Huginn geysilega við þessa sjón og ákváðu að þetta væri málið, Raggi þú ert hot stuff og getum við ekki beðið eftir að bjóða fólki að sjá þessa dýrð með eigin augum. Þau hittu Serge kl 15:00, var smellt í boðskortið og ákveðið hvernig kynningarplakatið mun líta út. Davíð Þór sendi nóturnar sem hugsanlega verða notaðar í plakatið. Nína hringdi marineruð frá Berlín, en þar er víst mikið um að vera á októberfest nú í kvöld. Hvetjum við alla Íslandinga í Berlín að kíkja á Klingarana í góðum fíling. Tinna kom og náði sér í upplýsingar fyrir umsókn og var hún svo á leið á Vísíndahátíð Rannís þar sem hún fyrir hönd Nýlistasafnsins mun veita verðlaun fyrir bestu teikningu gerða af mannsbarni í þágu vísindanna. Hildigunnur í i8 og fyrrverandi stjórnarmeðlimur kom við undir lok dagsins og setti tóninn fyrir helgina. Hafa hún og Huginn sæst eftir hundadramað um daginn.
föstudagur, 28. sep 17:07
Andrea mætti snemma að vanda var ein í safninu allan daginn. Fékk hún hinsvegar góða gesti í heimsókn m.a Fjölni tattó sem spurðu um Nínu að vanda. Er hann mjög spenntur að hitta hana...af hverju vitum við ekki. Er Nína að fá sér tattó? Raggi Kjartans stendur í ströngu við undirbúning á upptökunum og hefjast æfingar á morgun. Tinna situr sveitt við umsóknargerð og eru e-mail samskipti okkar allra mjög góð um þessar mundir. Er verið að reyna að plana næsta ár. Serge er búinn að taka vegginn, vel gert Serge, lítur safnið nú miklu betur út fyrir sýninguna hans Ragga.
þriðjudagur, 25. sep 16:06
Mikið var um fjör í dag. Andrea og Huginn mættu snemma og milli þess sem Andrea skipulagði Sequences var tekið til hendinni varðandi sýninguna hans Ragga Kjarrasonar. Farið var yfir málin og skipst á skoðunum en Huginn hafði heyrt í Ragga daginn áður þar sem hann sat við risastóra Evru minnismerkið í miðborg Frankfurt og beið eftir fluginu sínu heim. Andrea hafði svo heyrt í Ninski Formanni; nýkomna frá Króatíu til Berlínar. Nessa von Habsburg hafði pungað peningunum út úr Gleðibankanum og gat þá allt verið sett af stað. Öll pródúksjónin. Serge kom rétt fyrir hádegi og hófst handa við að massa veggstubbinn niður. Hann sér fram á frekar einfalt niðurrif. Raggi kom vatnsgreiddur og spengilegur kl. 15 með Jane Mansfield efnið undir hendinni til að hitta Hrafnhildi og Kristínu saumakonur ásamt Huginn. Heildsalinn vildi nú frekar kalla efnið Bárubleikt, sagði Ragnar. Fundurinn var gæfuríkur og er allt á hreinu með saumaskapinn. Þær ætla að smella nokkrum ströngum í sviðsmynd fyrir upptökurnar á verkinu hans Ragga sem tekið verður upp í Latabæ á sunnudaginn. Þær stefna svo á tjöldin geta verið komin í hús til okkar á miðvikudaginn í næstu viku, tilbúin til upphengis. Ragnar er svo búinn að vera á fullu í dag í reddingum fyrir upptökurnar; hringja í hljóðfæraleikarana, spjalla við upptökumenn Latabæjar, heyra í tónskáldinu (Davíð Þór) og tjékka á hvernig Harrý gengur með að redda teppum og pöllum fyrir sviðsmynd. Vélarnar þenjast og hraðinn eykst. Næsta mál á dagskrá eru gardínustangir.
mánudagur, 24. sep 11:46
fimmtudagur, 20. sep 13:48
Genjað var á gresjunni á síðasta stjórnarfundi, stóra verkefnið Ljónið í vindinum var rætt í þaula og spilin lögð á borðið. Andrea var alveg að sofna, Tinna var ritari, Nína mjög æst, Huginn ákveðinn, Serge íbygginn og enginn Unnar. Auður Jörundsdóttir hefur sagt sig úr stjórninni sökum anna og viljum við þakka henni frábær störf. Unnar vill endilega sjá 2-3 nýja hressa krakka í stjórninni. Umsóknarferli voru rædd, hugmyndir af smáverkefnum í kringum safneign og skjalasafn komu upp, Serge sá fyrir sér að hugsa um safnið eins og líkama og að ákveðin uppbygging að spennuþrungnu ári. Flestar þessar hugmyndir hafa verið ræddar áður en erum við nún aða dreifa ábyrgð og hlutverkaskipan. Huginn bað hópinn um að skilgrina sína stöðu upphátt fyrir alla hina, einn í einu. Andrea vill að stjórnin fari í skemmtiferð til að hrista hópinn saman, kannski til Atlanta til Unnars...Nína villl sækja um allt, Tinna er skeptísk á slík vinnubrögð. Eftir fundinn prentaði Tinna út dagatal, hengdi það upp og vöru drög að Ljóninu hengd upp Komu post-it miðarnir sem Serge kom með í sumar sér afar vel. Þeir eru í öllum regnboganslitum. Huginn æstist mjög og varð mikið fjör úr. Gott er að horfa yfir skipulagið. Róandi og skerpandi. Nína hringdi í Magneu hjá Ræsi og gaf hún henni númerið hjá Páli framkvæmdarstjóra varðandi hillurnar sem okkur var hálaf lofað í júlí. Við höldum að hún Magnea þori ekki að hafa samband við Pál, af hverju vitum við ekki. Listamaðurinn Illugi kíkti við og lét safnið hafa kynningarplakat með sér og sjá mátti kort af London úr mat. Búið er að taka niður No Way Out að mestu leyti, eftir er húsið hans Davíðs, double teipið hjá Benny og kallinn með hattinn frá Timo. Raggi Jónasar er farin til Glasgow og eru þeir félagar Mummi og Davíð farnir að taka þátt í sýningu í Salzburg í Austurríki. Þar munu þeir m.a sýna þau verk sem voru sýnd á No Way Out. Nína Magnúsdóttir ásamt Ragnari Kjartanssyni á leiðinni til Króatíu, en komið er að skuldadögum hjá Fransescu von Habsburg. Þau munu einnig taka þátt í málþingi um hvernig söfn geta haldið í sérstöðu sína gagnvart "global" samnefnara. Þar munu margir góðir stíga á stokk ásamt okkar fólki; Udo Kittelman, Ólafur Elíasson og Daniel Birnbaum. Ragnar fer sáttur út þar sem hjólin eru farin að snúast fyrir sýninguna hans í Nýló. Hrafnhildur Guðrúnardóttir og Kristín hans Halla Jóns munu taka að sér risa saumavinnu fyrir sýninguna, allar upplýsingar eru komnar á disk fyrir kynningarplakat en beðið er eftir texta um R. Kj frá Jóni Atla, rithöfundi með meiru og mun Huginn taka viðtal við listamanninn eftir Króatíuför hans. Huginn mun svo brjóta veggstubb niður fyrir sýninguna um helgina og mála yfir restarnar af Nóa Át. Doddi vinur R. Kj mun vera á kantinum yfir helgina ef hjálp vantar. Raggi kemur heim á þriðjudaginn kemur, þá má einnig búast við jayne mansfield bleika efninu til landsins (hætt var við yoko ono gulan). Viðar Þorsteinsson hjá Nýhil er búinn að vera ræða við safnið um að skáldasamtökin geti haldið árshátíð sína í salarkynnunum, um er að ræða tvö upplestrarkvöld sem haldast í hendur við fyrirlestraröð þeirra í Norræna Húsinu. Okkur líst vel og Ragga líka. Hann sér ekkert því til fyrirstöðu að inní verkinu hans fari fram ljóðaupplestur. Í gær prófaði Huginn ýmsa útreikninga að kostnaðaráætlun fyrir næsta ár. Ljónið hljóp ýmist rammvilt í rokinu og upplifði að lífið er fallinn víxill eða að Bónusgrísinn sé marineraður í gulli og tilbúinn á grillið. Skammt er stórra högga á milli. Á milli gjaldþrots eða alsælu.
föstudagur, 14. sep 16:26
Andrea, Nína og Serge funduðu um peningastöðu safnsins í morgun, og er hún grafalvarleg,blóm og kransar þó vinsamlegast afþakkaðir. Fjölnir kíkti við eins og í gær og fékk sér einn kaffibolla. Er hann mjög svag fyrir hangsinu. Serge tók myndir af rýminu fyrr utan og sendi á Rebekku Ragnarsdóttur hjá CIA, en verið er að útbúa kort af sýningarstöðum í Reykjavíkurborg! Einning tók Serge videó af sýningunni sem innan skamms verður frumflutt á YouTube (minnum þá aftur á Nínu í ruglinu með Eddie Brickle and The new bohemians). Ragnar Jónasson kom og kíkti á myndirnar sem Ívar Brynjólfsson ljósmyndari safnsins tók um daginn. Andreu fannst myndast sterk tenging á milli Nóí át og sýninga Geggerts Péturssonar sem sýnir nú á 2 helstu sýningarstöðum landsins þ.e Kjarvalshúsi og Ingólfsstræti8. Búist er við Ragnari Kjartanssyni heim af Prince tónleikunum í dag og er mikill spenningur vegna þessa, getum við ekki beðið eftir því að fá hann í hús. Nokkrir gestir hafa komið í dag og einn þeirra vildi eingöngu skoða verk Ragnars Jónassonar en leit ekki við restinni. Sævar Karl og frú mættu í gærkveldi á sýninguna, voru þau ægilega hrifin af maleríinu. Unnar sendi til baka texta sem honum var falið að lagfæra og hefur hann aldrei verið betri, textinn er um safnið,hlutverk þess og sögu. Mun hann fljótlega verið prentaður út og dreifður til gesta safnsins. Nína er búin að vera á 2 og hálfs tíma fundi með Hönnu Styrmis og leynigest, beðið er fregna.
fimmtudagur, 13. sep 14:20
Undirbúningur fyrir sýninguna hans Ragnars Kjartanssonar er á fullu. Frést hefur að Harry sé búinn að panta efni og upptökur fara senn að hefjast. Ragnar Kjartansson er þó staddur í London eins og á Prince tónleikum ásamt fríðu föruneyti og kemur hann til landsins á morgun til að ræða við stjórnina. Ragnar hefur úr 3 litum að velja í sambandi við efni, Jane Mansfield bleikt, Kleópötru túrkisbláann og Yoko Ono gulann. Ýmsar stórkarlalegar hugmyndir um titil eru á vappi en kannski verður Ragnar fyrir áhrifum við valið á Prince tónleikunum. Davíð Örn einn sýnenda á No Way Out mætti með leikskólahópinn sinn og leiddi börnin um sýninguna og sagði þeim frá verkunum og voru herlegheitin tekin upp fyrir þáttinn Fyrstu skrefin á Skjá Einum. Gagnrýni um sýninguna kom í dag frá góðvini málverksins Ransú og fór hann heimspekilega og sögulega yfir þróun málverksins frá abtrakt expressioninsma yfir í poppið og þaðan á miklu skeiði inní samtímann. Manni datt í hug ódauðleg orð Helga Björnssonar Sýra-nostalgígja. Sara og Ólöf Björnsdætur ekki systur þó nema í listrænum anda kíktu í heimsókn og ræddu fyrirhugaða sýningu sína á vegum Nýlistasafnsins. Þar voru ræddir ýmsir möguleikar á samstarfinu og var reynt að fá þær til að endurflytja gamla gjörninga í bland við ný verk. Við sjáum til hvað verður úr þessu hjá þeim stöllunum. Unnar er í stöðugu sambandi við stjórnina frá Atlanta í leit að verkefnum til að sinna. Eru honum send ýmis viðfangsefni sem hann glímir nú við milli þess að hann skiptir um stöðvar á gervihnattasjónvarpinu sínu. Glitnir kom í heimsókn í dag þ.e Pétur og Vala og voru þeim kynnt plön næsta árs, leist þeim gífurlega vel á og vilja taka þátt. Eiríkur frá Rannís kom á fund við Nínu og Tinnu og miðjum klíðum kom Fjölnir tattó og heilsaði upp á mannskapinn. Dóra og Henrik frá frá arkitektastofunni Kanón komu með teikningar af fyrirhuguðum breytingum á rými safnsins og sögðu okkur í þaula frá hugmyndum sínum. Var það ægilega gaman og æstist Andrea sértaklega upp við skrifstofu hugmyndir og leyni fundarherbergi. Einnig sýndu þau stjórninni hvernig þau vilja leysa geymslumál safnsins, féll það í góðan jarðveg. Með hugmyndum þeirra mun komast meiri skipulagning á safneignina. Sjáið Nínu í flottum fíling í laginu What I am með Eddi Brickle and the new bohemians á youtube. Ekki gleyma Unnari á youtube í sketsinu Blackberry Intervention.
föstudagur, 7. sep 15:00
Stjórnin fundar grimmt þessa daganna í sambandi við næsta ár,þ .e afmælisárið. Árið hefur verið kallað ljónið í vindinum eða Stofnfrumur 2008. Fundirnir hafa verið mjög árangursríkir og er að myndast skipulag. Unnsi er farinn úr landi og kemur aftur 6.október. Honum hafa þó verið falin nokkur verkefni enda er hann stór hlekkur í Nýlistasafnskeðjunni. Verkið hans Benny er sífellt að hrynja af veggnum og hafa Ragnar og Mummi þurft að koma í nokkur skipti til þess að laga þau. Ætlar Benny að gefa safninu teikningu og mun hún bætast við í gin ljónsins. Færópró verður á laugardaginn kl 15:00 og eru allir velkomnir. Beðið er eftir að hópurinn mæti til þess að hengja kynningarefnið upp, gestkvæmt hefur verið á sýningunni og prentaði Serge út annan bunka af sýningarskránni en var hún mjög vinsæl á opnuninni, enda vinsælir drengir hér á ferð. Ragnar Kjartansson hefur verið tíður getur í vikunni og er nú undirbúningur hafinn á risavöxnu verki hans fyrir safnið. Mæld var lofthæð og gólflengd og er aðstoðarmaður hans Harry Jóhannssson á fullu að finna efni og sníða ákveðna hluti fyrir verkið. Huginn heyrði brot af útsetningu Davíðs Þór fyrir verkið og er mjög æstur. Leiðsögn var í safninu fyrir annars árs nema í listaháskólanum, nemendurnir eru í námskeiðinu Flötur hjá Einari Garibalda. Tóku Ragnar og Benny á móti hópnum og var mikið spjallað um verkin. Vill Nýlistasafnið sérstalega minna á stórmerkilega sýningu Gabríelu Friðriksdóttur og Einars Þorlákssonar í Listasafni Árnesinga sem opnar á morgun kl 16:00.
miðvikudagur, 5. sep 12:39
laugardagur, 1. sep 12:24