mánudagur, 29. sep 16:54
Dalli er mættur frá Berlinarbollunni til að vinna samvinnusýninguna sína með Ingólfi, Finnboga, BJ Nielsen og Dr. Björn. Dalli er mjög hress og verður sýningin stórkostlegt inngrip í vinnufeli stjórnarinnar. Hálfgerður Múr sem dregur skarpar línur á milli ólíkra hlutverka Nýló gegnum tíðina og strýrir áhorfandanum mjög ákveðið gegnum safnið og söguna. Hálf-fasískt og róttækt (án þess þó að það fylgist að). Nína verkstýrir lærlingunum eins og geit með kiðlinga eru þeir að færa skjalasafnið fram, alla leið að innganginum. Svo verður byggður 40 metra langur og mjór gangur eftir öllu safninu, gamli veggstubburinn settur aftur upp og byggt fyrir gluggana útá Laugarveg, nema einn glugga. Þennan gang verður gesturinn að ganga en getur þá horft yfir safneignina og skjalasafnið á leið sinni yfír í tómarúmið baka til. Kringum Hangsið verður útsýnispallur. Ægilega gaman að þessu. Dalli fékk Hákon vin sinn til að dúndra þessu smíðaverki upp og vill hann meina að hann verði bara 2 daga að smella því upp. Hákon ætlar að byrja á miðvikudaginn. Huginn kom úr mánaðarfríi í dag og var furðu lostinn yfir flutningunum. Huginn var múlbundinn í Hafnarhúsinu seinasta mánuðinn en var loksins sleppt. Daloon skellti í boðskort og grenjaði í silfurverðlaunahafa hönnunarsjónlistaorðunnar; Sigga Geggerts í að gera kortið en hann vildi ekki gera það fyrir fimmþúsundkallinn sem honum var boðið. En er kannski til í það fyrir tíuþúsundkall. Byrjað er að skafa í púkk. Huginn og Nína kláruðu fréttatilkynningu og Andrea hélt áfram við að móta framtíðarstefnu Nýlistasafnisins. Verið er að vinna að henni fyrir umsóknir til borgarinnar, í tækjasjóð Rannís og til ráðuneytisins. Stefnan gengur stjórnarliða á milli og er öll að koma til. Starfsdeginum var frestað um óákveðinn tíma. Karlotta kemur á föstudaginn frá Helsinki en Unnar er á leiðinni til Sao Paulo frá Atlanta. Andrea er búin að þrusa á hann allskonar textavinnu sem hann hefur unnið í fjarveru sinni og verður að klára áður en hann fer. PC tölva safnsins er öll í ruglinu og heldur Huginn að hún sé komin með bullandi vírus. Trójuhest jafnvel. Huginn hefur lent í gífurlegum vírusvandræðum á bókasafni Listaháskólans en þar lá tölvan hans niðri í þrjá daga og var í algjöru hassi. Daloon er mikill gúrú og fiktaði í snúrunum og þá hrökk hún gang aftur. Andrea hefur ákveðið að fara að taka back-up af öllu úr tölvunni áður en eitthvað meira gerist. Gamla kærastan hans Daloon var boðið að vera félagsmaður mánaðarins eftir að Hidligunnur Birgis skeit í deigið. Hún var tilnefnd af Ívari Valgarðs en svaraði ekki kallinu. Leiðinda mál.
mánudagur, 29. sep 10:55
mánudagur, 15. sep 16:58
þriðjudagur, 9. sep 15:27
Nína kemur á morgunn frá Kassel eftir að hafa hjálpað manni sínum með enn eina risapródúksjónina. Enn einn ruslahauginn. Það verður stuð að sjá hana. Haustvindar hafa borið meðp sér gígantíska orku sem er að þétta stemmarann á safninu til muna og er stjórnin tilbúin í verkefnin sem bíða. Nemendurnir hans Godds voru frábærir og stóðu sig vel. Sýning þeirra á plakötunum er vel heppnuð og var stjórnin ægilega hrifin af plakötunum sem urðu til í vinnuferlinu og prýða gluggana útá bílaplan. Tinna yfirverkstjóri samdi á stundinni við þau um að gefa allt heila klabbið í safneignina og voru nemendur ekki lengi að taka því boði, enda er það feit glurót að eiga verk í safneign Nýlistasafnsins. Spikfeit alveg hreint. Vera nemendanna renndi stoðum undir hugmyndir stjórnarinnar um fyrirkomulagið á næsta sýningarári sem nú er í vinnslu. Á opnuninni varð allt vitlaust og sá Huginn nokkra góða um kvöldið grenjandi fulla með gítar út á horni, innblásin af gleði og meiri gleði. Hlynur var ekki par hirfinn að eitt af verkunum hans hafi verið fært af rauðvínsveggnum til að gefa plakötunum pláss. Það samdist þó um frið þegar að Andrea bauð honum pulsupartí fyrir fertugsammaælið sem er event tengdur sýningunni hans. Þá varð hann rosa glaður. Músíkhvatur er svo til í að spila plötur í ammælinu hans og taka í skemmtarann. Jafnvel til í að smella sér í apabúning. Músi er þó ekki aleg búinn að samþykkja það, en hann neyðist til þess því annars fær hann engar pulsur og hann er sjúkur í þær. Í vinnuferlinu með Goddi og dvergunum hans fundust tveri nettir til að hjálpa til við að vinna 30.000 ára bókina með Tinnu, Áma og stjórninni. Fimir músafingur þeirra, haukfrán sjón og rosaleg einbeiting þeirra réði úrslitum. Sem var eins gott, þar sem að verkefið krefst þessara kosta enda eiga þeir eftir að skanna um 100.000 myndir úr skjalasafninu, bóðskort, plaköt, fréttatilkynningar, blaðaúrklippur og fleira. Andrea var að klára að fara yfir netbókhaldið og fékk dygga aðstoð Tinnu við það. Öll námskeiðin sem safnið sendi Andreu í og eytt stórfé voru málið, annars hefði Andrea aldrei getað yfirstigið bókahaldið. Einnig kom reynsla Tinnu frá Reykjavíkur Akademíunni bersýnilega í ljós. Svo situr hún við félagalistann líka og lagfærir ýmislegt; vitlaus nöfn eins Frúrí og fleira. Eins gott að farið sé reglulega yfir listann en hann virðist breytast eftir yfirsklivitlegum leiðum. Birta og Andrea kláruðu júmbólangloku til Kultur Nord fyrir málþingið sem verður haldið í safninu í byrjun næsta árs. Þar verður kanóna eftir kanónu; Baert De Baer, Tone Hansen, Bryoni Bond, Lesley og James Young, Marita Muukonen, Oddný Eir, Nína Magg, Unnar Örn, Huginn Þór. Svo kannski Nina Möntmann, Mats Stjernested, Matthew Higgs og Simone Rees. Stórskotalið og má gleyma þeim sem verða í salnum en það verður sérvalið úrval af kanónum í íslensku listalífi. Það hefur ekkert heyrst í Unnari okkar manni vestan hafs. Það er kannski ekki skrýtið þar sem mikið mæddi á honum í sumar og sérstaklega áður en hann hvarf á braut. Hann tók á móti nemendum Godds og kom messaði yfir þeim að þau væru enn í skóla og vissu ekkert í sinn haus, fékk sprautur í rassinn fyrir Brasílíuferðina til Ernesto Neto og fyrir Nýlógeðveiki og setti stjórnina í ýmis brýn verkefni. Darri er á landinu að plana sýninguna í október. Rosa plön en erfiðlega gengur að ná í skottið á honum enda er hann háll sem áll. Auxpan kom og smellti upp rennihurðinni fyrir heimsókn Safnaráðs á morgunn. Ráðið kemur í kaffi og kleinur og hlakkar stjórninni mikið til að lóðsa liðið um safnið með kleinur í kjatinum. Óli kom í dag og ræddi við skráningardísirnar um ferlið og ýmis vandamál. Tvær nýjar hafa bæst í hópinn og er jafnvel sú þriðja á leiðinni. Þær heita Júlía, Hildur og Sigurrós. Yndislegt að fá þær í hópinn og eru Elín og Dísa hæstánægðar, enda eru þær nú byrjaðar í námi af krafti og allt að gerast. Þær verða teknar á Þingvelli í enda vikunar og boðnar formlega velkomnar til starfa.
mánudagur, 8. sep 10:33