þriðjudagur, 30. nóv 16:10

Ársfundur Félags Nýlistasafnsins var haldinn miðvikudaginn 3. nóvember. Kl:17:30 í húsakynnum safnsins við Skúlagötu 28. Hér fyrir neðan er hægt að lesa skýrslu stjórnar vegna ársins 2009-2010. Auk þess er hægt að nálgast fundargerðina hér .

 

Skýrsla stjórnar Nýlistasafnsins - Aðalfundur 2010

Skýrsla tímabilsins 22. september 2009 til 14. október 2010 (og örlítið skyggnst inní framtíðina).

STJÓRN FÉLAGS NÝLISTASAFNSINS
Seinasti ársfundur var haldinn 22. September 2009. Ný stjórn var kjörin:
Birta Guðjónsdóttir, formaður, til 1 árs
Tinna Guðmundsdóttir, gjaldkeri, til 1 árs
Gunnhildur Hauksdóttir, varaformaður, til 2 ára
Páll Haukur Björnsson, stjórnarmeðlimur, til 2 ára
Gunnar Már Pétursson, ritari, til 2 ára
Huginn Þór Arason, varamaður í stjórn
Karlotta Blöndal, varamaður í stjórn
Unnar Örn Jónasson, varamaður í stjórn
Þessir fóru úr stjórn:
Nína Magnúsdóttir, formaður
Andrea Maack, gjaldkeri
Karlotta Blöndal, sagði af sér varamennsku í stjórn í febrúar.


STARFSMENN SAFNSINS
-Birta Guðjónsdóttir, formaður stjórnar, 80% staða
-Tinna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, 62% staða

STARFSMENN Í SÉRSTÖKUM VERKEFNUM
-Elín Þórhallsdóttir, starfsmaður safneignardeildar, 50% staða til September 2010.
-Gunnhildur Hauksdóttir við þróun og heimildaöflun í Arkíf um Listamannarekin rými.
-Sólveig Jörgensen við flokkun og skráningu heimildasafns um Gjörninga á Íslandi.
-Hildur Rut Halblaub við flokkun og skráningu Póstlistar (mail-art) í heimildasafni Nýlistasafnsins.
-Nánar verður komið að þessum verkefnum síðar

-Inesa Pavlovska og Salne Buciute, nemar í listfræði frá Listaakademíunni í Vilníus, Litháen, unnu sem sjálfboðaliðar í safninu um 3 mánaða skeið í sumar, fyrir tilstilli styrks frá Erasmus. Þær unnu við skönnun efnis við heimildasafn safnsins og sýningu á verkum Bjarna H. Þórarinssonar, auk þess sem þær aðstoðuðu við uppsetningu sýninga og viðburða í safninu.


FÉLAGSMENN
Félagsmenn eru nú 281 talsins.
25 gengu í félagið frá síðasta aðalfundi.

Okkur langar að minnast Ingileifar Thorlacius, félagsmanns og fyrrum stjórnarmeðlims safnsins, sem lést á árinu. Blessuð sé minning hennar.


STJÓRNARFUNDIR
Alls voru haldnir 32 stjórnarfundir frá síðasta aðalfundi.


ÚTGÁFA
Bókin „Nýlistasafnið / The Living Art Museum 1978-2008“ kom út 26. febrúar 2010, í ritstjórn Tinnu Guðmundsdóttur. Bókin er 360 bls. hönnuð af Ármanni Agnarssyni, gefin út af Nýlistasafninu. Bókin er í sölu í bókabúðum á höfuðborgarsvæðinu og áætlað er að koma henni í dreifingu erlendis á næsta ári.


SAFNEIGN
Í lok árs 2009 lauk svokallaðri forskráningu á safneign safnsins, þ.e.a.s. skráningu allra verka auk ljósmyndunar þeirra og pökkunar með skráningarnúmeri.
Safnið gat fjármagnað starf starfsmanns safneignardeildar, Elínar Þórhallsdóttur, fyrstu 3 mánuði ársins fyrir tilstilli styrks frá Þjóðhátíðarsjóði. Sá tími var nýttur til skráningar safneignar inn í Virtual Collection gagnagrunninn, sem er aðgengilegur leitar- og upplýsingagrunnur sem helstu söfn á landinu nota. Elín hélt áfram því mikilvæga starfi til loka ágústmánaðar, fyrir tilstilli 6 mánaða Átaksverkefnis Vinnumálastofnunar, þar sem hún vann í hálfu starfi fyrir laun, sem voru greidd að hluta frá Vinnumálastofnun og að hluta frá Nýlistasafninu. Verkefninu; að skrá um 2.000 verk safneignarinnar inn í gagnagrunninn, lauk nú í lok ágúst.
Vinna við safneign á árinu hefur aðallega falist í því að búa vel um safneignina í aftasta rými í nýju húsnæði hér við Skúlagötu. Þ.e. að pakka inn í réttar pakkningar, huga að hita- og rakastigi í geymslum, útbúa hirslur og rekka fyrir sérstök verk og útbúa geymslu í aftasta rými, sem hæfi vel verkum safnsins til geymslu. Settur var upp hitablásari, rakamælir og vifta í miðju rýmisins,. Loks voru verkin færð inn í hilluskipulag. Þessari vinnu er ekki lokið og heldur áfram.
HEIMILDASAFN OG INNRI STARFSEMI SAFNSINS
-Skjalasafn Nýlistasafnsins var flokkað og formlega afhent Borgarskjalasafni til varðveislu þann 15. febrúar 2010. Unnið er að því að búa til skjalaskrá yfir gögnin til að opna fyrir aðgengi fyrir almenning.

Í mars voru heimildasöfn safnsins um Listamannarekin sýningarými og um Gjörninga á Íslandi, sett í hillur í safnrýminu og skrifstofa þess og eldhúsaðstaða sett upp, allt með húsgögnum sem safnið átti fyrir eða gat nálgast sér að kostnaðarlausu. Safnið fékk til liðs við sig styrkþega Nýsköpunarsjóðs námsmanna yfir sumarmánuðina, Sólveigu Jörgensdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðing. Hún hefur skráð núverandi heimildasafn safnsins um Gjörninga á Íslandi, en það safn er í stöðugri vinnslu og þróun. Unnið hefur verið að því að afla frekari heimilda í heimildasafn um listamannarekin sýningarými á Íslandi til viðbótar við það sem fyrir var til í safninu. Styrkur fékkst fyrir tilstilli Átaksverkefnis vinnumálastofnunar fyrir starfsmanni í hálfri stöðu, Gunnhildi Hauksdóttur varaformanni safnsins. Hún hefur unnið að þróun og vexti heimildarsafnsins til 6 mánaða og lýkur hennar vinnu nú í desember. Bæði þessi heimildarsöfn eru og verða í stöðguri vinnslu í safninu til frambúðar.

-Í mars tók stjórn Nýlistasafnsins á móti einum af samstarfsaðilum sínum í verkefninu “Uppspretta”, sem hverfist um samstarf við nokkra valda sýningarstjóra frá Norðurlöndunum, sem heimsækja safnið og kynna sér starfsemi þess, sögu og samhengi, listalífið og möguleika þess. Í kjölfarið vinna samstarfsaðilarnir verkefni fyrir safnið, í formi sýningar, útgáfu, fyrirlestraraðar, málþings eða pallborðsumræðna. Verkefnið er styrkt af Norrænu Menningargáttinni/Kultur Kontakt Nord.
Tone Hansen, sýningarstjóri í Henie Onstad samtímalistasafninu í Osló heimsótti safnið og kynnti sér sérstaklega safn þess af Póstlist / mail-art, en nokkuð er um slík verk í heimildasafni safnsins, frá 8. áratugnum.
-Í kjölfar þessa hvöttum við listfræðinemann Hildi Rut Halblaub til að kanna Póstlist safnsins nánar, en hún hafði áður sýnt því áhuga. Hildur hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna til að vinna að skráningu og ástandsmati á safni Nýlistasafnsins um Póstlist, sumarið 2010, og hefur nýlokið verkefni sínu.
-Í apríl tókum við líka á móti öðrum samstarfsaðila safnsins í “Uppsprettu” verkefninu; Kim Einarsson, forstöðumann Konsthall C í Stokkhólmi, og sjálfstæðum sýningarstjóra.

SÝNINGAR OG VERKEFNI OPIN GESTUM Í SAFNRÝMINU
Fimm sýningar voru opnaðar í safninu á tímabilinu og töluverður fjöldi viðburða áttu sér stað;
Opnunarhátíð safnsins í febrúar var kallað eftir félögum safnsins og boðið upp á mikla gjörningadagskrá, þar sem um 30 listamenn stigu á stokk og kveðjur, í formi gjörninga og upplestra, voru fluttar/framkvæmdar, einnig fyrir hönd félagsmanna Nýlistasafnsins erlendis. Meðal þátttakenda voru: Nýlókórinn, Magnús Pálsson, Hjálmar Sveinsson & Oddný Eir Ævarsdóttir, Ghostdigital og Finnbogi Pétursson, Hannes Lárusson, Gjörningaklúbburinn, G.Erla, Daði Guðbjörnsson, Birna Þórðardóttir, Bjarni H. Þórarinsson & Guðmundur Oddur-Goddur, Snorri Ásmundsson, Ásmundur Ásmundsson, Olivia Plender, Wolfgang Müller, Hettie van Egten, Jan Voss & Rúna Þorkelsdóttir, Steingrímur Eyfjörð, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og margir fleiri.

-Samræði við safneign, var sýning á yfir 30 verkum úr safneign, sem valin voru af stjórn. Nokkru síðar opnaði viðbót við þá sýningu, sem átta ungir listamenn af settu saman úr verkum sem þeir völdu úr safneigninni í kjölfar þriggja vikna kynningarferlis í safninu undir handleiðslu Birtu og Páls Hauks.

-CharlieHotelEchoEchoSierraEcho, sýning þýska listtvíeykisins Rosen/Wojnar sem búsettir eru í Berlín. Florian Wojnar og Nikolai von Rosen komu í safnið í vettvangskönnun í janúar og svo aftur í maí. Í sýningu sinni vísuðu þeir beint til valinna verka úr safneign. Sýningin var styrkt af Goethe Institute og var framlag safnsins til Listahátíðar í Reykjavík.

-Sýningin Old News opnaði júlí, þar er um að ræða ferðasýningu, verkefni danska sýningarstjórans Jakob Fabricius, stýrt af Jakobi og stjórn Nýlistasafnsins en þungamiðja hennar eru staflar af dagblöðum sem hvert um sig er unnið af mismunandi listamönnum. Sýningin var hér sett upp í 11. sinn og var styrkt af Danish Art Council.
Samhliða henni var einnig Skríllinn GEGN ákæruvaldinu, eins dags atburður og sýning í framhaldi, stýrt af Steinunni Gunnlaugsdóttur, Snorra Úlfhildarsyni, Páli Hauki Björnssyni og listamönnunum. Sú sýning hófst með stórri, pólitískri uppákomu í safnrýminu þar sem fram komu og sýnd voru verk um 30 íslenskra listamanna allra listgreina, til stuðnings hinum svokölluðu níumenningum.

-Í september opnaði einkasýning Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar á myndbandsverki þeirra „Lobbyists“. Sýningin var styrkt af Myndstefi.

-Í lok september sýndi Nýlistasafnið franskar animation-hreyfimyndir í samstarfi við RIFF Kvikmyndahátíð í Reykjavík og Alliance Francais.

• Í október unnu nemendur úr LHÍ, grafískri hönnun, undir handleiðslu Ármanns Agnarssonar og Tinnu Guðmundsdóttur, í safninu. Þau skoðuðu verk úr safneign og enduðu kúrsinn á að hanna kynningarefni fyrir „ímyndaða sýningu“ í safninu á verkum úr safneigninni.

• Í lok október opnaði yfirlitssýning á verkum Bjarna H. Þórarinssonar í safninu. Sýningarstjóri er Jón Proppé listheimspekingur. Á opnun sýningarinnar og yfir sýningartímabilið var boðið uppá gjörninga og umræður um textanotkun í myndlist, undir stjórn Jóns Proppé. Stór hluti sýningarinnar er byggður á hljóðupptökum og vídeóupptökum af upplestri ýmissa á texta Bjarna.

-Páll Haukur stjórnarmeðlimur valdi Söru Björnsdóttur sem listamann mánaðarins í Nýló, og gerði Sara verk beint á vegg safnsins. Sara reyndist verða listamaður ársins í safninu, því þemað datt uppfyrir og verkið stendur enn.

-Í mars sýndu nemendur í myndlistardeild Listaháskóla Íslands verk sín í kraftmikilli gjörningasýningu undir stjórn Erlings T.V. Klingeberg listamanns, þar sem gjörningaformið var í forgrunni..

-Í mars hélt Listfræðafélag Íslands málþing um “Túlkun myndlistar á líðandi stundu” í samstarfi við Nýlistasafnið og í safnrými þess. Þátttakendur voru Jón Proppé, listheimspekingur og gagnrýnandi, Margrét Elísabet Guðmundsdóttir, fagurfræðingur og gagnrýnandi, Ólafur Gíslason, listfræðingur og gagnrýnandi, Oddný Eir Ævarsdóttir, safnaheimspekingur og rithöfundur, Þóra Þórisdóttir, mynlistarkona og gagnrýnandi.

-Í apríl bauð safnið gjörningalistakonunni Mörthu Wilson til landins, til að flytja tvo fyrirlestra um gjörningalist í New York frá 7. áratugnum í Nýló og í LHÍ um listamannarekin sýningarými á heimsvísu, með sérstaka áherslu á sitt eigið sýningarými í New York; Franklin Furnace. Koma Mörthu Wilson til Reykjvíkur var styrkt af Sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.

-Í júní átti safnið í samstarfi við listahátíðina Jónsvöku, og fóru fram dans-gjörningar í safnrýminu sem hluti hátíðarinnar.

-Íslenski Safnadagurinn rann upp þann 11. júlí og varð mikilvægur dagur í sögu Nýlistasafnsins en þann dag voru safninu veitt Íslensku Safnaverðlaunin 2010, sem veitt eru af Safnaráði annað hvert ár. Formaður stjórnar veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fyrr um daginn bauð safnið upp á leiðsögn um yfirstandandi sýningu og kynningu á safneigninni.


SÝNINGAR OG VIÐBURÐIR UTAN NÝLISTASAFNSINS
(verkalán, samstarfsverkefni, málþingsþátttaka, fyrirlestrar)

-Í janúar hófst samstarf Nýlistasafnsins við Arkitektadeild Listaháskóla Íslands, en útskriftarnemendum var sett fyrir það verkefni fyrir að hanna nýbyggingu fyrir Nýlistasafnið. Útskriftarverkefni nemenda voru kynnt á útskriftarsýningu LHÍ í Hafnarhúsinu í maí.

-Nýlistasafnið lánaði listaverk úr safneign sinni á sýningar í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum og Hafnarhúsi, svo og til Listamiðstöðvarinnar Hafnarborgar í Hafnarfirði. Safnið skannaði einnig inn ljósmyndir og gögn fyrir Listasafn Íslands, vegna heimildaöflunar fyrir hina Íslensku Listasögu.

-Í október 2009 var tveimur fulltrúum safnsins boðin þátttaka í málþingi um listamannarekin sýningarými á vegum listamannarekna gallerísins Signal í Malmö og fóru stjórnarmeðlimirnir Karlotta Blöndal og Gunnar Már Pétursson þangað, héldu fyrirlestur um Nýlistasafnið og áttu í samræðu við kollega.

-Í maí flutti Birta Guðjónsdóttir fyrirlestur um Nýlistasafnið og íslenska myndlist í listamiðstöðinni Loft Project Etagi í St Pétursborg, Rússlandi. Í byrjun maí kynnti Birta Nýlistasafnið fyrir nemendum í Listaháskóla Íslands, í fjölnotasal Hafnarhússins.

-Í september var fulltrúa Nýlistasafnsins boðið að taka þátt í málþingi um gjörningalist á Norðurlöndum, sem hluti af listahátíðinni ANTI í Kuopio, Finnlandi. Gunnhildur Hauksdóttir varaformaður fór þangað og hélt fyrirlestur um sögu Nýlistasafnsins sem megin-vettvang gjörningalistar á Íslandi, um gjörninga-arkíf safnsins og um safnið almennt. Í september hóf Gunnhildur einnig hlutakennslu í Myndlistardeild Listaháskóla Íslands um listamannarekin sýningarými á Íslandi, sem byggir á heimildasafni Nýlistasafnsins. Fleygurinn fer fram til áramóta, í LHÍ og safnrými Nýlistasafnsins.


TÆKJAKOSTUR
Í September keypti safnið nær ónotaðan HD-skjávarpa á afar góðu verði. Safnið mun leigja varpann út til menningarstofnana gegn gjaldi, sem gengur upp í kostnaðinn.

Safnið keypti notaðan Blueray-dvd spilara á góðu verði.

Safnið keypti notaðan hljóðmixer á góðu verði.

Gert var við aðaltölvu safnsins í sumar en hún er komin vel til ára sinna. Starfsmaður safneignardeildar vinnur á gamla kjöltutölvu, sem safnið keypti fyrir nokkrum árum. Aðrir starfsmenn og stjórnarmenn vinna á eigin tölvur.

Safninu barst nýlega gjöf frá Önnu Hallin og Olgu Bergmann, þrjú stór sjónvarpstæki, og kann safnið þeim bestu þakkir fyrir!

FJÁRMÁL
Safnið fékk 4.200.000 kr. styrk frá Reykjavíkurborg, 8.000.000kr. frá Menntamálaráðuneytinu, 400.000 frá Þjóðhátíðarsjóði vegna skráningarvinnu safneignar og 500.000 frá Safnasjóði sem rekstrarstyrk.
Styrkir vegna bókarinnar fengust frá Reykjavíkurobrg, Hagþenki, Bókmenntasjóði, Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar, Safnasjóði og Francescu Thyssen Bonemizsca von Habsburg. Auk þess keypti Utanríkisráðuneytið 40 stykki af bókinni, sem verða kynnt í sendiráðum Íslands og kynningum erlendis.

SÖFNUNARSTEFNA OG LISTAVERKAGJAFIR
Söfnunarstefna stjórnar var mörkuð fyrri hluta árs og hljóðar svo: “Safnið tekur við listaverkagjöfum en áskilur sér rétt til að hafna verkagjöfum, byggt á listrænum forsendum eða vegna geymsluvanda. Einu sinni á ári kemur stjórn Nýlistasafnsins sér saman um val á einum félagsmanni með það að markmiði að óska eftir verki/verkum frá honum inn í safneign sína, nýtt eða eldra verk.”

Listaverk eftir eftirfarandi listamenn voru tekin í safneign:
Steingrímur Eyfjörð, Magnús Pálsson, Eric Anderson, Nikolai von Rosen & Florian Wojnar, danski listahópurinn Perfyme, Helgi Ásmundsson. Bókverk eftir: Unnar Örn Jónasson, Oliver Kochta, Lucy Harrison, John Wood & Paul Harrison, Fiona Robertson og Stig Brogger.
Stjórn hefur komið sér saman um að biðja sérstaklega Helga Þórsson myndlistarmann, um að gefa verk í safneignina, og hefur Helgi áhuga á því og hefur staðfest að hann muni gefa safninu verk eftir sig á næstu mánuðum.

HÚSNÆÐISMÁL
September 2009:
Greint var frá fyrirætlunum stjórnar á síðasta aðalfundi um að segja upp leigunni á Laugavegi 26, vegna hækkunar, og taka á leigu húsnæðið á jarðhæð Skúlagötu 28, þar sem kexverksmiðjan Frón var áður til húsa. Gerður var leigusamningur til 5 ára og var hann undirritaður af nýjum formanni og nýjum framkvæmdastjóra.
Í september fóru Nína og Birta á fund aðstoðarmanns mennta- og menningarmálaráðherra og skrifstofustjóra ráðuneytisins, og sóttu um 3 milljóna króna aukafjármagn vegna flutnings safnsins í nýtt húsnæði og kostnaðar við að standgera listaverkageymslu. Þær voru veittar.

Í september og október var orkunni beint að mestu í að klára pökkun á verkum safneignarinnar til flutnings á Skúlagötu 28. Flutningur verkanna frá Laugavegi að Skúlagötu fór fram í lok október  undir stjórn Tinnu. Þann 1. nóvember var lyklunum að rýminu að Laugavegi 26 skilað. Verkunum var komið fyrir á 3. hæð Frón-hússins, en stjórn hafði gert samning um að fá að geyma verkin þar í fáeina mánuði, á meðan hreinsun og undirbúningur rýmisins á jarðhæð færi fram.

Húsnæðisframkvæmdir: Mikil vinna var fyrirliggjandi í nýju húsnæði á jarðhæðinni, sem var unnin í verkstjórn Gunnhildar stjórnarmeðlims og hófst sú vinna í ágúst 2009. Það þurfti að hreinsa burtu bakaraofna kexversmiðjunar, brjóta leiðslur, rífa niður veggi og reisa aðra, búa til dren, leggja pípulagnir, laga rafmagn, háþrýsti-þrífa, mála, sprautumála, hreinsa flísar og hafa umsjón með iðnaðarmönnum. Félagsmenn voru kallaðir til hjálpar og Fagmenn.is ráðnir. Það var hreinsuð málning af gólfum svo í ljós komu flísalögð gólf kexverksmiðjunar sem nú einkenna safnið. Hver einasta spýta var nýtt og öll stjórnin var eins og í herskyldu ásamt kröftugum félagsmönnum að pússa, brjóta, hreinsa, mála og laga. Húsið var opnað í febrúar en þá átti enn eftir að flytja safneignina niður. Húsaviðgerðum var ekki lokið. Við lögðum áherslu á að hreinsa vel upp, sótthreinsa og velja vandlega efni sem notuð væru í innra rýmið svo vel færi um safneignina, fá raka- og hita- mæla og undirbúa rýmið áður en safneign var að lokum flutt niður nú í júní. Safneignin er núna í fyrsta skipti í langan tíma í einu safnrými ásamt annarri starfsemi safnsins. Húsnæðisviðgerðum er þó fjarri því lokið, það á eftir að gera merkingar utandyra, mála glugga og ljósarennur, bæta aðgengi fyrir fatlaða, salernisaðstöðu, laga rafmagnstokka, reisa upphengis-veggi og fleira.
~
Að koma jarðhæðinni á Skúlagötu í það horf sem hún er í núna skal ekki dyljast að var TÍTANÍSKT verkefni og safninu dýrt þó allt hafi verið sparað og nýtt eftir fremsta megni. Þjónusta Fagmanna.is reyndist dýrari en kostnaðaráætlun þeirra sagði til um enda óx verkefnið framúr áætlunum, eins og oft vill verða með iðnaðarframkvæmdir. En þetta hafðist að lokum með ómetanlegri hjálp félagsmanna og er ekki úr vegi að þakka þeim sem hönd lögðu á plóg, sérstaklega fyrir!

FRAMUNDAN ERU ÞESSI VERKEFNI Í SAFNINU Á ÁRINU 2010

• Í desember munu en og aftur nemendur í myndlistardeild Listaháskóla Íslands sýna verk sín í eins dags viðburði, undir stjórn Erlings T.V. Klingeberg. Sýningin „TÍMI“ mun vara í tvo daga.


NÆSTA ÁR 2011

Á næsta ári heldur verkefnið „Uppspretta“ áfram, áætlaðar eru 7-8 sýningar, íslenskra og erlendra listamanna, s.s. samsýning Snorra Ásmundssonar, Ásmundar Ásmundssonar, Helga Þórssonar, Sigtryggs Berg Sigmarssonar og Steingríms Eyfjörð, og einkasýningar íslenska listamannsins Curvers Thoroddsen, sænska listamannsins Carl Boutard, þýska listtvíeykisins Gernot Faber og brasilíska listamannsins Marcellvs L.

Sýningin „Grasrót“, sýning á verkum yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna verður sett upp. Sýningin hefur verið haldin árlega í safninu síðan árið 2000 en lagðist niður á sl. tveimur árum.

Í vor opnar sýning á verkum úr safneign Nýlistasafnsins, með útgáfu um safneignina.

Auk þessa mun safnið standa fyrir fyrirlestrum, listamannaspjalli, pallborðsumræðum og gjörningaverkefni í samstarfi við Ríkisútvarpið Rás 1.

Nýló hefur eignast góða nágranna því á efstu hæð byggingarinnar við Skúlagötu 28 opnaði fyrsta íslenska Danshúsið nú á dögunum, en það er rekið af Félagi Íslenskra Dansara og Danshöfunda.

Lýkur hér skýrslu stjórnar fyrir tímabilið.

Kærar Þakkir fyrir hönd stjórnar,
Birta Guðjónsdóttir
formaður stjórnar Nýlistasafnsins