mánudagur, 29. jún 16:19
Dagurinn á safninu var tiltölulega rólegur. Elín er lasin, Dísa er hármódel, Nína ennþá ólétt, Hildur Halblaub, Yvonne hress og Karlotta með ýmislegt í sigtinu. Skúlptúrarnir eru óðum að klárast í skráningunni og aðeins langur listi spurninga er eftir. Karlotta og Nína munu fara í það á morgun að hafa samband við alla, hver gerði hvað, hvenær og hversvegna. Draugar fortíðar geta engan vegin þagnað og margir eru jafnvel farnir að sjá eftir því að hafa nokkurn tímann komið inn fyrir safnið, hvað þá skilið eitthvað eftir sig þar. Td. hún Svala Sigurleifs en ágegni safnsins á hana jaðrar við einelti. Hún hefur þó tekið því með stökustu ró og er öll hin blíðasta. Stórkostlegar ljósmyndir hennar af helstu kanónum listalífsins á góðri stundu (td af Goddi með sítt hrokkið hár og Posapos í unggæðislegri pósu með stút á varirnar) eru ómetanlegar fyrir 30 þúsund ára sögu Nýlistasafnsins. www.svalas.com . Landic leit við og staðfesti það endanlega að þjóðinni er skipt upp í allavega tvö mismunandi breed. Nína kann bæði tungumálin en Karlotta verður sennilega sett á tungumálanámskeið og meikover þar sem henni verður líka kennt á managingprógrammið SCRAM sem er vísst það nýjasta í Excel bransanum. Hún talaði hinsvegar við Hannes sem ætlar að sinna performansarkívinu í haust af sömu natni og handverkinu, ásamt honum Huginn. Einstaka túristi hefur líka villst inn.
 
mánudagur, 22. jún 13:37
Mánudagurinn á Nýló var góður. Karlotta mætti snemma öll endurnýjuð eftir sólstöðuserimóníu næturinnar og var ekki fyrr komin í hús þegar síminn fór að hringja eftir henni Dísu. Á 10 mínútna fresti þar til hún mætti. Dísa er að fara að sýna í glænýju sýningarrými Roth fjsk. á Eyrarbakka næstu helgi. Nína kom og farið var í það að hringja út fréttatilkynninguna um stórkostlegar heimildarmyndir sem sýndar verða annað kvöld í umsjá Yrsu Fannberg. Emiliano heimildamyndamaður hringdi sérstaklega til að hrósa þessu framtaki og var mikið niðri fyrir en hann er búinn að vera að reyna að ná í skottið á Kossakovski leikstjóra í mörg ár. Þær Karlotta og Nína áttu svo fund með Hildi, Elínu, Dísu og Yvonne um framgang skráningarinnar en þær eru óðum að klára þrívíðu verkin og eru á leið inní það sem er til í skúffunum. Þær eru komnar upp í gott vinnutempó og má búast við því að verkefnið klárist á settum tíma. Óþekkt verk verða birt á heimasíðunni á næstu dögum. Dóra Undir pari kom við með ómetanlegan fjársjóð, stóran kassa og margar möppur um starfsemi gallerísins handa arkífinu um listamannarekin rými. Undir pari var útungunarstöð krúttkynslóðarinnar sagði hún en þar steig Jónsi Sigur sín fyrstu spor í listinni. Upp úr kistunni komu líka svart/hvítar portréttmyndir af sumum stjórnarmeðlimum faðmandi bassagítara.

 

 
mánudagur, 15. jún 16:47
Karlotta mætti snemma en var samt búin að sofa yfir sig enda nýkomin ásamt Huginn og Unnari frá Safnasafninu eftir að hafa dúndrað upp sýningu í Safnamörk safnsins í rjómablíðu og góðri stemningu. Nína, Unnar og Karlotta fóru í gegnum bókverkaeignina og ræddu enn og aftur, fram og aftur um það hvað væri bókverk, sýningarskrá, tímarit og annað óskilgreint. Nína reif í hár sitt, Unnar froðufelldi og Karlotta féll í öngvit. Loksins komst botn í málið og þungu fargi af þeim létt og Nína mun nú geirnegla og óverlokka málið í skráningunni. Magnús Pálsson leit við og bar kennsl á nokkur verk og sagði sögur af nafna sínum sem spilaði á sköflung sinn í ástarsorg. Hildur, Elín og Dísa hlupu svo með honum heim og náðu í marga kassa af Ranismosk fjölfeldinu sem bættist við safnið. Þær tóku sig svo til og rifu út risastór verk úr geymslunni eftir marga góða og nokkra óþekkta og má sjá öll verkin í allri sinni dýrð inni í aftara rýminu. Huginn hefur ekkert sést. Von er á Nessunni í vikunni, hver veit hvað mun gerast þegar hún þyrlar upp rykinu.
 
föstudagur, 5. jún 11:00
Lífið er leikandi létt á Nýló. Unnar kom með nýjan safngrip í gær; skilti frá nágrönnunum á Laugavegi 28. Það er fallegt, soldið gamaldags og minnir óneitanlega á verk eftir Kidda Gúmm. Nína minntist þess að enn ætti eftir að senda honum bréf og lista yfir bókverkin hans í eigu safnsins. Hann vill bæta þeim inní sem vantar. Kolateikningin hennar Ylvu er öll að smyrjast í klessu á veggnum. Svo hverfur hún kannski. Eins er litla slide verkið hans Runo að eyðast líka. Myndin roðnar, brennur smám saman upp. Yvonne bjó sér til aðstöðu til að fara yfir Súm-heimildirnar. Svo þær fari í kerfi sem mun ná yfir aðrar heimildir sem eru í vörslu Nýló eða eru á leiðinni. Kiddi Harðar hafði einmitt samband og upplýsti að nú yrði sýningin um listamannarekin rými í Hoffmannsgallerí tekin niður og heimildarnar væntanlega gefnar safninu. Ef viðkomandi listmenn samþykkja það. Yvonne mun ganga í Súmið bráðum, þegar tími gefst frá skráningunni. Karlotta er nú á fullu að smíða hásæti fyrir sýningu sína með Huginn og Unnari í Safnasafninu. Hún opnar eftir viku og er Unnar að gera Vindhana og sálnahlið og Huginn að sníða skyrtur á Magnhildi og Níels, maístöng með fíflablöðum og lógó. Hásætið hennar Karlottu er himinnhátt eins og markmið þeirra hjóna. Risatór gámur stendur nú fyrir framan Nýló. Yðar óskir svið Junior hafa kannski plantað honum en þeir fara nú hamförum fyrir ofan BDSM kjallarann á Laugavegi 28 (þaðan sem Unnar stal skiltinu) við að breyta efri hæðunum í farfuglaheimili.
 
miðvikudagur, 3. jún 11:15
Nína heldur áfram að fullskrá bókverkin og eru nú spurningamerkin eftir. Unnar og Huginn fundu búnka af póstkortum og öðru prentefni frá Entré Tot og spáðu mikið í það. Tóku þeir bréfaskriftir hans fram til Eggerts og Suðurgötu 7 og lásu vel valin bréf upp. Hann kallaði sig Tóta og spáði mikið í orðið Tussa og bar það saman við ungversku þýðinguna. Pisca. Huginn benti á að það líktist ítalska orðinu yfir sundlaug; piscina. Unnar hélt að nú þyrfti að búa til nýja súbkategóríu í safneigninni; mail-art. Nína spenntist öll upp og dró fram bókverk eftir Tóta, sem hann minnist mikið á í bréfaskriftum sínum, Dirty Rain. Þar rignir pennastrikum yfir klámfengar ljósmyndir. Spurningamerkin eru mýmörg og var ákveðið að Karlotta, Huginn, Nína og Unnar færu yfir þau í sameiningu til að flýta fyrir. Yvonne hefur verið sett í að koma einhverju systemi upp fyrir heimildirnar um listamannarekna starfssemi og byrjar hún að gramsa í heimildunum um SÚM. Dísa, Halbaub og Elín rótera þrívíðu-verkunum fljótt á græna pallinum og minnir stemmingin pínku á frystihús þegar hraðinn er mikill. Í gær tóku þær leifarnar af Thomasi Hirschhorn fyrir. Brot af gólfdúk sem hann lagði á gólfið. Nínu grunar einhvern hressan til að hafa skorið smá bút af til minningar fyrir safnið þegar dúkurinn var rifinn upp. Bráðum fer að koma að stóru skúlptúrunum og verður safnið þá barmafullt þar sem plássið er ekki mikið í frystihúsinu. Karlotta er búin að mastera skirfstofu dummy guide-inn og fer mikinn. Í gær var hún á kafi í bókahaldinu við að borga reikninga, skrifa umsókn til Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og voru Lotta og Nína í beinu útsendingu við Posapos í Feneyjum til að heimta meðmæli sem hann var búinn að lofa fyrir umsóknina. Nína las þau upp til Lottu og var hægt að pína hvað sem er úr hálffullum og dúndurhressum safnstjóranum. Í eftirmiðdaginn lagði svo persneska og seiðandi bóngótrommustemmingu frá BDSM kjallaranum. Leðurliðið komið í magadans með kúskús í hárinu?