Vægðarleysið var algjört í gær, sendir voru póstar og ýmis mál afgreidd og skrásett var af mikilli hörku. Nýjustu fréttir voru þær að búið verður að afgreiða skúffulistamennina 5000 næsta föstudag og er þá búið að fara í gegnum flest, þetta er að verða búið. Þegar upp komst um þetta var ekkert annað í stöðunni hjá skrásetningargenginu en að laumast í lakkrísverksmiðjuna á bólakaf í nýbakaðan lakkrís. Nínu varð líka svo um þessar fréttir að hún þurfti að fara heim að leggja sig. Hvað nú? Karlotta fylltist tómleikatilfinningu en Birta var fljót að aðlagast að vanda. Eftir er reyndar heilmikil tölvuvinna og eftir er að upplýsa um mörg mál, sum verða eflaust aldrei leyst. Einhver í húsinu var svo búinn að panta skjalaeyðingarbíl sem stóð lengi fyrir utan og blokkeraði nýlóbílastæðið og tók Karlotta því sem tákni um að nú væri ekkert annað eftir en að kveikja í öllu. Sem betur fer birtist svo annar bíll á hlaðinu með bílanúmerið NEI þannig að hún hætti við. Það undarlega gerðist svo í dag að allir mættu á sama tíma í vinnuna. Nína hélt áfram að hamast í húsnæðismálunum en það er nýjasta tíska hjá fasteignasölum að vera dazed'n'confused og svara ekki í símann nema í formi twitter skilaboða og sofa frameftir degi. Karlotta hélt áfram í skjalatiltektinni og Birta planar góða tíma framundan. Svo var öllu slegið upp í kæruleysi og farið í ísbíltúr.
Mjöög rólegt hefur verið í dag enda hamfaraveður og mánudagur auk þess sem þögn sló á umhverfið eftir viðburði helgarinnar þar sem Snorri og tribe-ið hanns messaði yfir pöbulnum en 90% prósent mannkyns er víst rusl og Snorri er sá eini sem getur hjálpað okkur að komast í 10% hópinn. Thelma&Louise (í 10%unum) eru farnar á vit örlaga sinna og Elín og Yvonne (báðar líka í 10%unum) eru komnar fram í skrifstofu með litla ferðaútvarpið sitt. Yvonne er byrjuð að rýna í SÚMið fyrir doktorsritgerð sína í þverfaglegum fræðum en hún stefnir saman þekkingu sinni á ofnæmissjúkdómum og SÚMinu. Yvonne er líka með 8 mismunandi ofnæmi og gengur alltaf með adrenalín í vasanum. Birta (10%) sat við tölvuna og pikkaði eins og vindurinn, er farin að færa sig upp á skaptið og afgreiddi konu í Útúrdúr og fræddi hóp úr Austurísku ölpunum um safnið. Eldri maður í þeim hóp var með gorgeir en reyndist vera góður vinur Ívars Valgarðssonar (10%) og fékk símanúmer og heimilisfang hjá kallinum og mun sennilega mæta með hópinn allan í óvænta heimsókn einhverntíma í kvöld. Karlotta (10%) spyr og spyr ýmsa listamenn um listaverkin þeirra í safninu. Hún átti líka leynilegan lönsfund með tveim góðum og þurfti svo að stökkva í erindi til bræðranna á seltjarnarnesi en hún er að opna sýningu í suðsuð á laugardaginn (ókeypis ís handa þeim sem mæta). Hún verður ekki við fimmtudag og föstudag en Andrea (í 10%unum) ætlar að kíkja ef henni verður batnað af svínaflensunni. Karlotta stökk til við þessar flensufréttir og pantaði gám af munngrímum og skylda verður að vera með þær í safninu. Spurning um að hanna sérstkan hanska líka, jafnvel silfurlitaðan.
Í dag gerðust hlutirnir eins og eftir forskrift. Við fengum yfirdráttarheimild fyrir leigunni, Snorri kom með innplöstuð dress og dömu uppá arminn. Kling lánaði myrkvunartjöld fyrir kvöldið og skráningargengið tók til og þreif og safnið var svo allt myrkvað og alltíeinu voru jól í júlí. Rúnar mætti með græjurnar og undirbjó galdurinn. Karlotta taldi tímarit, fór í innkaup og skipti um klær á snúrum. Birta kom og heftaði. Draumamaskínurnar fluttu svo gesti inn í aðra heima og skildi við það af-geðveikjað og núllað. Mæting var mjög góð, Alli ljós, Curver og Erla Þórarins fengu góðan skammt sem mun breyta stefnu tónlistar, danslistar og myndlistar í landinu. Hópur af útilegufólki, menn konur og börn, fengu sér pillu og þar með var sumarleyfinu þeirra reddað. Allir úr SÍMvortexinu komu og sáu ljósið. 25 mínútna draumatripp er allt sem þarf.