Andrea og Tinna voru rosalegar í bókhaldinu í gær kláruðu það fyrir árið 2008 og gerðu launamiða sem á þó ekki að skila fyrr en 10. febrúar. Þær tóku ekki sjensinn á að bíða með þá þar sem litla Nýlóbarnið gæti komið hvernær sem er. Andrea tok mörg skapofsaköstin á tölvuna og Tinna skalf af undrun yfir ofsanum. Andrea hefur aldrei sést svona reið. Andrea fór með reiðina á jákvæðar nótur niðrá Austurvöll og tók þátt í byltingarkenndum og sögulegum atburðum gegn ríkisvaldinu ásamt örðum stjórnarliðum og mýmörgum félagsmönnum. Ef Andrea hefði hinsvegar farið að ráðum Sambands Ungra Sjálfstæðismanna hefði hún frekar sett góða spólu í tækið eða dównlódað einhverju djúsí og pantað sér pissu til að gleyma þessu hryllilega ástandi. Fyrir framan hliðarinngang Alþingishússins barði Andrea kúabjöllu stöðugt og Karlotta sló með sleif í sláturpott. Ási sveiflaði keðju í málningarfötu og Gunnhildur skellti saman hárbeittum rifjárnum. Kata Sig var með skiptilykil að berja í eina rennuna á Alþingishúsinu, Guðbergur Bergsson gekk um hokinn dreifandi ljóðum á götuna, Goddur blés í didgeredooið sitt, Egill Sæ danglaði silfurbirninum utan í óeirðalögguna og Huginn klappaði saman höndunum. Erling greip andann á lofti í hallargarðinum ásamt Sigga Pönk og Ingarafn en fékk piparúða í augun. Það var snemma, svo æstust leikar og baráttuandinn magnaðist svo um munaði. Hver sá sem vetttlingi gat valdið sogaðist inní tryllinginn. Jákvæðan tryllinginn. Smám saman varð glundroðakenndur og dramatískur hávaðinn að alvöru taktföstu tribalreifi í myrkrinu þar sem menn, konur og börn tóku undir í brekkusöng. Reif er (eða var) í sjálfu sér aktífismi og að reiffyrirbærinu stóðu ýmist aðgerðasinnar eða samfélagsþenkjandi samtök í Evrópu. Reifið fæddi af sér aðgerðasinnaða Júróhippann; Krustie Hippann. Á Íslandi eru þeir svartklæaddir með ninjagrímur. Tinna hætti sér ekkert á svæðið enda kas og fer ekki að útúr Nýlóhúsi þessa dagana. Í byltingarkenndu ástandi hringdi hún andsetinn símtöl í hina ýmnsu félaga og hvatti þá til mótmæla og sýna samstöðu. Einnig kreisti hún útúr liðinu enskar þýðingar á titlum sýninga sinna í safninu en ómögulegt hefur verið að þýða þá. Bara þrítyngdir menn á borð við Hlyn sem geta það. Erfiðasti titilinn er "Tilbrigði við ryksugu" eftir Björku Sigurðardóttur. Það er líka erfitt að hafa uppá henni. Hún er ekki meðlimur í Nýló og ekki í SÍM. Tinna situr löðursveitt við tölvuna og er prófarkalesa nöfn sýnenda, áðurnefnda titla á sýningum og fínvinna upplýsingar sem fram koma í texta; eins og samstarf milli stofnanna, skipti sýning og hollenskir listamenn. Þetta er síðasta textalanglokan áður en allt heila klabbið; sýningarsaga Nýlistasafnisins 1978-2008, fer í allsherjar yfirferð. Almenn frústrasjón ríkir í dag eftir ofanlýsta atburði gærdagsins og yfir ástandinu almennt. Ringulreiðin mikil og skapaði það snarpar en mjög ruglandi umræður um stefnu safnsins, stöðu þess og framtíð. Það hrikti verulega í stoðum; má segja að hættuástand hafi ríkt og stjórnin nánast fallið. Allavegana lamast tímabundið í vanmætti sínum gagnvart spennufallinu eftir að Oslóartréð brann. Það sér ekki fyrir endan á ringulreiðinni og maður spyr sig: Hvað er næsta skref?
föstudagur, 30. jan 11:00
föstudagur, 30. jan 10:58
miðvikudagur, 28. jan 17:39
Spenningurinn var mikill í dag. Klukkan ellefu var von á nemendum LHÍ sem eru í bókverkakúrs hjá Jóa Fel. Andrea skúraði og Nína og Ámi Gra Hö á 30.000 ára sögu Nýló (sem mun toppa 30.000 ára sögu myndlistar sem kom út nú fyrir jólin og Tinna, sem fékk hana í jólagjöf og hefur ekki getað flett henni) færðu til dótt og drasl í Góða Hirðishorninu svo að nemendur kæmust fyrir. Þorvaldur kom og hélt tilfinningaþrungna ræðu um sögu bókverksins á Íslandi og grétu nemendur fögrum tárum á tandurhreint steypugólfið. Svo kom herinn hennar Tinnu að vinna að bókinni. Tinna hefur smalað saman, ásamt Áma, Þormari Melsted og ungum og efnilegum nemanda hjá Goddi og Dóru í verkefnið. Ami er að setja bókina upp með aðstoð Unga Efnilegs og er Þormar að vinna myndirnar af veggspjöldunum í Photoshop svo þær getir birst í bókinni. Risabókinni. Ámi setur upp árin 1978 til 1999 og U.E tekur að sér 2000 og uppúr. Tvöþúsund vandann. Þegar allt fór á núll. Þeir fóru svo í hádegismat á Pítuna. Löbbuðu á Pítuna og Á pog Þ rifjuðu upp þegar þeir voru í skólanum í Skipholti. Ungi var gáttaður á þeir færu ennþá á Pítuna eins og hann og líka á umfangi bókarinnar. Andrea og Nína fóru hinsvegar að ná í Huginn og skoðuðu risastórt og autt húsnæði sem mun sprengja skalann á umfagni safnsins. Unnsi kom ásamt nýja besta vini sínum John Bielenberg sem er 7undi besti hönnuður í heimi og hefur unnið með hugtök á borð við design activisim. Hönnun sem sker almannarými og samfélagsvitund. Rak hópurinn upp stór augu þegar að bankamenn leiddu þau um hvern tóma salinn á fætur öðrum með tárin í augunum. John þurfti að vaða yfirgefna prentara, ljósritunarvélar, Arne Jacobsen stóla og ísskápa með klakavél til að ná áhugaverðum ljósmyndum í gagnasafnið. Hann var dolfallinn en þarna leit út fyrir að einhver plága eins og svarti dauði hefði riðið feitum hesti yfir svæðið. Nína sprangaði um eins og ekkert væri sjálfsagðara að húsinu yrði breytt í Nýlistasafn heimsins enda er hún von að stýra risavöxnum verkefnum og í því ljósi er skemmst að minnast rulsakompunnar í París sem maðurinn hennar fékk hugmynd að um árið. Svimandi fóru Huginn og Andrea á fundi við norskum listamanni sem er að smíða gagnvirkt svið/leikhús í samstarfi við þverfaglegan hóp góðkunningja, ljóðskáldið og vinningshafann Ragnar Ísleif sem vill halda útgáfuveislu á bráð útgefni ljóðabók sinni með osta í bland og Sigga okkar Gunnars sem talaði enn um kjöt og svarta rútu, hljómsveitina sína, kaðal, raddbönd, páfagauk, Járnkallinn frá Oz og staðsetningu sjónvarpa. Tinna fullkomaaði gagnagruninn að bókinni og skrá inn yfirlit að umfjöllunum og blaðagreinum um starfsemi Nýló og ýmiskonar gögn sem hafa fundisr hér og þar. Eins er Tinna að taka við ábendingum frá félagsmönnum um sýningar, leiðréttingar og þess háttar. Þettar er gert svo að Tinna geti áhyggjulaust labbað út á föstudaginn og bíða eftir barninu sínu. Uppsetningin á bókinni hélt áfram fram til kvöldamatar og spurðu þá Tinnuherinn sig hvort Pítan væri málið. Ungi fékk þá nóg og fór heim. Á morgunn munu svo Unnar, John og fleiri vera með yfirferð á kúrsinum hans um design aktivisma og munu nemendur annars árs hönnunardeildar kynna úrvinnslu á fyrsta verkefninu sem þeir félagar lögðu fyrir.
miðvikudagur, 28. jan 16:55
Tiltektardagur númer tvö var í gær. Tvær safneignarhillurnar voru færðar til og náði stjórnin skyndilega andanum. Safnið stækkaði um helming og var miklu hent. Það er ótrúlegt hvað mikið af drasli hefur leynst í fjárhúsunum. Járnsamansoðningnum var skutlað í bræðslu, skúlptúrum Mr. Landy var troðið inní sendiferðabíl á haugana og hefur þá safnið staðið við skuldbindingar sínar en listamaðurinn gerði samning við Nýló á sínum tíma að verkunum yrði fargað eftir árið 2000. Græðgi safnsins réði þó algerlega ferðinni þar sem verkin fjórfölduðst í verði meðan þau stóðu óhreyfð í safneigninni í átta ár. Einu var meira að segja reynt að selja verkin til P. Ara fyrir milljónir. En No Frills voru No Thrills fyrir Pésa. Svo komst einhver sýningarstjórageit (sænska geitin??) á snoðir árið 2007um að verkin væru enn í Nýló og lét Mr. Landy vita. Hann brjálaðist, hringdi milljón sinnum og þá þurftu Ségereux fyrrum stjórnarliði og Huginn að lofa öllu fögru og senda myndir af eyðileggingu verkanna. Unnar hefur minnt stjórnina á, í tíma og ótíma síðan þá, að viðamesta og þekktasta prójekt Hr. Landy hefði verið að brenna allar eigur sínar á öskuhaug í Bristol þegar árið 1999 breyttist í 2000. Eftir þau hryllilegu vatnaskil er öllu fargað sem hann snertir. Því er það ekki furðulegt að kallinn hafi verið að pissa í vitið yfir samningsbroti á þeirri reglu. Nú verða sendar myndir til Bristol og allt verður í lagi. Tiltektinni er ekki lokið. Hlutirnir eiga eftir að færast meira til og rýmið og ramminn eftir að afhjúpa möguleika sína fyrir komandi verkefni. Siggi Gunnars majones kom í gær og í dag. Hreyfði við hlutum, spurði um kjöt, grill, svarta hljómsveitarútu, ljóskastara, djarfa listakonu og plötuspilara. Sagði að brennunjálssaga væri horfinn, Hilmar Ö í uppnámi og Bubbi í óvissu með svartar fjaðrir í munninum. Siggi Gúmm kom en hafði enginn tíma til að tala við hann. Siggi gúmmelaði er að skipuleggja Rijks Akademi fyrirlestramaraþon fyrir fimmtudaginn fimmta febrúar klukkan níu. Hann hefur ekkert kannast við verkin sín í safneigninni, sérstaklega verk sem heitir "Átt" og er þrívítt síðan Siggi hafði hár. Núna er hann alltaf með húfu. Stjórnin ræddi svo mikið saman (á milli Sigganna) um framtíðaráform sín, húsnæðisáfrom, hugsanlegt samstarf við kanónur og góðkunningja, vaxtarbrodda, hættuna á kóloníseringu íslenks myndlistarlífs, samruna og áflog. Tinna var móð og másandi, bæði vegna líkamslegs ástands og skanna og skjalasafnsþreytu. Hún er við það að klára yfirferð sína yfir sýningarsögu Nýló og að hjálpa Andreu með bókhaldið og þá verður henni sleppt út í barneignarævintýrið.
miðvikudagur, 28. jan 11:20
miðvikudagur, 28. jan 11:18
föstudagur, 23. jan 14:33
Formaðurinn er í miklum bollaleggingum þessa daganna. Rosalega mikið af mikilvægu fólk frá útlöndum kom sérstaklega að hitta hana núna i vikunni. Andrea fékk að sitja einn fund, sem snérist þó upp í umræður um ásatrú og ástandið á Íslandi. Nína hefur hins vegar setið stanslaust á hótel 101 með sinn fyrrverandi sem ráðgjafa sér við hlið í 72 klt samfleytt. Þar ræðir hún framtíð safnsins við þessa aðila sem vita sínu vita þegar kemur að menningarmálum, safneignarmálum og mikilvægi þess að litlir hlutir vinni saman og að fólk sem skilur mikilvægi myndlistarinnar fari saman í eina sæng. Inni á safninu er þó nóg að gera. Stórsýning á verkum Dieters Roth í LÍ er að breytast í sýningu á allskyns verkum úr safneigninni m.a verk eftir Jón Gunnar, Rúrí, Kristján og Sigurður Guðmundssynir og marga aðra góða. Hildur og Andrea fóru í að finna öll þessi 3.000 verk og eru búin að fylla nokkur borð. Það eina sem finnst ekki í augnablikinu er: Ó, Tarzan segðu okkur hvað þú hugsar frá 1986. Ármann kom að hitta Tinnu og er hann búin að vinna 7 ár af þrjátíu í sýningabókina góðu. Andrea var yfir sig hrifin af uppsetningunni og er hún alveg viss um að Tinna og Ármann fái bókmenntaverðlaunin í ár. Gurra hefur verið að slæðast í kringum Útúrdúrinn en þar virðist enginn tala saman og er oft hringt í Sigga eða Gurru til skiptir til þess að fá upplýsingar. Mikið er þó dáðst að búðinni og hefur verslunin gengið vel í kreppunni. Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra stóð stjarfur fyrir utan safnið í hádeginu í dag og virstist vera algerlega týndur. Andrea fór út og spurði hann hvort hann vildi kíkja inn en þá hafði hann aldrei heyrt á safnið minnst og var að leyta að sumarferðum. Huginn og Karlotta hafa verið að bardúsa ýmislegt þessa vikunna m.a að setja upp möppur félaga safnsins inn á hangsi og hafa þau skemmt sér mjög við að skoða þær. Karlotta fann sína möppu og á henni var stór post-it miði sem á stóð JÁ. Karkotta er ennþá að bíða eftir að fá að setja upp þessa sýningu. Vel hefur tekist að bera kennsl á óþekkt verk í vikunni og hafa m.a Halldór Ásgeirsson og Tumi Magnússon verið hjálplegir. Nýlókórinn er á leiðinni aftur inn í hús en mun kórinn halda stórtónleika þann 13.febrúar í safninu. Siggi metal sem er búinn að vera í bullandi maníu er týndur í dag en talið er að hann hafa dottið rækilega í það með formanninum og Vínarskinkunni í gær á English pub. Þess má að lokum geta að safnið lækkar um 200.000 kr í styrveitingu frá borginninni og mun sá 200.000 kall renna beint í vasann hjá Óla El sem enn bíður eftir fyrstu greiðslu inn á stórkostlega glerskúlptúr sinn fyrir tónlistarhúsið.
miðvikudagur, 21. jan 17:32
mánudagur, 19. jan 17:49
föstudagur, 16. jan 16:30
föstudagur, 16. jan 15:53
föstudagur, 16. jan 10:57
þriðjudagur, 13. jan 17:59
þriðjudagur, 13. jan 16:47
miðvikudagur, 7. jan 18:01
miðvikudagur, 7. jan 16:21
miðvikudagur, 7. jan 11:42
miðvikudagur, 7. jan 11:41
miðvikudagur, 7. jan 11:40
miðvikudagur, 7. jan 11:37
þriðjudagur, 6. jan 16:40
mánudagur, 5. jan 17:29