mánudagur, 28. sep 18:04
Unnar er mættur á svæðið hress og ferskur (fyrir utan flensuna) og gott að fá ný augu inn í safnið sem nú er allt í drasli og rykfallið og bíður þess að fá að komast í nýtt hús (eins og fönixinn margumtalaði uppúr öskustónni). Birta er líka komin frá speed-deitvinnuþrælkuninni í Malmö þar sem vel var tekið á móti henni, Hilton, kampavín og glóbalkærleikur og öll norræna og baltíska myndlistarelítan saman í einni rútu syngjandi í kór, eplahátið og gufuböð. Nína telur niður dagana fram að fæðingunni og er að hnýta síðustu hnútana í formennskunni, scram-a milljón krotmiða og hafa uppá Håkan smið sem var valinn félagsmaður mánaðarins og fékk 230 þúsund í verðlaun beint af reikningi safnsins. Hann er löngu farinn till Noregs með peninginn. Karlotta þarf sennilega að fljúga yfir til að afhenda verðlaunaskjalið. Gunnhildur nýstjórnarliði mætti galvösk og reddaði stafrænu bakköppi og þær Elín tóku til í tölvum, tæmdu kubb og fylltu annan enda miklir digital snillingar þar á ferð. Yvonne hélt áfram að rýna í skjöl og föndra möppur og Karlotta umsýslaði. Nokkrir góðir komu í heimsókn, nokkrir slæddust inn í Útúrdúr (td. Hannibal tvífari Antony Hopkins), nokkrir flottir hringdu og nokkrir frábærir röltu framhjá.
 
föstudagur, 25. sep 16:42

Á þriðjudaginn var var haldinn aðalfundur og kosin ný stjórn. Fundurinn var vel sóttur og gekk vel, umræður skemmtilegar og allmennt jákvæður. Sumir höfðu eðlilega tekið þessu bloggi bókstaflega og bjuggust við bjór og snakki en fundu fyrir bónuskleinur og verkamannakaffi en þeir bloggtímar eru liðnir og nú verður einungis sagt frá staðreyndum. Nína var kvödd með virktum og Andrea líka, mikið klappað og nokkur tár sáust falla í tilfinningaumrótinu enda miklar breytingar framundan og stórkostleg afrek að baki. Nýja stjórn skipa: Birta Guðjónsdóttir formaður, Tinna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri, Páll Haukur Björnsson, Gunnar Már Pétursson og Gunnhildur Hauksdóttir í aðalstjórn en áfram sitja þau Huginn Þór Arason, Unnar Örn og Karlotta Blöndal á varamannabekknum. Það er ljóst að það eru mörg spennandi verkefni framundan og heldur betur björt framtíðin í höndum nýrra stjórnarliða.

 
mánudagur, 21. sep 16:23
Mánudagur fyrir aðalfund var frekar viðburðalítill. Yvonne og Tinna sátu hlið við hlið við vinnu sína og Nína við endan, komin hálfa leið inn í mjólkurþokusæluna margumtöluðu og man ekkert stundinni lengur, Karlotta þurfti stöðugt að minna hana á hvað einföldustu hlutir hétu eða væru, við hvern hún væri að tala þá stundina og hvaða dagur væri. Það er ekki seinna vænna að skipa nýjan forman. Á morgun verður blásið til kosninga og hefur stjórnin áhyggjur af því að lýðurinn hakki í sig stofnunina en það er auðvitað vitleysa því félagsmenn Nýlistasafnsins eru allt öðlingsfólk sem vit hefur á því að leggja nafn sitt við Nýló. Það er mikill spenningur í safninu yfir því hverjir munu bjóða sig fram á móti tillögu sitjandi stjórnar. Það verður kosningavaka, fylgst með nýjustu tölum af flatskjá og boðið upp á bjór og snakk. Verður bylting? Eða bara kósí?
 
föstudagur, 18. sep 16:38
Í vikunni var það helst að frétta að bókin okkar 30 ár í vindinum fékk sérstakan útgáfustyrk frá borginni. Gerla okkar hafði komið verkefninu á framfæri og eigum við henni þá stórkostlegu summu í púkkið að þakka. Nú þarf bara að skvísa verkefninu í gegn og situr Tinna flesta daga við það og rífur hár sitt í frústrasjón yfir umfangi bókarinnar sem mun eflaust verða tilnefnd sem bók bókanna í Frankfurt okkar íslendinga. STjórnarfundur var haldinn þar sem helstu mál voru rædd og alvarleiki framtíðarinnar, hlutverk safnsins og líka hlutverkaleiki. Huginn brá sér þá í gerfi hundsins úr leikritinu sem svo vel speglar hyldýpi sálar listamanna og hugsuða; Frida Kahlo. Nína var sambrýnd þennan dag og Andrea með pensil í hárinu. Aðalfundurinn var ræddur og skipulagður og verður ríkjandi fasismi og engar vöfflur. Birta fundarbyltingur mun leiklesa manifesto Palla Ragga Smjörva glóðvolgt frá Feneyjum með kröfuspjald frá Gunna Skegg í hendinni en báðir ætla að bjóða sig fram í stjórn en hvorugur verður viðstaddur á fundinum. Karlotta heldur áfram að skrifa ritgerðir um nýlo, skýrslur og umsóknir, svara í síma og vera allmennt skrifstofuleg í tómu safninu, komin með kryppu og bakflæði. Rannver kom og skilaði Dorotheu og Hamilton í góðu formi og gaf safninu fyrstu og stórkosleg hefti Birtings en fékk í staðinn kassa af sýningarskrám. Ákveðið var að halda áfram að skiptast á gersemum. Yrr safnstjóri í Svíþjóð kom við og tók Birtu tali um fyrirhugaða ferð hennar til Skánar í portfoliobúðir þar sem Birtu verður þrælað út á speed-deitum við listamenn í sýningarstjóraleit. Sem betur fer fær hún kampavín og snittur að launum í nýja húsnæði Moderna. Nína er rétt í þann mund að landa húsnæðissamning sem mun tryggja Nýló öruggt skjól næstu 2 árin en safnið mun opna með glæsilegri sýningu á nýjum stað, sýningu á úrvalsliði íslensku listaelítunnar, 50 bestu, undir yfirskriftinni Nú er frost á fróni.
 
mánudagur, 14. sep 15:11
Karlotta mætti í morgun og var lengi vel ein í kotinu þar til Yvonne kom. Nína er heima með veik börn. Birta leit við smá að græja f. New York. Halli kom við að fá umslag á leið í jarðaför. Tveir frakkar héngu lengi í Útúrdúr og annar þeirra keypti allt sem Lóa í FM Belfast hafði komið nálægt, gott efni í stalker þar á ferð. Yvonne er að búa um Súm arkífið og föndrar grimmt umslög og kassa. Karlotta orðin blind af umsóknarskrifum sem aldrei taka enda. Annars allt við það sama úti fyrir, rok, Egill ólafs að dytta að húsinu sínu hinum megin við götuna, sonur hanns í verkamannagírnum talar stíft í síma hérna megin við götuna, týnda hrossið eitthvað á flækjast á svölunum sínum, ringlaðir túristar að leita að ferðaskrifstofum og arkitektar með kaffi og skjalatöskur.
 
föstudagur, 11. sep 16:38

Nína, Huginn og Karlotta skelltu sér í bíltúr í myndlistarvölundarhús þeirra Hafnfirðinga, Hafnarborg, þar sem Hafið er útgangspunktur sýningarinnar. Eftir mikið vagg og veltu upp á dekki og niðrí káetu, sjóveiki, almenna ringulreið og leit að sjóndeildarhring ultu þau út glorhungruð og brunuðu beint á Tíuna á Grensásveginum í pekingönd og kók þar sem ræddir voru gamlir tímar, vöðvaslakandi barnauppeldi, nýjir tímar og misskiling ýmiskonar. Þegar heim kom í bæinn voru Birta og Ámi hress og kát við vinnu sína en 30 milljón dala saga Nýló kemur út von bráðar. Nokkrir fundir voru haldnir inná hangsi, Þór mætti í Útúrdúr, Úa gerði heimalærdóminn sinn og Tinna kom stútfull af nýjum prentupplýsingum, talandi tungum sem aðeins Ámi kunni skil á, eitthvað um Bölk og afskorninga og allt fyrir utan virðisaukaskatt. Birta kom svo aftur eftir að hafa skroppið í kínverskar stungur, hún þarf að vinna í janginu en er með jingið á hreinu og eru nálastungur víst eins og lyf við kvillum nútímans. Í lok dags leit hún Ásta Ólafs við með tvo kassa af tímaritum, gömlum fundargerðum og skýrslum sem á alveg eftir að kíkja á og spurning hvað leynist í þeim bunka og hafði Ásta á orði að verkefnið væri sennilega endalaust og mikið værum við heppin að innan safnsins væru nokkrir góðir með sens fyrir þeirri þráhyggju og ástríðu sem þarf til að klára svona verkefni og tökum við undir það. Í gær kom hingað belgi með álíka passíon sem ætlar að opna framúrstefnulegt og fókuserað residensí á Þingeyri og ræddi Karlotta lengi við hann um möguleika verkefnisins og framtíðaráform, öll stjórnin er rosa heit fyrir verkefninu og sér vöfflurnar fyrir sér í hyllingum.

 
fimmtudagur, 10. sep 16:25

Karlotta mætti ekki fyrr en kl 12 og Nína var forfölluð um morguninn. Huginn hafði mætt snemma og var ásamt Birtu að gæta gersemanna þegar inn kom valsandi Frikki Þórshamar og vildi ólmur sýna nýjustu sköpun sína á striga en hann er núna ásamt Ara A. að láta sveltandi börn á Akranesi mála ramma úr tökum sínum úr búsáhaldabyltingunni á stærstu striga sem fást í Föndur og litir. Huginn ætlar að fjalla um það í beinni útsendingu á Ruv núna um helgina. Til að ballansera skynfærin eftir þessa heimsókn voru skoðuð næm og djúsí verk eftir hana Guðnýju Rósu sem Birta mun sýna á sýningu sem hún er að skipuleggja í New York. Liz listfræðingur kom og tók viðtal við Karlottu um teikninguna en hún er að vinna rannsóknarverkefni um teikninguna í íslensku samhengi. Eldri hjón frá Kanada komu og voru mjög hrifin af safninu en konan hafði verið Níels Hafstein þeirra Kanadamanna hjá Nýlói í Nýfundnalandi. Maðurinn hennar er frægur rithöfundur á bókmenntahátíð, einskonar Kristín Ómars. Niels Hafstein og Kristín Ómars á kanadísku. Maggi Jens leit við í spjall og gaman að góðum. Svo komu nokkur eftirlegulömb frá FB kúrsi sem krassaði í safninu í gær. Karlotta hafði einhvernveginn gleymt því eða misskilið heimsóknina og allt í einu fór 80 manns að streyma inn og spyrja um viðverulista og verkefnabók og Nýló breyttist í miðstöð fyrir flæðandi ungmenni í leit að list. Gurra leit líka við í gær í leit að einhverjum til að taka að sér Útúrdúr en búðin er í alvarlegri tilvistarkreppu og rétt skrimtir, það eru samt margir sem vilja berjast fyrir búðinni enda vel þess virði. Nína og Úa sátu og leystu margskonar verkefni. Stutt er í samningagerð um leigu á húsnæði, verið er að fjarlægja 40m kexofn úr nýja rýminu og finna útúr geymslumálum. Nína er líka öll að stækka og gengur með rólegu týpuna sem lætur sjá sig í oktobér, eins og glóðvolgt kex, spurning um að gera úr þessu prjojekt á nýja staðnum. Eða ekki. Hver veit samt hvað kemur útúr aðalfundinum, eru Friðrik Þórshamar og Ari A að fara að bjóða sig fram í stjórn?

 
miðvikudagur, 9. sep 12:36
Andrea og Tinna eru enn að glíma við bókhaldið með aðstoð Lalla Vill. Stemma af og skrapa saman, ma fyrir ársreikinginn. Sem verður lesinn verður upp á aðalfundinum 22. sept. Fundarboð var sent út til félagsmanna á dögunum og er búist við rífandi mætingu eins og ávalt. Ný framboð til stjórnarsetu munu afhjúpa sig eftir mikla leit og tælingar. Nýjar vonarstjörnur; Gunni Skegg og Palli Smjörvi. Svo fer Birta.is í formannsstólinn, Tinna.com í framkvæmdastjóranskikkjuna og Huginn, Karlotta og Andrea fara á hliðarlínuna. Varamannabekkinn. Munu sitja þar reykjandi í dúnúlpu og hjálpa til við að leggja á ráðin. Unnar verður áfam indjáninn. Nína er mjög spennt yfir þessu og getur ekki beðið eftir að komast í barneignaleyfið. Hún var annars á Hellnum seinsustu daga í fríi; undir jökli í jóga. Karlotta hefur verið að klára ýmsar skýrslur og umsóknir. Stærsta umsóknin er til Kultur Kontakt Nord fyrir sýningarstjórabúðir í Nýlistasafninu. Hugmyndin er að þræla nokkrum erlendum kúratorum út í rannsóknum á safneigninni og sögu safnsins. Ein umsókn hefur nú þegar borið árangur; Elín fékk átaksstyrk frá borginni til að hefja skráningu safneignarinnar í tölvuna til sex mánuða. Fyrirhugaður flutningur Nýlistasafnsins er í fullu gangi og er samningagerð komin af stað. Safnið er að sanka að sér lögfræðingum og sérfræðingum til að tryggja safninu eins djúsí díl og möguleiki er á. Leigan á Grettisgötunni er alltof há og fer meira en helmingur af rekstrarfé Nýlistasafnsins í leigu. Sem er algjört skipbrot og róar safnið stanslausan Lífróður.
 
miðvikudagur, 2. sep 14:49