fimmtudagur, 28. ágú 13:39

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 

 
mánudagur, 25. ágú 10:57

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

Smelltu

 
föstudagur, 22. ágú 13:30

Smelltu

Verk Einars Guðmundssonar bárust frá Stuttgart í vikunni, en er hann mjög eftirsóttur meðal félagsmanna Nýló.

Smelltu

Mjög flott útlit er á verkunum og minna þau mikið á belgíska fatahönnuðinn Martin Margiela.

Smelltu

Hafði einn kassinn beyglast eulítið á leiðinni, en stjórnarliðinn Unnar kepypti það verk með bros á vör.

Smelltu

Andrea og Nína rembast við að setja saman kknord umsókn um málþingið góða.

Smelltu

Verkið hans Hlyns nýtur sín vel á daginn.

Smelltu

Góðar stundir með Bush.

Smelltu

Tekinn var löns eftir yfirferð Hlyns með stjórnarliðum og starfsmönnum.

Smelltu

Veitingar í boði Sandholts.

 
miðvikudagur, 20. ágú 15:25
1986 er ennþá í höndunum á Tinnu á dag. Hana langar í vinnudýr. Tinna er fimm klukkustundir með einn kassa. En hún stefnir á að klára ´86, ´87, ´88, ´89 og ´90 um helgina. Hún ætlar að vinna á Menningarnótt: spóla í gegnum þetta og fá sér eina vöfflu við og við. Annars verður Nýló lokað. Unnar er rosa hress, ánægður að safnið ætli ekki að taka þátt í vöffludeginum og flokkaði ennþá fleiri pappíra frá Nínu og Huginn í dag. Möppuröðin í hilluni er orðin ansi myndarleg og er Unnar orðinn hálfmontin. Sov raðaði hann tímaritunum inná Hangsi í stafrófsröð og varð ennþá montnari. Ámi kom í hádeginu og ræddu þeir saman um krónólógíuna og ýmsar leiðir til að vinna ritið. Áma fannst mikið til skjalasafsins koma en fannst myndaflóðið vera algjör martröð. Skann dauðans. Áma byrjaði að dreyma um vinnudýr. Þau Tinna sáu heila rétt fyrir sér. Eftir langt spjall hlupu þeir félagar út, uppí bíl og brunuðu burt. Tveimur tímum seinna komu þeir til baka með nýja bók sem þeir gerðu saman í tengslum við Losta-arkífið hans Unnars. Eða Girndar-arkífið. Þeir voru með slefið útá kinn og rígmontnir. En þeir mega vera það. Bókin er stórglæsileg í harmonikku-broti. Það er geðveikt. Ákveðið var að rústa því með Krónólógíunni. Dísa og Elín halda áfram skráningarvinnunni og eru nú skráð verk orðin 487. Húbert Nói og Þorvaldur komu beinstífir um miðjan dag og ræddu næstu skref með bókverkin. Huginn vill stela hillu úr geymslunni á bakvið skrifstofuna. Andrea er hætt að mæta á miðvikudögum. Þeir hafa verið mjög erfiðir fyrir hana í sumar og vill hún ekki sjá þá.
 
þriðjudagur, 19. ágú 16:32

Smelltu

Hlynur og Kees rifjuðu upp góðar stundir á Nýló in the 90´s.

Smelltu

Næsti formaður safnsins Unnar Örn og góðuvinur hans að austan Helgi Örn ræddu barneignir.

Smelltu

Bjarni málari tælir unga snót við íslensku bókverkin.

Smelltu

Goddur og Daníel kenndur við KlingogBang ræddu komu fyrst KlingogBang barnsins.

Smelltu

Árni Ingólfs sem á næst flest verk í safneigninni sést hér með syni sínum að glugga í gömul bókverk.

Smelltu

List-túristar flykktust inn og báðu allir um óáfengt að drekka.

Smelltu

Gunnhildur næsti stjórnarliði steytir hnefann framan í ljósmyndarann.

Smelltu

Stórstjörnurnar Birta G. og Sigga B. mættu hressar að vanda.

 
þriðjudagur, 19. ágú 16:11
Andrea, Unnar, Nína, Dísa og Elín komu öll í einum glóandi hnapp í morgunn. Full af jákvæðni. Unnar fór rakleiðis að skrifborðinu og reifa lla post it miðana frá Nínu og Huginn niður (þeir eru aðallega frá Nínu), tók saman alla pappíra og smellti þeim í gatamöppur, setti límmiða með nöfunum þeirra á kjölinn og raðaði möppunum í hillur. Unnar setti upp nýtt kerfi og bannar núna að nota post it miða og vill að allt sé skrifað í þar til gerða bók sem nú liggur á borðinu. Lítill fasisti með som sombreró. Einnig tók Unnar saman öll nafnspjöld og raðaði þeim í bunka. Andrea fékk sér soghurt (sem er soja yoghurt) og fór beint í umsóknarvinnu. Nína lét gamminn geisa á kantinum. Þær eru að gera umsóknir til Þjóðhátíðarsjóðs og Nordisk Kultur Fond. Til hans er verið að sækja um fyrir seminarnum sem fer fram í janúar næstkomandi. Þar verður margt um kanónuna. Núna er verið að skipuleggja þingið og hafa samband við kanónurnar. Umsóknin í sjóðinn litast af því að verkefnið er í mótun. Þannig að erfitt er að fylla umsóknina út. Einfaldar spurningar verða hárbeittar. Tibba fer mikinn í skjalasafninu. Hún er með hendur fullar af ártölum og upplýsingum. Það er mynd að komast á krónólógíuna og þá styttist í að Ármann mæti og taki með sér efni til að setja í bókina: 30.000 ára krónólógíuna. Miklar vonir eru bundnar við Áma og mun Unnar hitta hann á morgunn. Tinna er með rosa flokkunarhendur og er búin að flokka 1980-85 og 1995-2008. Hún er núna að fara yfir 1986. Elín er komin uppí 467 í skráðum verkum og nú styttist óðum í að þær stöllur hætti. Þær hætta þó ekki fyrir fullt og allt. Enda er það bannað. Ný aðföng hafa borist á seinustu vikum. Í júní kom Erling með upptökur af sýningu sinni með Ása og Magga í Nýló fyrir 10 árum og var svo endurtekin 10 árum seinna í Kling & Bang. Svo kom Maggi Páls með tvo kassa fulla af bókverkum og Ási sendi hluta úr innsetningu með leigubíl fyrir nokkrum dögum. Steingrímur gaf svo teikningu eftir Douwe Jan Bakker og Hlynur gaf safninu tvö bókverk. Svo má ekki gleyma því að Karlotta gaf upptökur tveimur gjörningum áður en hún fór til Helsinki á dögunum. Unnar er að hugsa sinn gang og er með mörg járn í eldinum. Hann skammast sín þó soldið að hafa ekkert gefið gegnum árin. Upp komst að Huginn og Unnar voru á leynifundi á sunnudaginn á Ingólfstræti með erlendum aðilum sem endaði víst í Bláa Lóninu. Á hvítum sloppum voru kaup á sýningu Hlyns rædd, stjórnarskipti, inngrip fjársterkra aðila og Manifesta. Túrinn var skipulagður af fjölmiðlafyrirtækinu Blue Medium og cia.is. Helgi Fraktlausnir kom og náði satíníið fyrir Guð og keyrði það til Akureyrar og lítill búddha munkur settist á gærunar hans Hlyns, las bækur, horfði í diskókúluna og snéri hnettinum.
 
mánudagur, 18. ágú 13:55
Uppsetningin á sýningunni hans Hlyns var yndisleg, allt gekk svo ægilega smooth fyrir sig að ekkert þurfti að blogga. Opnunin var hin besta,Þórunn kennd við Skaftfell/Dominos mætti fyrst ásamt systur sinni, næstur mætti Hafþór frá LR og spjallaði aðeins við Ninski og Ghandý um hundruðir tækja sem keypt voru fyrir maraþonið og LR ætlar að selja Nýló á slikk. Ætla þær að hugsa málið. Unnar var í hrókasamræðum við Shaunu hægri hönd dr. Schoens og ræddu þau mikið landsliðsbókina en Shauna vildi endilga fá listakonuna Kartínu Fridriks þar inn og var Unnar ekki alveg að kaupa það, Begga stjórnarliði smellti af nokkrum góðum myndum af liðinu, Andrea varð fyrir kynferðislegri áreitni inni á hangsi þar sem hún stóð barvaktina en óþekktur maður starði á afturendann á henni í tíma og ótíma, Ninski fór á trúnói við Hannes Sig um vandræðagemsann Ragga Guð, en mikil vandræði eru fyrir uppsetningu á Guði fyrir norðan. Hreinn var mjög svekktur yfir því að ekki væri opið á safninu á sunnudögum ,en honumfannst vera alltof mikið af fólum á opnunni og vildi koma einn að skoða, verður það tekið til athugunar að breyta opnunartímum eina ferðina enn á næsta stjórnarfundi. Birta nýjasti stjórnarliðinn nýkomin frá Antwerpen með nýja klippingu reyndi mikið að ná tali a Hreini en fékk bara að tala við Steingrím sem móðgaði hana allsvakalega eftir að hann sagði að það yrði aldrei neitt úr 101 gallerýi. Huginn var kominn með Nýló-bóluna og þurfti að vera í sóttkví í Garðabænum um helgina. Hlynur virtist vera á róandi lyfjum yfir uppsetningartímann en spenntist allur upp við margmennið á opnuninni og skimaði eftir Halldóri Birni sem er búinn að lofa því að kaupa nokkur verk eftir listamanninn. Um sjö leytir drifu sýningargestir sig niðrá Týnda hestinn að sjá Sigtrygg Berg performera, Andrea lokaði sjoppunni eftir að allir voru farnir en Þórunn kennd við Skaftfell/Dominos og systir hennar áttu góða stund fyrir utan safnið með nokkra Budvar og létu þær tilfinningarnar flakka.
 
fimmtudagur, 7. ágú 14:05
föstudagur, 1. ágú 11:34