fimmtudagur, 15. okt 13:45
þetta er Kristján" sagði Tinna við Kristján í símann alveg ringluð enda vinnuálagið mikið á Nýló þessa dagana. Hún og Unnar sitja öll kvöld yfir Bókinni sem mun komast í heimsfréttir innan skamms og líka í jólabókaflóðið. Á daginn er nóg að gera í flutningum og pökkun. Elín setur þetta allt í tetris og raðar eins og óð safneigninni á bretti. Gunnhildur er með alla iðnaðarmenn í vasanum með kúbein í annarri og símann í hinni.  Allir félagsmenn (sem eru í tengslum við líkama sinn) eru hvattir til að hafa samband og hjálpa til við að skúffa út kexinu og fá sér slice í leiðinni. Birta multi er á leið til New York að pikka upp stjörnur handa Nýló. Páll Haukur fylgist grannt með og greinilega með ýmislegt í pokahorninu uppúr hugleiðslunni í fenjunum. Huginn heilsar på. Karlotta brúar bil. Andrea sást baðandi út öngum á laugarveginum með seðlana gúlpandi uppúr vösunum. Christof hennar Nínu sást keyrandi með tryllingsglampa í augunum með trukkinn fullan af bleyjum. Gunnar er digital aksjón.    
 
þriðjudagur, 13. okt 11:23
Ný stjórn er tekin við. Huginn og Unnar eru forfallaðir vegna útbrota og búið að senda þá í lónið, Karlotta er haldin síþreytu og sjónauka. Nína búin að unga út litlum prinsi og nýtt nýjabrum er að taka við, nýtt og ferskt blóð farið að streyma um safnið. Og sviti, og líka nokkur tár. Gunnsí og Gunni fórna útlimum í æðiskastinu við að rífa niður palla og leysa úr snúruflækjum. Elín pakkar safneigninni og skipuleggur aksjónið. Gunnsí hefur staðið í ströngu og nánu samstarfi við fagmenn.is sem ætla aðstoða við að smúla burt kexmylsnur á gæjalegan hátt í nýja rýminu á skúlagötunni. Tinna hreinsar til í kerfinu og þær Birta berjast eins og hundar fyrir klausum í leigusamningnum. Gunnsí var búin að sjá nokkra refi og gaf lýsingu á því til Tinnu og Birtu sem nýta sér það í samningagerðunum og má sjá kallana koma froðufellandi með blóðhlaupin augu eftir að hafa lent í Birtu og Tinnu. Jafn einbeittir og markvissir fundir eru haldnir mörgum sinnum í viku um framtíð safnsins og stefnt er á gleðifögnuð og alvarleika í hárréttu hlutfalli allt næsta ár. Páll Haukur heldur áfram að striplast í Feneyjum en til að halda uppi hópeflinu er búið að ramma inn mynd af honum til að hafa á borðið, við hliðiná myndinni af súm-draugnum. Og svo dóminóstilboð handa öllum, með brauðstöngum.