fimmtudagur, 29. apr 14:45
Laugardaginn 1. maí er síðasti sýningardagur Samræði við safneign og Hrókering. Safnið er opið frá kl. 12 - 17. Meira
fimmtudagur, 29. apr 14:41
Í afmælisritinu Nýlistasafnið 1978-2008 er sýningarsaga safnsins rekin og henni gerð skil með fjölbreytilegu myndefni úr skjalasafni safnsins. Bókin er til sölu á safninu. Meira
miðvikudagur, 21. apr 18:30
Verið velkomin á fyrirlestra Mörthu Wilson í Nýlistasafninu og Listaháskóla Íslands nk. mánudag og þriðjudag.
Opni Listaháskólinn - "Martha Wilson: Staging the Self"
- þriðjudagur 27. apríl kl. 17:
Nýlistasafnið - "Whither the Alternative Space"
fimmtudagur, 8. apr 11:17
Hefð hefur verið innan safnsins að velja félagsmann mánaðarins af handahófi um hver mánaðarmót og honum/henni gerð skil á heimasíðu safnsins.
Safnið hefur nú tekið upp á þeirri nýlundu að halda einnig litla sýningu á verkum viðkomandi í húsnæði sínu við Skúlagötu og opnar fyrsta slíka sýningin samhliða Hrókeringunni. Að þessu sinni var það myndlistarkonan Sara Björnsdóttir sem hlaut nafnbótina og verður hún fyrst til að sýna verk í þessari sýningaröð. Meira