Svíarnir eru mættir. Þau eru þó ekki öll svíar, því ein er brezk. Hún Ólífa. Þau komu á mánudaginn og voru fljót að stimpla sig inn. Karlotta náði í þau á BSÍ og bauð hún liðinu uppá kjamma og kók. Ólífu fannst það frekar brútal, sérstaklega þegar Karlotta útskýrði að hausarnir eru sviðnir með logsuðutæki á bestu bæjunum. Brunabragðið sat lengi í munninum á Ólífu. Rófustappan vakti mun meiri lukku. Veltu þau fyrir sér hvernig væri að húða eitt hlass af stöppu með sykurbráð og svíða með logsuðutæki. Með fullum loga til að fá brakandi skorpu. Nýlistasafnið tók þeim með opnum örmum og fóru næstu tveir dagar í stíf fundarhöld þar sem sýningin var lögð á ráðin og skipulögð í þaula. Óli B er barinn áfram í að breyta heimasíðu safnsins. Ímyndinni. Safnið verður endurskýrt og mun Ylva (svíi) útskýra þær hugmyndir í fyrirlestri á föstudaginn klukkan átta og verða svo með formlega seremóniu á opnuninni daginn eftir þar sem nýju ímyndinni verður hleypt af stokkunum. Runo (svíi) mun sýna í geymslunni og hefur farið mikill tími hjá honum að runta draslinu til þar inni. Bókverkunum og gömlum syndum félagsmanna, leifum af ýmsu smíðadóti og eins illmeðfærilegum verkum sem stjórnin lagði aldrei í að koma fram. Ólífa kom með ýmislegt með sér, þar á meðal nýja útgáfu af vídjóverki þar sem hún fjallar um sértæka klíkustarfsemi í Bretlandi uppúr 1930. Tekur hún fyrir hálfgert Ungmennafélag og költ sem á skömmum tíma penetreruðu hugmyndum sínum og áhrifum inní brezka hagkerfið og efnahagsstjórnun. Mjög athyglivert. Bæði Runo og Olivia munu ræða verk sín og hugmyndir á föstudagskvöld. Runo ætlar að fjalla sérstaklega um vandamál Argentínu kringum 2004 þegar að efnahagskerfi þeirra hrundi. Olivia ætlar að ræða áðurnefnda klíkustarfssemi eða þrýtsihóp og mun jafnvel klæða sig upp sem Hróa Hött. Á milli funda rifu Andrea, Nína, Unnar (sem vaknar blýsperrtur fyrir aldur fram) og Karlotta upp ruslapoka, tuskur, andlitsgrímur og pensla. Tóku til og máluðu rauðvínsveggin/baby bláa drauminn (langa vegginn) fílabeinshvítan. Ylva mun gera risastóra og viðbjóðslega kolateikningu á vegginn. Fresku. Beinagrindafresku. 12 metra langa. Kannski að (ó)freskan verði permanent verk í safninu út árið. Unnar og Karlotta eru búin að draga liðið útum allt þegar að færi gefst. Runo og Ylva hafa komið áður en Ólífa er í sinni jómfrúarferð. Þau eru búin að fara í Vesturbæjalaugina, sjá margæsirnar í Gróttu, fara í heimsókn til Steingríms, borða hjá Núma á Segúrmó, missa móðinn á sýningu Óla E, pæla svo í því hvort að Karamba og Bar bara væru hluti af Limbolandi, dást að naívistanum Kjarval á Holtinu, skoða Alþingishúsið og gleyma sér við fossinn inní höfuðstöðvum Kaupþings.
Nýlóvika hefur verið nokkuð góð. Síðasta Á hverfanda Hveli kvöldið var á þriðjudaginn og æstust ungir leikarar mikið inni í græna herberginu og breyttu silkiþrykktu borðunum frá Borðinu ehf í umræðupalla, var Borðið ehf bara sátt við það og má Nýló nýta þessi fallegu borð eins og það vill. Því miður þurfti að fresta Júkatan kvöldinu, en trommarinn Gulli hafði víst fengið svo rosalega í magann að hann treyssti sér einfaldlega ekki til að mæta og er Júkatan gersamlega lost án hans. Því verða æstir aðdáendur sveitarinnar að bíða þangað til eftir Páski til að sjá herlegheitin. Formaðurinn fékk gríðarstórt verkefni í vikunni og er hún búin að skrá u.þ.b 300 bókverk eftir ströngum reglum Óla Varðar. Nína blótar komu tölvutækninnar mikið og finnst leiðinelgt hvað bókverkin verða ljót í kringum 1990. Andrea prentaði út besta og mest yfirlesna texta í sögu safnsins út og hengdi uppvið anddyrið, þar er farið yfir starfsemi og dagskrá ársins og hvetjum við félagsemenn til þess að kíkja við og berja dýrðina augum. Félagsmenn safnsins hafa ekkert sett út á þá tillögu stjórnarinnar að fresta aðalfundi safnsins fram á haust, en Andrea hafði búsit við miklum mótmælum ala Peter Jensen og brjálaðir grænlendingar ( http://www.shoewawa.com/2009/03/peter_jensens_f.html). Andrea talaði líka heillengi bæði við Ásgeir hjá Bókavirki og Kristján hjá Gunnari Eggertssyni og er búin að bóka fundi með þeim kollegum eftir páski þar sem Nína mun sveifla hárinu og höstla pappír og bókband fyrir 30.000 ára sögu safnsins. Huginn vill ekki gera neitt nema drekka bjór og slúðra þessa daganna og heldur Karlotta að hann hafi fengið vægt heilablóðfall eftir sýna og sjá kvöldið með Kolrössunum. Lotta kom fersk og sælleg heim frá Sverige þar sem risatór kúrator ætlar að kaupa stórfenglegt útskriftarverk hennar á mörg hunduð dollara, eina vandamálið er að Lotta er búin að henda verkinu í maníukasti (stjórnin er skíthrædd um að Lotta muni henda allri eigninni í sumar) og þarf því að skella í nýtt. Búið er að panta miða fyrir þríeykið Ylvu-Runo-Oliviu og býst stjórnin við stórkostlegri sýningu hér inni á safninu í bytjun mai en mun sú sýning verða upphafið að mjög fasískri myndlistaráherslu í sumar og fram á haust þar sem þverfaglegum áherslum verður fleygt á dyr eins og blautum hundi. Fundað var með Kidda Harðar sem mun koma sterkur inn með haustinu en Steingrímur E-pilla nennir ekki að vinna inn í strútkúrinn á safninu en vill skipuleggja allskyns kvöld með viðfangsefnum sem honum finnast spennandi eins og arabar og heimildamyndagerð á mið-austurlöndum. Stjórnin gladdist mikið yfir apríl gabbi Snozzo og buðu þau honum að vera með skrifstofu Dymano Models á Nyló í sumar. Birtiser á fullu við að setja upp stórsýningu í Hafnarborg og grátbað Andreu um að fá Michael Yong bekkina lánaða og grét mikið yfir því að geta ekki sinnt Nýló barninu sínu eins og foreldri með fullt forræði. Safnið fer nú í langt-páski frí og óskar stjórnin landsmönnum öllum gleði og friðar yfir Páski.