fimmtudagur, 9. ágú 13:17

ÁRSFUNDUR 28. JÚNÍ 2012

Á ársfundi 2012 voru þrír félagsmenn gerðir að  heiðursfélagum í Nýlistasafninu. Þeir eru Ásta Ólafsdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir og Hildur Hákonardóttir. Fyrir eru heiðursfélagar þeir: Hörður Ágústsson, Douwe Jan Bakker og Dieter Roth, frá ársfundinum árið 1992; Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guðmundsson og Sigurður Guðmundsson árið1994; Magnús Pálsson og Níels Hafstein árið1995 og Rúrí árið 2011.

Lesin var skýrsla stjórnar, ársuppgjör og fjárhagsáætlun voru kynnt, auk þess sem væntanlegar útgáfur voru kynntar og nýprentað kynningarefni safnsins og styrktarsíða.

FRÁFARANDI STJÓRN VAR:
Gunnhildur Hauksdóttir (formaður stjórnar)
Indíana Auðunsdóttir (varaformaður stjórnar)
Bjarki Bragason (ritari stjórnar)
Hjalti Þorkelsson (gjaldkeri stjórnar)
Guðni Gunnarsson (meðstjórnandi)

TIL VARA:
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Gunnar Helgi Guðjónsson
Tinna Guðmundsdóttir

NÝ STJÓRN VAR KJÖRIN:
Gunnhildur Hauksdóttir (formaður stjórnar)
Indíana Auðunsdóttir (varaformaður stjórnar)
Gunndís Ýr Finnbogadóttir (ritari stjórnar)
Hjalti Þorkelsson (gjaldkeri stjórnar)
Guðni Gunnarsson (meðstjórnandi)

TIL VARA:
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Karina Hanney
Bjarki Bragason

HÉR Á EFTIR FER SKÝRSLA STJÓRNAR FYRIR STJÓRNARSETU
Á TÍMABILINU 5.JÚNÍ 2011 - 28. JÚNÍ 2012:

FASTIR STARFSMENN SAFNSINS Á TÍMABILINU VORU:
Gunnhildur Hauksdóttir (safnstjóri, 80% starfshlutfall)
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (framkvæmdastjóri, 60% starfshlutfall, lét af störfum 1. apríl)
Ingunn Fjóla tók tímabundið við starfi safnstjóra í tvo mánuði í apríl og maí á meðan formaður stjórnar fór í tveggja mánaða leyfi.
Marta María Jónsdóttir (tók við stöðu framkvæmdastjóra 1. apríl, 60% starfshlutfall)

STARFSMENN Í SÉRSTÖKUM VERKEFNUM:
Unnar Örn Jónasson Auðarson og Auður Aðalsteinsdóttir unnu að verkefninu Uppspretta. Unnar er í ritstjórn rits sem gefið verður út vegna verkefnisins og Auður Aðalsteinsdóttir hefur umsjón með útgáfu.
Jeannette Castioni starfaði að fyrirbyggjandi forvörslu verka úr safneign.
Ármann Agnarsson og Högni Valsson hanna allt efni fyrir safnið og hafa umsjón með útliti þess sem safnið sendir frá sér.
Kristjana Rós var ráðin sýningarstjóri Grasrótar IX og Ransú var ráðinn sýningarstjóri sýningarinnar Læsi.
Indíanna Auðunsdóttir vann í átaksverkefni í samstarfi viðVinnumálastofnun við skipulagningu safneignar. Hún merkti hillur og færði réttar staðsetningar verka í geymslu inn í Virtual Collection (VC) gagnagrunninn og gerði heildrænt skipulag safneignar geymslu.
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir er ráðin tímabundinn starfsmaður safneignar, hún hefur umsjón með færslu gagna úr núverandi safneignarskrá í VC yfir í samræmdan gagnagrunn: Sarpur 0.3. Styrkur fékkst frá Safnasjóði til verksins. Markmiðið er að Ingunn verði ráðin til frambúðar sem starfsmaður safneignar í 30% starfshlutfall. Hún hefur verið í vinnu í júní við undirbúningsstörf en í september hefst vinna hennar að fullu.
Tilfallandi prófarkalestrar og þýðingar voru auk þess unnar af ýmsum aðilum.
Stjórnarliðar hafa einnig fengið greitt fyrir uppsetningu sýninga og niðurtöku eftir föngum, þó mest hafi verið unnið í sjálfboðavinnu.

LÆRLINGAR:
Tanja Wiehn yfirfór skráningu á bókverkum og leiðrétti, yfirfór skúffur með tvívíðum verkum, leiðrétti villur í skráningu. Hún vann einnig að ritgerð um Dieter Roth og kom aftur til landsins vegna þeirrar vinnu og fékk þá vinnuaðstöðu í safninu.
Verena Faisst fór í gegnum ljósmyndasafn safneignar, skipulagði það, bjó til .jpg og .tiff úr .raw skjölum og endurskýrði ljósmyndirnar í samræmi við gagnagrunninn. Þetta var liður í undirbúningi gerðar Catalogue Rasonné safneignar sem nánar er fjallað um síðar í skýrslunni. Verena var einnig ötull ljósmyndari og hönnuður fyrir safnið.
Anna Lena Artis tók við af Verenu og hóf störf við að setja upp Catalogue Rasonné. Hún vann einnig við að prófarkalesa enska texta fyrir safnið.
Jennifer Gottstein tók við af Önnu Lenu og vann við uppsetningu á Catalogue Rasonné.

FÉLAGSMENN:
Félagsmenn eru nú 318 talsins.
Þrettán gengu í félagið frá síðasta aðalfundi.

INNRI STARFSEMI SAFNSINS Á TÍMABILINU – SAFNEIGN OG FRAMKVÆMDIR

Auka félagsfundur
Umræðufundur var haldin vegna sýningarinnar Koddu sem var síðasta sýning í safninu á seinasta stjórnartímabili. Fundurinn var tilraun til að gera upp þá atburði sem áttu sér stað í safninu þegar verk var fjarlægt af sýningu. Öllum félagsmönnum var boðið.

Uppspretta / Archive on the Run
Verkefnið Uppspretta er í fullum gangi. Sýningarstjórnunum Kim Einarsson hjá Konsthall C, Elenu Tzotzi hjá Signal og Tone Hanson hjá Heine Onstad var boðið til landsins. Haldar voru umræður í Listaháskóla Íslands í vor með völdum gestum þar sem gerð var tilraun til að skilgreina eða endurskilgreina Nýlistasafnið og margþætt hlutverk þess sem safn, félagasamtök og sýningarvettvangur. Ákveðið var að upp úr þessum fundum og vangaveltum yrðu gefin út tvö rit:
Innanhússritið Catalogue Rasonné sem inniheldur myndir og upplýsingar um öll verk í safneign. Þetta rit verður 20 binda uppflettirit með myndum og grunnupplýsingum um safneign Nýlistasafnsins.
Einnig verður gefið út rit sem inniheldur texta um Nýlistasafnið, skilgreiningar og tillögur um starfsemina. Auður Aðalsteinsdóttir mun hafa umsjón með útgáfunni en ritstjórn skipa: Gunnhildur Hauksdóttir, Gunndís Ýr Finnbogadóttir, Ármann Agnarsson og Unnar Örn Jónasson Auðarson. Verkefnið Uppspretta var styrkt af norrænu menningargáttinni KKnord. Verkefnið hófst árið 2009 og eru áætluð verklok með útgáfum nú í haust.

Arkíf um listamannarekin rými
Karina Hanney var fengin til að innkalla frekari heimildir, endurskrá SÚM í arkífið og vinna að tímalínu, nokkurs konar mindmap yfir sögu listamannarekna rýma frá og með Súm og til okkar dags. Hún fékk Rannís styrk til verksins og verkefnið varð liður í Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Listasafn Íslands og Háskóla Íslands. Karina er um þessar mundir með skrifstofu á Listasafni Íslands þar sem hún vinnur við verkefnið og innkallar heimildir.

Arkíf um listamannarekin rými – kvennarými
Áslaug Einarsdóttir var fengin til að gera greiningu á sögu listamannarekinna rýma (lrr) sem stofnuð og rekin hafa verið af konum. Hún ritaði grein í umboði Nýlistasafnsins. Rannsóknin var styrkt af Hlaðvarpanum. Greinin birtist í nýjasta tölublaði Endemi og verður hluti af heimildarsafni safnsins um lrr.

Forvarsla
Jeannette Castioni var eins og áður sagði lausráðin sem forvörður Nýlistasafnsins. Við komum upp aðstöðu fyrir hana og settum hana inn í þau verk sem þörf er á að vinna að í forvörslu og fyrirbyggjandi forvörslu.
Safnasjóður hefur styrkt Nýló til verksins. Sjá nánar hér

Rannsóknaraðilar og útlán
Töluvert var um útlán á verkum úr safneign á tímabilinu, m.a. til Listaháskólans, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Listasafns Árnesinga, til i8 og til Berlínar; Kuckei+Kuckei. Þessu fylgir töluverð umsýsla. Stjórnin hefur ákveðið að innleiða umsýslugjald vegna útlána og verður það nokkurn veginn í samræmi við umsýslugjald annarra safna: 3000 kr. pr. item úr safneign bókverka; 4000 kr. pr. item úr safneign verka og 1000 kr. pr. item úr heimildasöfnum. Auk þess skal kostnaður vegna útlána falla á lántaka. Þá er um að ræða tryggingarkostnað; einnig sendingar- og pökkunarkostnað ef um það er að ræða.

Töluvert er um að nemar, fólk sem er að vinna að skráningu á listasögu og/eða aðrir áhugasamir komi og sitji á safninu og vinni verkefni og fái aðgang að arkífunum ALRR og Gjörningaarkífi. Við veitum þessu fólki aðstöðu annað hvort inni í safneign, þar sem við höfum komið upp „skrifstofuaðstöðu“, eða á skrifstofunni hjá okkur og aðstoðum það eftir föngum. Þessi aðsókn eykst jafnt og þétt og við sjáum mikla þörf fyrir að koma upp gestaaðstöðu fyrir fólk sem vinnur við rannsóknir. Catalogue Rasonné er liður í að þjónusta þessa aðila.

Húsnæðismál
Nýlistasafnið átti forleigurétt að því 111 fermetra rými sem hér er fyrir innan, sem áður tilheyrði Reykjavík Art Gallerí. Nýló nýtti sér forleiguréttinn og hefur því til umráða 666 fermetra og framleigir Artíma Gallerí umrædda 111 fermetra. Artíma er rekið af nemendafélagi innan HÍ. Artíma nýtir rýmið undir sína starfsemi sem er aðskilin starfsemi Nýlistasafnsins.

Leigusamningur safnsins rennur út 1. apríl 2013. Þá verður leigusamningur endurskoðaður og gera má ráð fyrir að leigan hækki.
 
Samstarf við Artíma
Artíma er gallerí sem stofnað og rekið er af nemendum Háskóla Íslands. Markmið gallerísins er að vinna sýningastýrðar myndlistarsýningar. Miklir möguleikar á rannsóknum liggja í safneign Nýlistasafnsins fyrir listfræðinema en ekki sér fyrir endann á því í hvaða formi samstarfið verður.

Annað samstarf
Nýló var aðili að Listahátíð í Reykjavík í ár og sem endranær er Nýló aðili að listahátíðinni Sequences. Safnið hefur einnig átt í samstarfi LÍ, LHÍ, HÍ, LR og RÚV o.fl. innlendar stofnanir á tímabilinu, auk þess að vera í samstarfi við Heine Onstad í Noregi, Signal og Kunsthalle C í Svíþjóð. Einnig á Nýló í samstarfi við hollenska sýningarstjórann Henk Slager, mun það líta dagsins ljós á næsta ári. Nýló átti líka í samstarfi við Endemi, m.a. með því að standa fyrir greinarskrifum í blaðið og koma á tengslum Endemi við HÍ vegna sýningar á Háskólatorgi. Nýló studdi einnig við bakið á útgáfu bókaflokksins Meðgönguljóð.

Gjafir
Töluvert hefur borist af gjöfum til safnsins á tímabilinu, m.a. frá Valgarði Bragasyni, Myriam Bat Yosef, Dubin og Davidsson, Ástu Ólafsdóttur, Níels Hafstein o.fl. en stjórn mun taka formlega afstöðu til allra gjafa fyrir áramót, útbúa gjafabréf og senda þá frá sér fréttir þar að lútandi eins og gert var um seinustu áramót.

Fjármál
Fráfarandi framkvæmdastjóri, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, ásamt nýráðnum framkvæmdastjóra, Mörtu Maríu Jónsdóttur, kynntu ársreikninga og fjárhagsáætlun á ársfundi. Helst ber að nefna að sérstaklega snúið reynist að fjármagna innlenda dagskrárgerð en samfara vexti safnsins og víkkandi ábyrgðarsviði hallar mjög á starfsfólk.
Tilfinnanlega vantar fjármagn til að hækka prósentu launa starfsmanna og fjármagn til að geta greitt starfsmanni safneignar laun til frambúðar. Einnig eru húsnæðismál í nokkurri óvissu því húsaleigusamningur rennur út á næsta ári. Stjórn lét gera flipa á heimasíðu safnsins þar sem fólki er boðið að styrkja safnið með framlögum, styrktarferlið er enn í vinnslu en flipinn á heimasíðunni er kominn í gagnið. Þar geta einkaaðilar styrkt safnið í gegnum Valitor á Íslandi. Sjá nánar hér

YTRI STARFSEMI SAFNSINS Á TÍMABILINU – SÝNINGAR OG VIÐBURÐIR OPNIR ALMENNINGI

Nýlókórinn hélt vortónleika 16. maí. Þar voru flutt verk eftir Hörð Bragason, Magnús Pálsson og Sigtrygg Berg Sigmarsson.

Carl Boutard byrjaði síðasta sýningartímabil með einkasýningu í safninu frá 28. maí - 3. júlí. Hann hélt listamannaspjall og var með leiðsögn.

Læsi , 16. júlí – 11. september, var sýning úr safneign með áherslu á bókverk.  Ransú stýrði sýningunni sem samanstóð af verkum eftir Áslaugu Thorlacius, Birgi Andrésson, Dieter Roth, Douwe Jan Bakker, Finnboga Pétursson, Franz Graf, Friðrik Þór Friðriksson, Hildi Hákonardóttur, GErlu, Gunndísi Ýr Finnbogadóttur, Hlyn Hallsson, Jan Voss, Kristjáni Guðmundssyni, Níels Hafstein, Ragnhildi Jóhannsdóttur, Rúnu Þorkelsdóttur, Rúrí og Steingrím Eyfjörð. Gjörningar Gunndísar Ýr voru í safninu á meðan á sýningu stóð. Menningarnótt bar upp á sýningartíma  Læsis, Rannsú hélttvær leiðsagnir; Katrín Inga Jónsdóttir, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Jepp hópurinn, Angela Rawling og Ciara Adams fluttu gjörninga; Evil Madness spilaði undir bendulestri Bjarna Þórarinssonar.

Momentum Episodes átti sér stað 14. september þegar Roi Vaara og Magnús Logi Kristinsson fluttu gjörninga í safninu í sýningarstjórn Markúsar Þórs Andréssonar. Gjörningurinn var hluti af dagskrá Moss tvíæringsins í Noregi og hluti af gjörningaferðalagi þeirra Roi og Magnúsar um borgir Norðurlanda.

Grasrót IX var haldin í sýningarstjórn Kristjönu Rósar Guðjohnsen. Sýningarskrá var gerð í tilefni sýningarinnar og  var sett saman í safninu og gefin út í 300 árituðum eintökum. Davíð Kristinsson heimspekingur var fenginn til að rita hugleiðingar um Grasrót í sýningarskrá. Bryndís Björnsdóttir, Helga Björg Gylfadóttir, Irene Ósk Bermudez, Klængur Gunnarsson, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir, Sigríður Tulinius og Sigurður Atli Sigurðsson sýndu á Grasrót IX; þau voru valin úr hópi umsækjenda af nefnd sem stjórn skipaði á seinasta stjórnartímabili. Tveir gjörningar voru fluttir á sýningartímabilinu og leiðsagnir voru haldnar.

Sjöunda Alþjóðlega ljóðahátíðin
(áður Nýhil) var haldin í Nýló og Norræna húsinu dagana 6 -8. október, þar sem fjölmargir höfundar og listamenn komu fram.

Litli föstudagur var einkasýning Helga Þórssonar í safninu sem stóð út árið 2011. Helgi stóð fyrir jólabasar Kæmpe JULEBAZAR þar sem fjöldi listamanna sýndu og seldu verk sín. Á jólabasarnum voru upplestrar og uppákomur.

Bandaríski listamaðurinn I´d M Thfft Able flutti hljóðverk í safninu 11. desember ásamt Auxpan og AMFJ.

Nýlókórinn hélt áramótatónleika 11. janúar. Þar voru flutt tvö verk eftir Kristinn G. Harðarson og eitt verk eftir Guðmund Vignisson og Sigtrygg Baldursson.

Sýningin Teikn , sem styrkt var af Hlaðvarpanum, opnaði 24. janúar þar sem Myriam Bat-Yosef og Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir sýndu. Jóhanna flutti gjörning á opnun, Jóhanna og Markús Þór Andréssson, sem ritaði texta í sýningarskrá, voru með listamannaspjall og Myriam hélt tvo fyrirlestra, annan í LHÍ og hinn í Nýló. Safnanótt bar upp á sýningartíma og safnið var opið til miðnættis með leiðsögnum stjórnarliða.

Armory 2012
Nýló var styrkt af utanríkisráðuneytinu og kynningarmiðstöðinni til farar á Armory sýninguna í New York borg. Þrír stjórnarliðar héldu utan, Gunnhildur, Indíana og Bjarki. Nýló deildi bás með danskri stofnun, Overgaden, sem í sameiningu stóðu að gjörningadagskrá í básnum á Armory. Básinn var hluti af Non-Profit básum sem Armory býður sérstaklega og var hluti af Nordic Focus sem var stýrt af Jacob Fabricius þetta árið. Nýló lét prenta bæklinga um starfsemina og nafnspjöld, sýndi svipmyndir úr sögu safnsins á skjá í básnum og kynnti bókina Nýlistasafnið 1978-2008 sérstaklega. Bókin fór í þó nokkra dreifingu;Sculpture Center og New Museum tóku eintök í sölu.

Fjölskylduskemmtun
, sýning Curvers Thoroddsen, opnaði 22. mars og fjöldi skemmtikrafta og listamanna komu fram sem hluti af sýningunni og stóð hún til 29. apríl. Barnamenningarhátíð Reykjavíkur átti stað á sýningartímabilinu og Nýló var því aðili að Barnamenningarhátíðinni í ár.

Volumes for sound opnaði í safninu þann 19. maí. Bandarísku listamennirnir Melissa Dubbin og Aaron S. Davidsson sýndu innsetningu, skúlptúra, ljósmyndir og myndbandsverk. Sýningin var hluti af Listahátíð í Reykjavík. Í tengslum við sýninguna stóð stjórn í samvinnu við Elvar Kjartansson fyrir hljóðverkadagskrá en þar var listamönnum boðið að nota skúlptúrana sem hljóðrásir fyrir verk sín. Listamenn sem fram komu voru Auxpan, AMFJ, Stefán Finnboga Pétursson, Slátur, Trouble og Stilluppsteypa. Auk þess sem þau sjálf fluttu verk á opnun í samvinnu við tónlistarmanninn Shawn Onsgard.

Dagar undrabarnsins eru á enda var gjörningur fluttur í safninu 25. og 27. júní. Gjörningurinn er samstarfsverkefni fimm listamanna: Anat Eisenberg, Bergþóru Snæbjörnsdóttur, Rakel McMahon, Sögu Sigurðardóttur og Yair Vardi.

Þann 11. júlí kynnti Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar bókverk sitt Mindgames í safninu. Hún hélt fyrirlestur um hugmyndirnar sem liggja að baki verkinu og lesið var upp úr því.

Sýning Níelsar Hafstein, Viðkvæmur farangur II , opnaði þann 28. júlí. Viðkvæmur farangur II er safneignarsýning Nýló þetta árið. Sýningin er einkasýning Níelsar Hafstein og færir listamaðurinn safninu gjöf verka við þetta tækifæri. Dr. Hlynur Helgason ritar texta í sýningarskrá og heldur tvo fyrirlestra um myndlistarmanninn og feril hans, í safninu og í fyrirlestrarsal Aríon banka. Níels valdi verk úr safneign til sýningar, fékk verk að láni frá Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur og sýnir einnig ný verk. Sýningin stendur til 9. september 2012.

Síðustu tvær sýningar ársins 2012 verða annars vegar samsýning Steinunnar Gunnlaugsdóttur og Ólafs Páls Sigurðssonar með verk sem gengur undir heitinu Þú getur ekki staðið í veginum fyrir framförum og hins vegar 6. bindið, einkasýning Katrínar Ingu Hjördísardóttur.

Skýrslu lýkur