föstudagur, 29. apr 14:52

Frá og með miðvikudeginum 27. apríl er sýningin Koddu opin almenningi á ný í safnrými Nýlistasafnsins, en safnið var lokað þriðjudaginn 26. apríl vegna lagalegrar óvissu. Tvö verk hafa verið fjarlægð af sýningunni í safnrýminu: „Fallegasta bók í heimi“ eftir Koddu og verkið „Án titils“ eftir Pál Hauk Björnsson myndlistarmann, sem ákvað á dögunum að segja sig úr sýningunni.

Sjá fréttatilkynningu 

 
þriðjudagur, 26. apr 11:34

Nýlistsafnið verður lokað í dag
þriðjudaginn 26. apríl 2011.

 

 

 
miðvikudagur, 20. apr 17:41

Nýlistasafnið verður lokað yfir páskana.

21. apríl -Skírdagur: Lokað
22. apríl -Föstudagurinn langi: Lokað
23. apríl -Laugardagur: Lokað
24. apríl -Páskadagur: Lokað
25. apríl -Annar í páskum: Lokað

Safnið opnar aftur þriðjudaginn 26. apríl.

 
þriðjudagur, 12. apr 12:15

Verið velkomin á opnun laugardaginn 16. apríl:

Í Nýlistasafninu kl. 16.00
Í Allianz húsinu kl. 17.00

Sjá nánar

 
fimmtudagur, 7. apr 16:19

Samstarf RÚV Rás1 - Víðsjá og Nýlistasafnsins  -  gjörningar á Íslandi

Nýlistasafnið og Ríkisútvarpið leggjast nú í eina sæng um að miðla frásögnum myndlistarmanna af eigin gjörningum. Frásagnirnar eru teknar upp í upptökurými Ríkisútvarpsins á fyrstu mánuðum ársins 2011 og verða spilaðar í Víðsjá á þriðjudögum fram á sumar.

Frásagnir sem hafa verið útvarpaðar eru:

22. mars Curver Örn Thoroddsen
http://dagskra.ruv.is/ras1/4555627/2011/03/22/3/

29. mars Ásta Ólafsdóttir
http://dagskra.ruv.is/ras1/4555631/2011/03/29/

5. apríl Ásdís Sif Gunnarsdóttir
http://dagskra.ruv.is/ras1/4555635/2011/04/05/

Sjá nánar um verkefnið hér