Nýlistasafninu bárust fjölmargar gjafir á árinu 2011. Söfnunarstefna safnsins felur í sér að biðja einn listamann á ári um að færa safninu verk. Á þessu ári var það Helgi Þórsson. Safninu bárust auk þess fjölmörg önnur verk, heimildir og bækur. Stjórn safnsins áskilur sér rétt til að hafna eða þiggja gjafir að vild. Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um verk eða heimildir sem samþykkt voru í safneign og heimildarsafn safnsins. Nýlistasafnið kann öllum gefendum bestur þakkir fyrir.
Listaverk í safneign:
Helgi Þórsson
Litli Föstudagur, Baldwin og Ísak Baldvin
Verkin eru frá árinu 2005 og voru fyrst sett upp á sýningunni Grús í Norræna húsinu. Verkið Litli Föstudagur er allt í senn, skúlptúr, míníbar, kaffivél, magnari og hátalari. Honum fylgja tvær fígúrur, Baldwin og Ísak Baldvin, sem halda hvor á sínum bakka og bjóða veitingar.
Listamaðurinn gefur.
Gunnhildur Hauksdóttir og Kristín Ómarsdóttir
Púlt
Verkið er færanlegt ræðupúlt á hjólum. Meðfylgjandi eru ræður eftir ýmsa höfunda frá mismunandi tímum. Verkið er prítt ljósum af ýmsum gerðum. Púlt var fyrst gert fyrir sýninguna Gjöf mín, yðar hátign sem sett var upp í listasafni ASÍ í febrúar 2011. Síðar var því breytt og var hluti af sýningunni Koddu sem haldin var í Nýlistasafninu og í Alliance húsinu við Grandagarð.
Listamennirnir gefa.
Neil Zakiewicz
Án titils
Um er að ræða skúlptúr gerðan úr svampi og viði. Verkið var hluti af stórri breskri samsýningu í Klink & Bank árið 2005 í sýningarstjórn Nínu Magnúsdóttur og Ólafar Björnsdóttur.
Erling Klingenberg gefur.
Ólafur Lárusson
úr ljósmyndaseríunni Example of a plastic face structure
Ljósmynd af situation þar sem listamaðurinn vefur andliti sínu inn í plast sem blautt er af málningu, í rammanum fyrir neðan ljósmyndina er plastið sjálft. Verkið var á sýningu í Kaupmannahöfn þar sem gefandi keypti það í maí árið 1980.
Ólafur Gunnarsson gefur.
Unnar Örn Auðarson
Hrörnunarsamstæðan
Skúlptúr, sýndur upprunalega í Safni árið 2007. Tengist bókinni Desire Archive, skúlptúrinn geymir frumgögn sem prentuð eru í bókverkinu. Allir pappírar, póstkort, bréf og fleira sem var sýnt í Safni. Unnar og fleiri sendu skúlptúrnum póstkort, hugmyndin er að halda áfram að senda verkinu póst og þannig sé það í stöðugri mótun.
Listamaðurinn gefur.
Unnar Örn Auðarson
Kringlan og ég
Um er að ræða gjörning, texti á ensku fylgir verkinu og úskýrir hvernig það var til. Skúffa með ýmsu smádóti frá listamanninum, sýnir brot úr lífi hans og gefur til kynna persónuleika hans. Verkið var sýnt í Gallerí Gúlp árið 1996 og fór fram í Kringlunni.
Listamaðurinn gefur.
Xoán Anleo
Unha Forma Publica De Representar
Silkiþrykk á pappa frá árinu 1992, 7stk, hvert um sig 13.9x13.9.
Listamaðurinn gefur.
Klaus Carsten
Hand of a heroine dead
Upprunalega gjöf til Unnars Arnar Auðarsson og Ingibjargar Magnadóttur. Verkið var hluti af sýningunni Reykjavík Teaparty árið 1999. Verkið var gert fyrir sýninguna, þegar Carsten kenndi við fjöltæknideild Myndlista- og Handíðaskólans.
Unnar Örn Auðarsson gefur.
Hildur Margrétardóttur, Lone Dögg Christensen og Þiðrik Hanssen
Skyndilist
Verkið er fjölfeldi frá árinu 2000, aftan á því er tölusetningin nr 30/36. Um er að ræða hluta af ferli sem var samstarfsverk á milli þessara þriggja aðila, var meðal annars selt í Bónus, í Pulsuvagninum á Lækjatorgi og í Kaupmannhöfn á vorsýningu þar.
Unnar Örn Auðarson gefur.
Marcellvs L.
0667, 0778, 3195 og 1716
Fjögur verk frá árunum 2003-2009 úr seríunni Videorhizome eftir Marcellus L. sem sýnd voru í Nýlistasafninu í janúar 2011
Listamaðurinn gefur.
Carl Boutard
Audiovisual presentation
Myndbandsverk frá árinu 2005 sem var hluti af sýningu Carls í safninu 2011
Listamaðurinn gefur.
Bókverk í safneign:
Kristján Guðmundsson
DOWN,1972/ 1989
Bókverk með láréttum línum sem tákna annars vegar fjarlægð frá hæsta punkti jarðar niður að sjávarmáli og hins vegar fjarlægð frá sjávarmáls að neðsta punkt sjávarbotns. Útgefandi Kristján Guðmundsson / Fundatie og Vossforlag, Amsterdam.
Listamaðurinn gefur.
Kristján Guðmundsson
STARS IN LATIN, 1987
Bókverk með mismunandi fjölda blárra punkta á hverri síðu, teiknaðir með bláum kúlupenna. Punktarnir eru allir svipað stórir en staðsetning þeirra á síðunni er mismunandi. Verkið var gefið út í 100 eintökum, en ekkert eintak eins. Útgefandi: Kristján Guðmundsson / Vossforlag, Amsterdam.
Listamaðurinn gefur.
Unnar Örn Auðarsson
Langferð Andans - slóð undirvitundarinnar 1921-1953
Bókverk gefið út af Unnar Örn Forlag í Reykjavík 2011.
Listamaðurinn gefur.
Unnar Örn Auðarsson
Grand Tour of the Psyche - traicing subconseiusness 1921-1953
Bókverk gefið út af Unnar Örn Forlag í Reykjavík 2011.
Listamaðurinn gefur.
Peter Max Lawrence
Mr. Reassurance meets an Otter (in Reykjavík.)
Gefið út af paperwasterpress.com árið 2011
Listamaðurinn gefur.
ALMANAC 2004
Handgerð bók og geisladiskur eftir 12 listamenn: Hristina Ivannoska, Atanas Botev, Ana Stojkovik, Kyle Geer, Suzana Milevska, Slvica Janesileva, Oliver Musovik, Dijana Tomik Radevska, Igor Toseviski, Saso Stanojkovik, Dejan Spasovik, Karlotta Blöndal. Framleitt af Karlottu Blöndal, Skoole 2004.
Unnar Örn Auðarson gefur.
Heimildarsöfn (Arkíf um listamannarekin rými og Gjörningaarkíf):
Gjöf frá Hildi Hákonardóttur: Mobshop Dummy, SUM 75, Rifið bréf frá Sigurði Guðmundsyni, vélritað með lítilli ljósmynd frá situgation e. hann sjálfan, Boðskort frá Sigurði Guðmundssyni til Magnúsar Pálssonar, á boðskortið er ritað með blíanti Siggi while in a state of exhibiton, ljósmynd af innramnaðri ljósmynd. Allt á þetta heima í Heimildasafni um listamannarekin rými undir SÚM nema Mobshop dummy sem flokkast undir Bókverk.
Í heimildasafn um listamannarekin rými barst á árinu efni frá samstarfsverkefninu Mjólk (Unnar Örn, Karlotta Blöndal og Hlín Gylfadóttir, samstarfsverkefninu Tígurinn og ísbjörninn (Unnar Örn, Gunnhildur Hauksdóttir, Ragnar Kjartansson og Bjargey Ólafsdóttir). Einnig barst efni um rýmin Fiskur frá árinu 2000, Flotta galleríið frá 1985 og viðbætur við Gallerí Gúlp.
Í gjörningaarkífið barst efni frá Myriam Bat-Yosef og Gunndísi Ýr Finnbogadóttur.
Auk þess barst í heimildasafnið myndefni frá Magnúsi Pálssyni og fleirum, nánari upplýsingar um ýmis verk í safneign ofl sem ekki verður talið upp hér.
Veggspjaldasafn Nýlistasafnsins:
Guarilla Girls, Sýning í Nýlistasafninu 1994, 4 veggspjöld sem gerð voru í samhengi við sýningu listamannanna í safninu. Þau sýna tölfræðilega úttekt á stöðu kynjanna í íslenskum listheimi. Þetta eru aðeins 4 veggspjöld af miklu fleiri veggspjöldum sem gerð voru í samhengi við téða sýningu. Sýningin hafði ferðast um norðurlöndin og staðið íslenskum söfnum til boða, en söfnin afþökkuðu móttöku sýningarinnar. Nokkrir íslenskir myndlistamenn stofnuðu undirbúningsnefnd til þess að taka á móti sýningunni og setja hana upp í nýlistasafninu. Þær voru; Erla Þórarinsdóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir.
Veggspjald fyrir sýninguna Þar sem ég bjó og það sem ég lifði fyrir frá sýningu Hildar Hákonardóttur í listasafni ASÍ, 2011.
Veggspjald frá sýningu Bruna BB í Nýlistasafninu árið 1981
Veggspjald frá árinu 1967 frá sýningu Rósku í Gallerí SÚM
Veggspjald frá sýningunni 7 ungir myndlistamenn, sýning í myndlistahúsinu á Miklatúni árið 1973.
Veggspjald frá sýningu Magnúsar Tómassonar á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum árið 1982.
Veggspjald frá samsýningu í Norræna Húsinu, Magnús Pálsson, Salomé Fannberg og Richard Waltingojer
4 veggspjöld frá Gernot Faber, Blackout am mittelpunkt der erde, sýnt á Sequences árið 2011 (þetta eru í raun fjölfeldi).
Auk þess bárust fjöldi bóka og sýningarskráa í bókasafn Nýlistasafnsins.