Víglsa Leirpottsins á föstudaginn var glymrandi. Borðið og Sigga Leir7 mössuðu nýþrykkt og munstruð viðarlangborðin inní sal, gegnu frá græjunum og skrúbbuðu gólfin eftir SS með Rössunum, báru smá grænt Hreinol á pallinn, settu upp skjávarpa og sýningartjald þar sem vespa sást móta fullkomið leirker. Vespunni var parað við leirkerasmið að renna ker. Bæði kerin voru alveg eins. Náttúran og maðurinn renna saman í grunnformið á leirkeri. Pési Útúrdúr klippti vídeóið saman. Huginn tengdi græjurnar og færðu þau Karlotta sýningarborðin og tóku plakötin og stöffið frá Bag of Joys af langa veggnum. Brynhildur smíðaði lítinn stöpul með krækiberjalyngsþrykki á (eins og langborðin) og stillti sýningarpottinum upp. Leirpotturinn er einnig þrykktur með lyngi og standa berin út úr pottinum. Eins og lambabein, sem glúbbast út. Á lokinu eru Baldursbrár. Það er eins og leirnum hafi verið hnoðað hressilega saman á túndrunni utan um beinin. Finna hringdi í Pétur Musician og bað hann að spila í Vígslunni. Það var gos í Pepsi og stillti hann upp græjunum rétt fyrir vígslu og setti rússneska moog tónlist á fóninn. Friðrik V eldaði sem mest hann mátti yfir daginn og kom hann pínku seint með kássuna í ótal Leirpottum. Svona töff seint. Mikill spenningur myndaðist þegar hann kom prúðbúinn með þjón og hófst þá vígslan formlega. Pepsi var þá fljótur að skutla í Mozart og kynning á verkefninu fór fram. Ræddu Finna, Brynhildur og Sigga um íslenskan leir, landnámskindur, sjálfstæða framleiðslu, beint úr héraði og beint frá býli. Friðrik greip orðið og talaði um lambakjötsframleiðslu, lamb alið á hvannarót, tilraunastarfsemi með matvæli, samstarf við Finnu og Brynhildi, bróðir sinn þjóninn og uppskriftina sem borin var fram og mun fylgja pottinum þegar fest er kaup á honum og kynnti Friðrik einnig bjórinn sem var í boði en hann er, eins og leirinn, framleiðslan og hvannarótar lambið af Snæfelllsnesinu (leirinn og lambið úr Fagradal). Slefið rann á langborðið og var rifið í sig. Gestir sáu um að skammta sér í bambuskálar úr Leirpottunum við kertaljós. Það var vel mætt og margt um góðan gestinn. Reyndar svo margt að færri komust að en vildu.
Hér er linkur á Bratmobile að taka There´s no other way með Blur. Upptakan er frá 1993.
http://www.youtube.com/watch?v=of_EzjtNar0