![]()
mynd Kristín Rúnarsdóttir
Laugardaginn 17. sept kl. 19.30 opnar sýningin GRASRÓT IX
Grasrótarsýningar miða að því að sýna verk eftir upprennandi myndlistarmenn og er ætlað að gefa þverskurð af því sem ungir listamenn fást við á hverjum tíma. Sýningarnar hafa skipað mikilvægan sess í íslensku myndlistarlífi og þótt gefa mynd af framtíðarstraumum í myndlist og menningu landsins. Margir af efnilegustu myndlistarmönnum síðustu ára hafa tekið þátt í Grasrót og lítur Nýlistasafnið á sýningarnar sem mikilvægan þátt í samtali safnsins við yngri kynslóðir myndlistarmanna.
Bryndís Björnsdóttir // Helga Björg Gylfadóttir // Irene Ósk Bermudez // Klængur Gunnarsson // Kolbrún Ýr Einarsdóttir // Kristín Rúnarsdóttir // Sigríður Tulinius // Sigurður Atli Sigurðsson
Sýningarstjóri: Kristjana Rós Guðjohnsen
Sjá nánar hér
Miðvikudaginn 14. september kl. 20.00 mun Nýlistasafnið hýsa gjörninga Roi Vaara og Magnúsar Loga Kristinssonar MOMENTUM EPISODES undir sýningarstjórn Markúsar Þórs Andréssonar. Um er að ræða gjörningadagskrá sem er hluti af 6. Momentum tvíæringnum sem haldinn er í Moss í Noregi. Gjörningadagskrá verður í Reykjavík þennan dag: fyrri hluti hefst kl. 17.00 við Hlemm og sá seinni kl. 20.00 í Nýlistasafninu.
Sjá nánar hér
Nýlistasafnið er lokað dagana 12.-17. september vegna uppsetningar nýrrar sýningar.
Ný og spennandi sýning Grasrót IX mun opna í safninu laugardaginn 17. september kl. 19.30.
Sýningunni LÆSI lýkur á sunnudag
Sýningin LÆSI opnaði í Nýlistasafninu 16. júlí undir sýningarstjórn Jóns B.K. Ransu lýkur nú á sunnudaginn 11. september. Læsi teflir saman listaverkum byggðum á samspili texta, forma og rýmis og eru þau flest í eigu Nýlistasafnsins, en þar er að finna stærsta safn af bóklistaverkum sem fyrirfinnst á Íslandi. Hugmyndin um „bókina“ er þannig útgangspunktur sýningarinnar og verða sýnd verk eftir 18 listamenn sem kanna texta og tungumál í tengslum við myndlist eða brjóta upp bókaformið og nýta það í myndlistarverk.
Sýningarstjóri Jón B.K. Ransu
Sjá nánar hér