G.Andý er mjög hress þessa dagana. Hún hefur haldið dampi í að mæta eldsnemma og manna hressust í (svíðandi) morgunsárið. Spurning hvort það sé Ajax drykkjan. Huginn mætti klukkan níu, sem er mjög seint í Andreu bók, og ræddu þau um næsta sýningarár, umsóknir um sýningar, félagatalið, stöðuna á bankareikningum, niðurtöku á sýningu Karls og möguleikan á að framlengja henni, stafsetningarvillu í nafninu hans á heimasíðunni sem hann varð æfur yfir, þrifplanið og væntanlega sýningu Þýzkanna á bókverkum Dieters sem opnar á föstudaginn. Huginn fór aðeins yfir texta sem þær skrifuðu og lagfærði og eru þær að setja saman lítinn bækling um verkefnið. G.Andý sendi netboðskort í dag. Í kjölfarið tók Hugo niður heimildarnar um gjörningana af rauðvínsveggnum og hugsaði um að nú þyrfti að spýta aftur í lófana með söfnun á heimlidum. Harpa Þórs er enn með efni úr arkífinu eftir heimsókn sína um daginn. Gandí fékk mail um að laga gögnin sem send voru til Ríkisskattstjóra og er hún komin með mikið leið á ársreikningnum. Hundleið. Nía er í fríi. Dúndurfríi í sólinni á Seyðisfirði. Ghandí þrufti að ná í hana í gær. Gabríela svaraði í símann og sagði að Nía væri útí sjó. Eins og selur. Unnar er á leiðinni frá Sigló, kemur á stjórnarfund á morgunn með svartfuglsegg úr Grímsey áður en hann drífur sig til Nef Jörk. Þar er hann að sýna með mörgum kanónunum í risavöxnu gallerí og gistir á Chelsea hótel, hvorki meira né minna. Dettur í það og fær sér í haus. Hver veit? Hlynur Halls kom í hádeginu og spjallaði við Hugo og Andí um væntanlega grasrótarsýningu á Hjalteyri og sýninguna sína í Nýló í ágúst. Hlynur reifaði margar hugmyndir varðandi sýningarnar. Styrkjamál voru rædd í þaula fyrir grasrótina og mikilvægi þess að smala tilvonandi sýnendum norður á eyri sem fyrst og skoða síldarverksmiðjuna, þar sem sýningin fer fram. Hryllilega spennandi og gígantískt húsnæði með skrilljón möguleika og merkilega sögu. Hún var byggð kringum 1938 og var á sínum stærsta síldarverksmiðja í evrópu. Hún var steypt um vetur svo að það þurfti að hita steypuna meðan á byggingu stóð. Sýnendur og fleiri mál eiga öll eftir að koma í ljós á næstu dögum. Hlynur mun ekki vera sýningarstjóri heldur tilnefndi hann Þórarinn Blöndal. Tinna kom um tvöleytið og heldur áfram að vinna við bókina góðu. Hún ljósritar aðalfundagerðir í massavís, skýrslur stjórnar og nótar hverjir eru í stjórn hverju sinni. Þetta er byrjunin á gagnagrunni Nýlistasafnsins um sýningahald síðastliðin 30.000 ár og góður grunnur fyrir bókina. Tinna hringdi í Jóhönnu, 25 ára gamla stúlku úr listfræðideild HÍog formaður stjórnar Artímarits og ætlar hún að vera Tinnu innan handar í þessu verkefni. Ingólfur kíkti á Þýzkurnar í enda dags og rakti úr þeim garnirnar varðandi bókverkasýninguna. Hann mun hugsanlega vera með leiðsögn við opnunina á föstudaginn en er ekki viss. Kannski verður að finna einhvern annan.
Þessi vika hefur ekki verið eins kyngimögnuð og sú síðasta en eru nær allir stjórnarliðar flúnir út um allt, Huginn, Lotta og G.Unnar eru að setja upp sýningu rétt fyrir utan næst stærstu borg á Íslandi Akureyri sem heitir Hlass en Huginn lét sér það ekki nægja og sýnir einnig í hinu víðfræga Dalí gallerý með ungstirninu Yohanna Hleif þar sem búast má við stófenglegri Bagettu beint úr heitum Dominos ofninum. Hvetur stjórnin alla til þessa að mæta á þessar stórufínu sýningar. Andrea og Nína urðu eftir í bænum og sitja uppi með sveitta smiði frá Yðar ósk í Svið sem vaða inn í safnið allan daginn að tengja rafmagn o.fl. Blikka þeir stúlkurnar óspart enda eru þær alltaf mættar í hælum með Gucci sólgleraugu. Lærlingurinn Elín elti hópinn norður enda er hún mikill aðdáandi verka stjórnarliðanna og gat ekki hugsað sér að missa af þessum sýningum. Áður en hún fór í frí skúraði hún safnið hátt og lágt ásamt móður sinni og glansaði það eins og eins og nýstrokinn grís þegar Andrea mætti til vinnu á miðvikudaginn. Nína hefur verið að planleggja dagskrá sviðsins næsta laugardag og verður hún aldeilis glæsileg en þar stigur á stokk Ási ásamt nokkrum vel völdum konum sem þekktar eru fyrir allt annað en tepruskap en þær eru: Sahara, Begga F., Hulda Vil og Imma. Sverrir Sveinsson prentari sem prentaði mikið fyrir Dieter kíkti við vatnsgreiddur og talaði við Dísu og co í heila fjóra tíma og kom hann með mikið af góðum sögum af kappanum og hvernig prentunin fór fram. Sýndi hann flotta mynd af Dieter að mála á ofn og hló mikið að uppátækjum hans. Óli vörður kíkti við eins og hundur í vindinum og hughreysti hópinn af sinni alkunnu snilld. Andrea er að laga bókhaldið og verða ársreikningar sendir Ríkisendurskoðun eftir helgi.
Huginn las upp allar sýningar,sýnendur, umsjónarmenn og aðstoðarmenn og af hvaða tilefni sýningarnar voru frá því að Nýlistasafnið var 10 ára 1988 til ársins 1993 þegar safnið varð 15 ára. Þær er að finna í 15 ára afmælisbækling Nýlistasafnsins sem Birgir Andrésson sá um að hanna.
Hugleikur Dagsson las 2 ljóð eftir sjálfan sig, annað var klámfengið en hitt söng Hulli hástöfum og fjallaði um litlu stúlkuna með eldspíturnar.
The mysterious Richard Foley las í lófa áhorfenda við mikinn fögnuð og talaði fólk um mikla hæfileika Richards.
Sigurlaug Gísladóttir fór frá hvísli yfir í hátíðni öskur í gegnum míkrafón og ýmsar tölvugræjur, svo að safneignarhillurnar skulfu.
Gunnhidur og Kristín Ómars lásu upp ægifagran ljóðsbálk eftir Gyrði Elíasson, dagurinn sem fannst ekki á almanaki. Eftir langa þögn hóf Kristín lesturinn og las hún alla hlutanna nema einn. Á meðan skalf Gunnhildur og titraði með tárin í augunum.