þriðjudagur, 29. júl 10:25
Elvar Már Auxpan reif niður skávegginn inná skrifstofu á laugardaginn og vegginn inní litlu skonsurnar fyrir aftan. Hann var ekki nema þrjá tíma að drompa þessu niður. Unnar kíkti á framkvæmdirnar og var himinlifandi með drenginn og vildi ráða hann strax í vinnu til sín. Í gær var svo tekið til við að tvista leifunum út. Sextán gufubaðsveggir frá Hildigunni voru færðir út í sal og var mikið hugsað um hvað ætti að gera við þá. Veggirnir voru smíðaðir til að skerma smámunasýninguna hennar í byrjun árs og áttu að vera hreyfanlegir og jafnframt nýtast fyrir aðrar sýningar í safninu. Það hefur hinsvegar ekki gerst og óskar stjórnin þess að veggirnir verða brotnir niður í kassa undir listaverk. Nema að Hlynur geti byggt sér eitthvað. Það fannst ýmislegt í hillunum í fyrri skonsunni og svo inní geymslunni. Td fann Andrea tvö málverk í kassa eftir eina japanska dúllu sem gleymdi kassanum inná skrifstofu fyrir ári síðan og Huginn fann nokkur mótorhjólaboots frá Nínu og myglaða strigaskó. Unnar og Karlotta færðu til hvítar hillur bakvið og skrúfuðu glerhillurnar niður. Tinna tók tómar möppur úr tréhillunum og henti þeim og setti verkið...eða sýninguna hennar Heklu um árið út í sal með von um að verkin verða loksins tekin til síns heima. Nína og Andrea skúruðu og Dísa og Richard hentu leifunum af veggjunum útí bíl. Í nýrri skrifstofu tók Andrea til hendinni við að svara tölvupósti, far ayfir reikninga, ráða Lalla Vill í vinnu sem bókara og fór með verkin hans Kalla Hólmkvist í póst. Annars voru allir hálfþunglyndir og stakk Andrea uppá að stjórnin færi í sjúkraþjálfun.
föstudagur, 25. júl 16:25
Svissneskir ferðalangar mættu á slaginu níu og hafa gestir aldrei verið svona snemma á ferðinni fyrr. Unnar var rétt mættur að hita te og kveikja á tölvunni. Eftir leiðsögn, eða í miðri leiðsögn kom Huginn og Unnar dánlódaði gagnrýni á íslensku sýningarnar sem nú standa yfir í New York. Gagnrýnandanum fannst allir vera innblásnir af víkingum og eldfjöllum og hinir minna þekktu listamenn, sem nú sýna útum alla borgina kringum fossana hans Ólafs, gerðu óspart grín að honum. Væru að pikka í Ólaf og minna hann að myndlist væri ekki einungis sjónhverfingar og sjónarspil. Maggi Páls kom í heimsókn og sagði Unnari, Nínu og Huginn að nú væri alfarið fluttur aftur til Íslands og að við gætum hóað í hann hvenær sem er til aðstoðar, samræðu, hugmyndaauðgi og tedrykkju. Hann er alltaf í stuði. Karlotta kom og Tinna líka og böðuðu allir sig í sólinni og pældu í því hvort að Fríðu Björk hafi raunverulega leiðst svona hryllilega mikið á Abba-myndinni (eins og segir frá í Mogganumí gær). Nína hringdi í Ingunni og spurði hvenær safnið ætti skrifa undir milljónirnar og hvort henni hafi leiðst á Mamma Mia eins og Fríðu. Ingunn var ekki búin að sjá hana enda miklu spenntari yfir Dark Knight. Tinna er eins og leðurblaka í skjalasafninu og er öll að koma til eftir skelfinguna á Hornströndum. Gerla kom í viðtal til Karlottu og Nínu í Játningarklefanum. Sótsvartar í framan ræddu þær um hlut kvenna í íslenskri myndlist. Hvernig og hvort hlutur kvenna hafi breyst mikið seinustu ár og hvað hefur hugsanlega haft áhirf eða orsakað þær breytingar. Eftir viðtalið hringdi Nína í tollverði til að hafa uppá verki Douwe Jan Bakker sem sent var á vordögum í Bard University á sýningu. Það átti að vera komið til baka fyrir löngu og fannst kassinn inní geymslu niðri á höfn.
miðvikudagur, 23. júl 14:23
Huginn og Elín mættu um 10 leytið, eldhress. Elín er komin uppí 430 í skráðum verkum. Handtökin eru að harðna og verða hraðari með hverjum deginum. Rétt eftir ellefu kom risahópur af safnafólki frá vesturströnd Bandaríkjanna og Mexíkó. Nína og Huginn leiddu þau um safnið, fræddu þau um safneignina og starfsemi Nýló, um bókverk Dieters, gjörninga-arkífið og skjalasafnið. Nokkrir katalógar og bækur voru keyptar úr hillunni inná skrifstofu og mikið var spáð í vinnuumhverfið og hvernig safnið tæklaði skráningarferlið sem opinn prósess. Vinsælasti katalógurinn var um sýningu Donald Judd, Richard Long og Kristjáns Guðmundssonar. Hann rauk út. Klara Stephensen kíkti við eftir að hópurinn hvarf á braut í hádeginu. Hún forvitnaðist um skráningarferlið og stemminguna, hvernig gengi og hvaða eða hvort einhver vandamál hafa komið upp. Hún rétt missti af Unnari sem kom galvaskur til að vera með Nínu í viðtali við Áslaugu, fyrrverandi formann Nýló in the nineties um aðkomu hennar að safninu; viðhorf til starfseminnar, styrkleika og veikleika, hvernig hún sæi starfsemina þróast og hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Þegar að laga átti kaffi fyrir Áslaugu komst það upp að Unnar hafði afþýtt ísskápinn og óvart sett kaffikönnuna í uppþvottavélina og eyðilagt. Til að bæta fyrir þau mistök sýndi Unnar fram á að hafa skellt öllum heimildunum um SÚM, Suðurgötuna, Lóu og Rauða Húsið í sér skúffur í skjalasafninu. Það var mikið þarfaverk. Oddný kom við um tvöleytið með snúð og múffu í poka. Hún spjallaði við Unnar um afmælisferlið og sýna aðkomu að því. Hvernig hún sæi það fyrir að skella sér í laugina með stjórninni. Tinna kom um miðjan dag eftir hryllilega svaðilför á Hornstrandir. Tinna missti fjögur kíló og er búin að sofa samfelld í 35 tíma eftir martröðina.
þriðjudagur, 22. júl 13:46
Nína var mætt snemma. Svo mætti Elín dúndurhress að reyna að koma skráðum verkum uppí 410. Huginn mætti um 10, svo Karlotta og svo Unnar með glampa í augunum. Andrea er í fríi þessa vikuna. Unnar svaf ekkert um nóttina, heldur lá andvaka að hugsa um seminarinn sem á stefnuskrá stjórnarinnar við upphaf næsta árs. Hálfgert uppgjör, en meira svona reflection á Nýlistasafnið, safneignina, möguleika, hugsanleg völd safnsins, og það sem meira er á íslenskan myndlistaheim, söguleysi og mýtur í íslenskri myndlist. Unnar svitnaði yfir krítík eða umræðuleysi og lélegum orðaforða eða hugtakaleysi í fagtungumálinu. Karlotta minnti Unnar á að hann kæmi frá skóla sem sáir krítík og ræktar umræður. Grafalvarlegum skólagarði, en hér er innbyggð trú á hið sjálfsprottna, illgresið og andann. Þannig væri myndlistin byggð upp hér. Spurning hvort það sé að breytast. Það var rætt (og vonað). Vonast er eftir gullnum meðalvegi. Unnar lagði fram ákveðnar hugmyndir um seminarinn. Hugmyndir að uppbyggingu dagskrár. Nína hriflaði þær á blað og Huginn og Karlotta kommenteruðu. Unnar benti einnig á nokkra kandidata til þátttöku og var farið á hinar og þessar heimasíður, facebook síður og myspace til að afla upplýsinga um viðkomandi týpur (einnig um uppáhalds mat og önnur áhugamál sem Nýlistasafnið gææti þá höfðað til). Mikilvægasti þátturinn er að góðan mediator eða stjórnanda og skemmtilegt fólk í salinn. Elín komst uppí 406 meðan á umræðum stóð. Í enda fundar stakk svo Karlotta upptöku af einum gjörning ofan í kassa í gjörninga-arkífið. Huginn merkti hann skilmerkilega og Nína neyddist til að fresta viðtali við Áslaugu Toll vegna neyðarfundar á Bessastöðum.
mánudagur, 21. júl 13:31
Klukkan tíu í dag var stjórnarfundur. Andrea, Unnar, Huginn, Karlotta og Berglind sátu fundinn. Nína var í fríi. Unnar var ritari og Andrea var fundarstjóri. Ýmis málefni voru rædd að vanda; mörgu haldið á lofti og annað dregið í efa Þar bar hæst sýningarárið 2009. Mikið púður er í fólki og gaman að ræða og hlusta á hugmyndir stjórnarliða. Unnar vill einungis hafa tvær sýningar á ári. Unnar er kominn með ógeð á stanslausu sýningahaldi. Það er reyndar búin að vera yfirlýst stefna hjá Unnari í um tvö ár. Berglind vill að amk eina safaríka og stóra samsýningu sem gæfi breiða og góða mynd af listalífi þjóðarinnar, hræringum í íslenskum listheimi. Sýning sem yrði stökkpallur inní stærri heim. Sýning þar sem þátttakendur yrðu pikkaðir út og gerðir að stórstjörnum. Karlotta vill að safnið prufaði að vinna sýningu með sýningarstjóra að utan og tækju langan og góðan undirbúningstíma. Það vill Berglind líka að gert yrði í sambandi við Stórsýninguna. Huginn vill Terence Koh og Andrea vill hann líka. Allir eru sammála um að Erlendur Gestur fengi að sýna í Nýlistasafninu. Svo var Grasrót rædd. Styrkjamál, hvar meintur sýningarstjóri væri niðurkominn og hvort að það væri búið að hafa samband við einhverja listamenn. Það er hinsvegar ekkert búið að gerast að því virðist. Að endingu var aðeins farið yfir fjármálin of svo hugmynd reifuð að fá einhvern góðan til að taka að bókhald, td svo að ársreikningum sé skilað á eðlilegum tíma. Eftir fundinn fóru allir heim og Elín var skilin eftir með öll völd.
fimmtudagur, 17. júl 17:52
Stjórnin er búin að rífa niður allt inná skrifstofu og eftir stendur ein hilla. Andrea vill mála hana fallega eða allavega rí-dekóreita; kaupa kannski nýtt skrifborð eða stóla. Kannski sófa. Hún vill fagna skráningaáfanganum almennilega. Sem sárabót, þar sem að stjórnin var tvist og bast yfir hugmyndum Andreu, fékk hún að panta borð á Kaffi Flóru í Grasagarðinum. Fá sér roast beef með remúlaði, lifrarkæfu eða eitthvað annað danskt gúrmeti. Stjórnin átti yndislega stund á Flóru og voru komandi tímar ræddir yfir smurbrauðunum, sósu og salati. Mýmargar hugmyndir kviknuðu. Eftir átið var skellt sér alla leið í Kópavogssundlaug og fengið sér ís hjá Aroni Pálma í Bettís. Hann var því miður ekki við. Gúffuðu Karlotta, Dísa, Elín, Huginn, Andrea og Nína í sig ísnum. Ákveðið var að halda á vit ævintýranna áfram og Nía hringdi í Óla Forvörð. Skellti hópurinn sér á Listasafn þjóðarinnar á glóðvolga sumarsýningu safnsins og sjóðheita leiðsögn. Hún er stórgóð og enn betri undir handleiðslu Óla. Mörg meistaraverkin voru skeggrædd. Verk sem ekki hafa komið fyrir sjónir almennings áður eða í háa herrans tíð. Eftir ævintýrið fór Andrea heim. Restin hélt uppá Nýló og hringdu Huginn og Nína í nokkra góða og bóka viðtöl í Játningaklefann. Áslaug kemur á mánudaginn en Helgi Þorgils og Eggert voru staddir útá landi í laxveiði en vilja koma í byrjun ágúst. Dísa hirngdi í Kidda Gumm og rakti úr honum garnirnar um meintan gjörning hans í heimahúsi árið 1967 með Þórði Ben og þremur konum (þar af tveim þýskum). Fyrsti gjörningur þjóðarinnar (fyrir utan kannksi Kjarval og þátttöku Erró í hinum og þessum í NYC og París). Dísa fékk ágætis lýsingu hjá Kidda. Karlotta leitaði að eins miklum upplýsingum um Guernica hans Picasso sem hún hyggst vinna með í framtíðinni og leitaði logandi ljósi að andpyrnufólki til að kommentara á Nýlistsafnið, hugsjónir, framtíðarmöguleika, frelsi, jafnrétti og bræðralag. Huginn gerði hryllilega langan lista yfir hugsanlega viðmælendur; í Játningarklefann, í bókina, fyrir málþing og hvaðeina. Í skjalasafn framtíðarinnar.
miðvikudagur, 16. júl 17:05
Andrea kláraði loksins ársreikninga ársins og seinasta árs í dag með aðstoð Lalla Vill. Loksins. Stjórnin skrifaði undir og sleikti umslagið. Andrea grét og Karlotta grét af því að Andrea grét. Í hádeginu ljóstraði Elín því upp að nú væri skráningu lokið af um helming listaverkanna. Þvílíkt dúndur. Nína náði í Asti flöskur og Karlotta pantaði peking endur og plómusósu. Elínu fannst mest spennandi að skrá litlu bækurnar hans Dieters en furðulegasta og rosalegasta skráningin hingað til var þegar hún skráði snemm sumars annað verk eftir Dieter sem heitir Hi Fred og er klístraður lakkrís á handunnin pappír með rauðu djúpþrykki. Svo er eftirminnilegt að hafa hriflað efnislýsinguna á hálf-þrívíðu og mjög skondnu verki frá Sigga Gúmm; Het Heerlijke Koffertje, sem er frá árinu 1969......."hárlokkar, vínylplata, sardínudós, kakóduft, brjóstahaldari......". Djúsí stöff. En þægilegast hefur verið að skrá bókverkin að mati Elínar. Það hefur verið rosa gott. Berglind öfundar Elínu að skrá bókverkin og ennþá meira að handleika þau. Berglind er föst við tölvuskjáinn að fara yfir allar ljósmyndirnar úr sögu safnsins í skjalasafninu. Þorvaldur hefur sett tóninn fyrir vinnuna að bókverkasýninguna og er stjórnin á fullu við að standa við stóru orðin. Ferlið byrjar að verað sýnilegt gestum Nýlistasafnsins í enda mánaðarins. Unnar er farinn norður að ná í bílinn sinn sem bilaði á leiðinni á Smámunasafnið við sumarsólstöður. Steingrímur fór með honum og ætla þeir að koma við á Seyðisfirði líka, með smá stoppi á Möðrudal til að smakka reykt geitakjöt. Smökkunin er mjög mikilvægur partur ferðarinnar þar sem verið er að hugsa að bjóða uppá kjötið á afmælishátíð safnsins á haustdögum. Möðrudalur býður einnig uppá ýmsar aðrar geita og lambakræsingar. Nína og Berglind eru komnar á fullt við að skipuleggja hátíðahöldin. Berglind er mikill kostur í slíka skipulagningu enda þaulvön nemendaráðum og ýmsum nefndum síðan í gaggó. Stór hópur amerískra túrista á vegum MoMa kom í heimsókn í dag. Huginn og Nína tóku á móti þeim á meðan að Karlotta faldi sig. Dísa, Elín og Richard sýndu þeim bókverkin, gjörnigaarkífið, vídeóspólurnar og skjalasafnið.
þriðjudagur, 8. júl 08:07
Nýlólífið þessa daganna er hið besta. Unnar kom sveittur af suksess heim frá New York og byrjaði að skipa stjórninni fyrir. Grátbað hann Ghandý sem átti að vera í sumarfrí í eina viku að hætta við það og funda stöðugt. Ninski kom til baka frá Firðinum með berkla í hálsinum og þurfti að legjjast beint í bólið í nokkra daga. Huginn situr sveittur við undirbúining á stórfengelgri sýningu hans í haust og hefur hann ráðið átta pólaskar konur til þess aðstoða sig. Vegna þessarra "forfalla" varð hún Tinna að step-up og vera safnstjóri og tvöfaldur framkvæmdarstjóri í eina viku og stóð hún sig með prýði. Tinny er líka á milljón að undirbúa bókina um 30.000 ára sögu safnsins og var heitur fundur um framkvæmdarferlið haldinn í hádeginu í gær. Stefnt er að að bókin verði tilbúin í lok árs, vonandi kemst hún í jólabókaflóðið. Lærlingurinn R.Foley hefu tekið að sér Myspace síðu safnsins sem hann Surts startaði forðum daga og bætir hann nú við upplýsingum og vinum eins og vindurinn. Hefur hann meira að segja fengið sér myspace-stílabók þar sem hann klippir út athugsasemdir og límir inn, kannski að þetta verði að bókverki og fari í sfaneignina? Játningarkofinn verður aldeilis virktur þessa vikunna en von er á góðum gestum í spjall þar inn. Ninski hefur pantað 8 lítra af lambrusco og mun Unnar beita aðferðum sem kenndar eru við Guatanamo og Abu Grabi til þess að veiða sannleikan um safnið upp úr félögum. Dísa og Elín eru á fullu í nýja málverkinu og var ljósmyndastúdíóið tekið í síðustu viku og er nú glansandi flott og minnir óneitanlega á Ara Magg stúdíóið. Þýskurnar svifu á braut eftir að hafa opnað Dieter Roth bókverka sýningu með nokkur íslensk bókverk í vasanum, verður þeirra sárt saknað.