fimmtudagur, 18. des 17:06
Andrea fyrst, langfyrst. Fyrst of fremst. Óð eftir undirbúning á flutningum uppí Garðabæ. Hún hóf að gera skýrslu fyrir Safnasjóð sem safnið á að skila 10. jánuar. Skýrslan er fjölþætt en snýst aðallega um að greina frá því í hvaða verkefni rekstrarstyrkurinn fór í. Þau eru mýmörg í kringum safneignina og skjalasafnið. Nína kom á Land Rovernum frekar snemma á hennar mælikvarða. Andrea tók hana á teppið varðandi hugmyndir um framtíð Nýlistasafnsins. Sjóðandi heitar umræður brutsust út á milli þeirra enda er ýmislegt áhugavert í farvatninu sem vert er að ræða grafalvarlega um. Tinna mætti í mðjum klíðum og hellti olíu á eldinn og skíðlogaði grilið á endanum. Eftir umræðurnar um framtíðina barst talið að ársuppgjörinu (ma í formi plakats sem sent verður félagsmönnum) og hvernig árið ætti að vera gert upp gangvart stjórninni og starfsmönnum safnsins, það sættir sig ekki við eitthvað plakat (þó að það sé frábært). Stungið var uppá jólabónus. Það var ákveðið. Kippa af bjór og karton af grænum Gold Coast. Dísa, Elín og Hildur urðu himinlifandi og skiptu út nokkuð mörgum verkum í óþekktu sýningunni og hófu undirbúning fyrir verðlaunaafhengingu Bókmenntasjóðs. Andrea hringdi í Unnar til USA og bað hann að bera kennsl á nokkur verk og Valdís Óskars bar einnig kennsl á verk. Ási, Raggi og Pepsi Max mættu hressir uppúr hádeginu, rigguðu upp mixer, græjum og hátölurum í Hangsinu. Pepsi skellti nokkrum lögum á fóninn og var soldið skeptískur á snúrumálin og annan hátlarann. Það var þó í lagi og ræddu þeir um staðsetningu á stemmingunni sem mun breiða sér um allt safnið útfrá Útúrdúrnum. Siggi kom í Dúrinn, fyrsti í langann tíma og tók til hendinni. Nýtt efni barst. 8 eintök af nýju verki frá Hörpu Árnadóttur. Eitt eintak fór inní bókverkaeign Nýló. Huginn mætti pinku sósaður úr hádegismat. Stútfullur af sveskjufylltum grísmedalíum í rouqe-fort sósu tók Huginn saman verkin eftir Díter og sjálfan sig fyrir sendingu suður. Klukkan þrjú voru styrkveitingar úr Bókmenntasjóði. Fimm manns fengu styrk, ma góðvinur safnsins Raggi Braga frá Lýrík sem lét ljós sit eftirminnilega skína á sviðinu hans Kalla Holmqvist um árið. Strykþegar lásu uppúr verkum sínum og sötruðu hvítvín í góðu stuði. Tobba og Kristján Ara höfðu boðað komu sína en bailuðu. Tobba var víst á kafi í kosningu á Alþingi og Kristján í Kaupþingi (sem nú ætlar víst að breyta nafni sínu aftur í Búnaðarbanka). Afhendingin smýgur svo inní útgáfupartíið hjá Ása og félögum. Þess má geta að þeir félagar eru búnir að fagna snjónum eins og viteysingar. Enda heitir bókin einmitt Díana í snjónum.
 
þriðjudagur, 16. des 16:51
Tinna mætti eldhress í morgunn að garfast í skjalasafninu að vanda. Hún er að taka saman umfjallanir um starfsemi Nýló í dagblöðum landans frá 9. og 10. áratugnum. Það gengur frekar hægt og líður eins og hún sé föst í tíma. Svo er bumban að stækka svo um munar. Dísa hjálpaði henni mikið að dobbultjékka upplýsingarnar sem fundust á gagnaveitum og sjá hvort eitthvað fyndist nú þegar um viðburðina sem skutu upp kollinum. Andrea var í fríi í dag og var heima að pakka búslóðinni sinni. Hún ætlar að flytja í nýuppgerða glæsivillu sína í Garðabænum um helgina. Villan ku vera spitting image af D-Salnum í Hafnarhúsinu. Grá og brúntóna með olíubrák, muskulytkandi og sækadelik. Nett eins og Coco Chanel á sýru. Mjög spennandi. Hún ætlar að vera með ilmvatns og fataframleiðslu í kjallarnum. Elín var líka í fríi. Hún er ekki að flytja heldur að lesa undir próf. Huginn kom eftir hádegi, hringdi í Helga listaverkaflutningamann um flutning á verkum eftir sig og Díter Rót á sýningu í Melbourne með Franz Graf og tók saman lista yfir bókverk í eigu safnsins frá Kidda Gúmm. Hann kom við á laugardaginn var og bað um lista svo hann gæti séð hverju hann gæti bætt við í eignina. Nína fór mjög mikinn í dag, var inn og út. Td hringdi Kastljósið og vildi fá í settið með Snorra í uppgjör útaf inngripi Landsbankans inní opnunarhátíð Klinksins um árið. Nína neitaði því. Ási náði þó skottið á henni og fóru þau yfir málin fyrir útgáfupartíið hans á fimmtudaginn. Það verður rosa góð stemming og hefur Pepsi, öðru nafni Dj Musician bæst í hópinn en hann ætlar að spila ýmis remix eftir sjálfan sig af uppáhalds lögum Díönu Prinsessu. Svo verður kaffi og hvítvín. Engar snittur, en Andrea hafði vonast til í leyni að skella í nokkrar brauðtertur með Halla Jóns, Jóni Atla Hairdoctor og Dj Margeir. Það verður kannski gert fyrir ammæli Nýlistasafnsins sem frestaðist á dögunum. Halli kom við seinni partinn og kíkti á bókverkasýninguna og þreifaði á nokkru góðum bókum í Útúrdúr. Spjallaði við Huginn um stöðu Listaháskólans, brottfall úr námi, rómantískar sýnir nemenda um hvaðan hugmyndir koma og nauðsynin á að verbalísera þau.
 
mánudagur, 15. des 16:25

Smelltu

Nokkrir hressir í eftirápartýinu sem Birta og Unnar skelltu sér í síðasta laugardag.

 
mánudagur, 15. des 15:49
Unnar var flengdur í morgunn. Hann er að stinga af til Atlanta í dag og kemur ekki aftur fyrr en í febrúar. Andrea og Karlotta trylltust og flengdu kallinn í drasl. Unnar mun hafa komið við aður en hann fór út á völl og byrjaði að skamma Andreu og Lottu en þá réðust þær á hann. Hann mun sakna Betu Buff, en hann deitaði hana in the early nineties. Eftir að Unnsi fór með rauðan bossann, vel flengdur, talaði Andrea lengi við Lottu um strákamál, en Lotta saknar Pelle, sem hún deitaði late eighties/early nineties. Lottu finnst nú úrvalið hérna heima ekki uppá marga fiska. Jón Viðar Jónsson kom í hádeginu með Tinnu að kíkja á heimildir um tilraunaleikhópinn Grímu, sem Magnús Pálsson var hluti af in the early sixties. Nýló á nokkra kassa stútfulla af drasli: ljósmyndir, skissur, leikskrár, leikhandrit og fleira. Sumt m.a.s í mörgum eintökum. Jón rekur Leikminjasafn þjóðarinnar og slefaði yfir kössunum. Hann vildi taka allt efnið en Tinna var ekki á því. Þau munu taka nokkra samningsfundi. Nína sótti Bjössa Rót á BSÍ í morgunn og skelltu þau sér á nokkra kjamma og kók og brunuðu svo uppí LÍ á leynifund með Posapos. Ákveðið var að fresta ammælisveislu safnsins, en félagsmenn gáfu skít í veisluna. Nema dívan Erla sem var komin á kaf í skipulagningu. Huginn hringdi í Kidda Harðar og forvitnaðist um sýningu þeirra í Hoffmanns Gallerí á heimildum um listamannarekna starfsemi seinustu ára. Kiddi ætlar að undirstinga liðið sem á heimildarnar um að gefa þær til Nýló þegar sýningin verður tekin niður í janúar. Andrea hringdi í Ása og bauð honum að halda útgáfupartí á bókinni sinni um Díönu Prinsessu sem að Raggi Kj myndskreyti. Þess má geta að Díana rændi einmitt Dodi af Mæjonessunni back in the days. Ási tók mjög vel í boðið og riggaði strax upp gestalista. Á honum er nokkrar heitar sem hann deitaði back in the nineties, en þá var hann The It Boy. Þær eru ma: Oddný, Hekla, Hanna Styrmis, Gunnhildur, Elín Hans, allur Gjörningaklúbburinn, útúrdúrskvísan Hildigunnur  og síðast en ekki síst Sarah Lúkas. Það verða bara stelpur í boðinu. Nokkrum nýjum heitum verður boðið ma galleristanum Sigrúnu Söndru, ungstirninu Jónu Hlíf, grasrótarpíunni 2008 Björk Viggós og einni gamalli og góðri Freyju Dönu (sem nú sýnir í Listhúsi Ófeigs). Í enda dagsins hringdi Höfuðborgarstofa og buðu safninu gull og græna skóga til að taka þátt í Safnanótt 2009. Andrea brjálaðist og skellti á. Í lokin fann Tinna qrein í Mogganum frá 17. janúar 1981 um bók sem Nýló gaf  út eftir Ástu Ólafsdóttur. Þögnin sem stefndi í nýja átt. Greinina skrifar Hans Kristján Árnason og hefst hún á þessum orðum: "Út er komin bók - ef bók skyldi kalla - fyrir Karla. Út er komið ritverk - ef ritverk skyldi nefna - nafnsins vegna."
 
mánudagur, 15. des 11:40
Brotist var inn í safnið í síðustu viku. Hringt var í Andreu um tvöleytið aðfranótt fimmtudagsins og henni tilkynnt að það væri búið að brjótast inn og þyrfti hún að drífa sig á staðinn.  Hékk hún með CSI liði lögreglunnar fram á morgun að fara yfir fingraför, fótspor og annað. Ekkert var tekið nema nokkrir hundraðkallar úr Útúrdjús kassanum, Dieterinn var látinn vera. Allt var í gelerbrotum, hurðin ónýt, en verkið hans G.Unnar rétt slapp við skemmdarverkin. Daginn eftir gaf eitt vitni sig fram, ungur drengur sem býr í nágrenninu sagðist hafa heyrt ófögnuðinn en gat ekki borið kennsl á innbrotsmanninn. Stjórnin þurfti á áfallahjálp að halda, hringt var í vinnustaðasálfræðing sem huggaði liðið og stemmdi það upp fyrir lokafund vinnufundahrynunnar sem stóð alla síðstu viku. Fyrst kom Ámi og sýndi Tinnu, Andreu og Unnari glæsileg vinnuplögg að 30.000 ára sögu safnsins og hoppuðu þau af kæti yfir þessum áfanga. Strax var farið að undirbúa næstu bók 30.000 ára safneignarsögu safnsins sem áætlað er að komi út eftir eitt ár. Því næst var fundað, mega trúnó, allir opnuðu sig, allir sögðu þar sem þeir vildu segja, allir hlógu og allir grétu. Andrea og Huginn geta ekki hætt, þau eru búin að reyna að slíta sig lausa en geta það ekki, Nýló er lífið einn hlutur-eitt líf. Eftir fundinn mætti Ingólfur og var með með leiðsögn og spjall um bókverkasýninguna. Aldrei hefur verið eins vel mætt á leiðsögn hjá safninu, heilir 20 manns og fór Ingólfur á kostum. Þar mátti sjá góðvin safnsins Rannver og nokkrar aðra góða. Því miður var ekki eins vel mætt á leiðsögn Daða daginn eftir en lét hann það ekki á sig fá og fór á rosalegt trúnó með Dísu, Unnari og sænskum skiptinema um karma sútra við mikinn fögnuð. Seinna um kvöldið var haldið á jólahlaðborð Nýlistasafnsins, Smörrebröd, Gammel dansk með öllu tilheyrandi. Formaðurinn lét sig þó fljótlega hverfa eftir matinn inn í myrkið, en restin fór á Holtið og pantaði margar flöskur af eðalkampavíni á kostnað safnsins án þess að fá leyft frá formanninum. Þar hélt sko trúnóið áfram. Lotta var tekin á beinið fyrir utan Holtið en nokkrir góðærishundar spurðu hana spjörnunum úr um Nýló og vissu alltof mikið. Höfðu þeir miklar áhyggjur af næsta ári og áframhaldandi safneignarvinnu. Hrökklaðist Lotta til baka inn eftir þetta rosalega samtal og þurfti strax að panta aðra gula ekkju. G.Unnar varð brjálaður þegar Barónskinsku partíð barst í tal og vildi að við viðurkenndum öll að við værum aular og að við reyddum okkur algerlega á skinkuna þegar kemur frægð og frama. Sjálfur þykist hann ekkert með það vilja gera, en mætti þó samt bara í 10 mínútur, en hans móttó hefur lengi verið "10 mínútna frægð". Haugurinn var óvenju rólegur og sæmdi sér vel inn á Holtinu í glænýjum jakka frá Jóni Indíafara en hefur hann ráðið Raven úberstílista eftir marókkó hornin í skinku partýyinu. Eftir nokkrar góðar reyndi stjórnin að komast inn á tónleika á kúbar en það lítur út fyrir að enginn í stjórn safnsins sé nógu frægur því hurðinni var skellt á hópinn. Eftir það fóru Huginn og andrea heim en Birta og Unnar héldu áfram fram á rauða nótt og enduðuð víst í eftirpartýi hjá Orville afró dansara.
 

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 
þriðjudagur, 9. des 11:59
Bókverkaopnunin gekk glimrandi vel um helgina og eiga Þorvaldur og Dísa hrós skilið fyrir frábær vinnubrögð. Gestir voru mjög hrifnir af baðstofunni sem búið er að setja upp við anddyri safnsins en þar er hægt að setjast niður og kíkja í íslensku bókverkin sem safnið á. Föndurhornið sló líka í gegn og er það mjög barnvænt, hvetur stjórnin því foreldra landsins til þess að kíkja við og leyfa börnum sínum að búa til eitt stykki bókverk. Hildigunnur var mætt eldsnemma á laugardagsmorguninn að stilla upp útúrdúrnum sem hefur aldrei litið betur út. Skellti hún upp glæsilegum límstöfum eins og ekkert væri og hefur kofinn hans Unnars fengið samastað í versluninni, en hann er nú í eign Nýlistasafnsins. Andrea, Elín og Hildur hituðu kaffi og buðu upp á kleinur við mikinn fögnuð viðstaddra. Vinsælasti liður opnunarinnar verður þó að segjast vera óþekkt verk úr safneigninni sem stjórnin hafði still upp í leifunum af sýningunni OPEN í innsta rými safnsins. Pingó var boðaður rétt áður en opnaði og bar hann kennsl á mikið af verkunum. Aðrir sem vissu ansi mikið voru Eggert Péturs, Halldór Björn, Hann Styrmis og óþekktur maður í svartri kápu. Kom þá upp úr krafsinu að safnið á verk eftir stórstjörnurnar Felix Gonzales Torres og Söru Lúkas. Nokkur eldgömul og eldhress verk eftir allskyns listamenn voru mikið rædd og bar Súmið gamla og góða oft upp á góma. Við lok opnunarinnar mætti listakonan Imma alveg brjáluð og úthúðaði listamönnunum fyrir að vera ekki að mótmæla eins og alvöru fólk viðbrögðin voru engin og þurfti að bera Immu út í hamagangnum. Bjargey mætti eingöngu í þeim tilgangi að komast að því hvar stórdansleikur nessunar yrði seinna um kvöldið og vildi enginn gefa það upp enda um stærsta partý Íslandsögunnar að ræða (sjá bloggið hér á undan).
 
mánudagur, 8. des 17:00

Slegið var til veislu um helgina. Út á ystu nös með Nessunni. Von var á nokkrum gömlum erlendum hundum en þeir mættu ekki. Nóg var þó af gömlum íslenskum hundum. Silfurrefum. Nessan saknaði Dodi Al Fayed, en hún deitaði hann víst in the eitís. Formaðurinn skipulagði herlegheitin og hafði í nógu að snúast að halda í skottið á kallinum sínum, sem nota bene er 7undi besti listamaðurinn í heimi. Hlynur Halls er númer 137.000, en hann mætti ekki í veisluna reyndar. Christoph var í tíunda sæti á sósulista kvöldsins. Sýrður rjómi. Doddi á RÚV er í níunda. Létt sveittur með mæjónes í hárinu. Skartgripahönnuðurinn Geggi vaggaði með töfrasmárann sinn um hálsinn og heimsfrægt krútt var með ennþá með töfrafjaðrinar í hárinu eftir lokatónleikana að hellandi glimmer yfir liðið um ellefuleytið. A. S mætti óvænt ásamt fleirir rithöfundum, óboðinn og hress. Hann gúffaði pullunum í sig á pullunni. Á methraða, enda aldrei komist í eins feitt. Pullurnar voru dregnar fram um 3leytið a la brúðkaup Ingibjargar og Jóns Á. Löðrandi feitar, eins og Finnur Bogi (áttundi) sem kom með sína eigin púrtvínsflösku til að skola þeim niður með. Í 7unda er Ninski. Hún á atriði kvöldsins, en hún tók einn hressan einkadans á gólfinu (þakin glimmeri eftir Jónsa) fyrir framan silfurrefina. Svo átti hún nokkra fleiri góða við hin og þessi tækifæri. Kolli var líka soldið góður, fór snemma úr að ofan og reyndi að koma Ara Alexander úr að neðan þegar krakkarnir í Hjaltalín spiluðu Þú komst við hjartað í mér. En kemst varla á lista þó. Mundi toppar hann. En hann fannst ber að neðan í Marokkó-horninu sem uber stílistinn Raven skellti í með hlutum úr Jómi Indíafara í Kringlunni. Töffstöff. Marokkóhornið var hálfgert shrine til að minnast ammælis Nessunar í sumar. Það var einnig varpað nokkrum góðum myndum úr ammælinu á einn vegginn. Svona til að komast í fíling og fyrir þá sem ekki var boðið í það partý. Þar mátti sjá einn gamlan hundinn sem bailaði á þessu; trommarann í Queen. Frikki Þór komst í fíling en sérstaklega Fríða Björk sem fann loksins ástæðu til að lyfta sér ærlega upp, en henni hefur leiðst alveg hryllilega síðan hún fór að sjá Mamma Mía. Hún fékk sér engar pullur, enda fílar þær ekki. Það voru hinsvegar margir sem röðuðu í sig með Andra. Sumir voru hinsvegar pinku saddir eftir fiskisúpu sem Dorrit kom með. Hún var borin út í kaffibollum rétt á undan pullunum. Það komu allir sem ekki ætluðu ekki að koma. Létu sjá sig. Enda mikilvægt. Láta sjá sig og sjá aðra. Skandalinn á þó Sjúkraliðinn sem mætti drulluseint og drullufull. Borinn inná börum og út á þeim aftur.

 
föstudagur, 5. des 15:29
fimmtudagur, 4. des 12:09
þriðjudagur, 2. des 10:02