miđvikudagur, 16. des 17:15
Dagurinn í dag var međ ţeim rólegri í Nýló, eiginlega bara grunsamlega rólegur, enda eru framkvćmdir í rýminu í biđstöđu sökum sílan-áburđar (gólfefna-vörn, fyrir óinnvígđa), sem ekki má ganga á og fylgja óćskilegar eiturgufur, svo stjórnarmeđlimir fóru í vímu af og fabúleruđu fáránleg nöfn fyrir 30.000 ára sýningaryfirlitsbókina, sem ţjóđin bíđur auđvitađ spennt eftir ađ komi út.

Útgáfa bókarinnar frestast ađeins og verđur gefin út laugardaginn 20. febrúar 2010, um leiđ og hiđ nýja rými Nýlistasafnsins, ađ Skúlagötu 28, verđur formlega opnađ.

Stjórnarfundur var í gćr og nokkrar mikilvćgar ákvarđanir teknar í góđu geimi. Ţetta lítur rífandi vel út og viđ erum full spennings og tilhlökkunar.

Í dag var bara rosa venjulegur dagur á forstjóraskrifstofunni á 3.hćđ, kaffi ţambađ og mörgu praktísku komiđ í verk.

Erling Klingeberg kíkti viđ og leist vel á. Nokkrir ađrir góđir félagsmenn hafa litiđ viđ uppá síđkastiđ og veriđ ánćgđir međ stöđuna, s.s. Magnús Pálsson, Ingólfur Arnarson, Steingrímur Eyfjörđ og Magnea Ásmundsdóttir.

Á morgun munu Birta og Gunnhildur taka til viđ ađ múra heilan vegg í aftara rýminu og búast viđ ađ massast viđ ţađ.

Haukur frćndi Gunnhildar mun lappa uppá glugga rýmisins á međan. Hlustađ verđur á jólalög og hver veit nema bođiđ verđi uppá smákökur, frá Frón, fyrir duglega iđnađar-listamenn…
 
ţriđjudagur, 8. des 16:11

Nú verđa tryggir lesendur Dagbókarinnar ađ sjá aumur á okkur. Sökum flutninga og gífurlegra anna hafa öll skrif setiđ á hakanum. Hér hefur mikiđ gengiđ á. Nýlistasafniđ er ennţá ađ flytja, öll starfsemin er komin niđur á Skúlagötu, netsamband er komiđ á og símalína tengd. Hvađ er hćgt ađ biđja um meira?

Viđ tókum viđ kexverksmiđjunni Frón og hreinsuđum út úr henni risastórum ofnum, hámuđum í okkur kex og drullu, ásamt iđnađarmönnum og örfáum en öflugum velunnurum. Nú er ađ komast mynd á ţetta. Ţađ er veriđ ađ gangafrá gólfi og veggjum, pússa, spúsla, splćsa, smíđa, mála og dútla.

Safneignin hefur á međan tímabundiđ fengiđ ađ hreiđra um sig á ţriđju hćđ, innpökkuđ í bađmull og dún. Viđ hliđ safneignar er fyrrverandi skrifstofa Frónforstjóra og ţar hafa tölvukostur og gögn skrifstofunnar tímabundiđ tekiđ sér bólstađ međ andríkar umrćđur um framtíđna svífandi yfir vötnum.

Stefnan er ađ Bókin komi út 23. janúar og ţá verđa dyrnar á Skúlagötu opnađar uppá gátt međ guđaveigum. Ţađ verđur alltsaman nánar auglýst síđar.

 Smelltu

Gólfiđ - Before and after.

 Smelltu

 Flísalögn í farvatninu. Flísa uppvask.

  Smelltu

Óli hreinsar flísalím.

 Smelltu

Viđ vöskum upp hverja einustu flís.

 Smelltu

Líkt og vćrum viđ hermenn í refsingarvinnu. Ekki ósvipađ t.a.m kartöfluskrćli.

 Smelltu

Skrifstofan tímabundna en vel teppalagđa.

 Smelltu

Tinna heldur utan um málin, en hver heldur utan um Tinnu.

 Smelltu

Forstjóraútsýniđ, milljón dollarar.