föstudagur, 24. feb 16:06

Smelltu

Nýlistasafnið hlaut á síðasta ári styrk úr Safnasjóði vegna forvörslu og fyrirbyggjandi forvörslu verka í safneign. Unninn hefur verið listi sem inniheldur verk sem þarfnast viðgerðar og mun Jeannette Castioni, forvörður, hafa umsjón með því verkefni í samstarfi við stjórn Nýlistasafnsins.

Jeannette er fædd á Ítalíu, en hún býr og starfar á Íslandi. Hún er myndlistarmaður og forvörður að mennt, auk þess sem hún hefur lært bókmenntafræði og listfræði. 

Verkefnið hófst með viðgerð og hreinsun á verki Rúríar,  Tillaga um endurskoðun íslenska þjóðbúningsins í tilefni 1100 ára Íslandsbyggðar frá árinu 1974. Verkið verður lánað á yfirlitssýningu á verkum Rúríar sem opnar í Listasafni Íslands 3. mars n.k. 

 

 

 
fimmtudagur, 16. feb 16:50

Smelltu

Listamannaspjall 
19.02.2012


Sunnudaginn 19. febrúar kl. 15.00 mun Markús Þór Andrésson ræða við listakonuna Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur um verk hennar á sýningunni Teikn sem nú stendur yfir í Nýlistasafninu

Jóhanna Kristbjörg er annar tveggja sýnenda ásamt Myriam Bat-Yosef. Jóhanna hefur lagt innra rými safnsins undir verk sín sem samanstanda af málverkum, myndbands- og hljóðverkum auk ummerkja eftir gjörning sem hún flutti á opnun sýningarinnar. Jóhanna útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2008 og hefur verið ötul í sýningarhaldi síðan. Hún hlaut nýlega viðurkenningu og styrk frá Listasjóði Dungal sem árlega styrkir unga og efnilega myndlistarmenn.

Markús Þór Andrésson er höfundur texta í sýningarskrá sem gefin var út í tielfni sýningarinnar. Markús er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri með M.A. gráðu í sýningarstjórnun frá Bard Collage í New York. Hann hefur komið að margvíslegum myndlistarverkefnum bæði hér heima og erlendis auk skrifa, dagskrár- og heimildarmyndagerðar um samtímamyndlist.

Spjallið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Sýningarskrá er til sölu í safninu og kostar 500 krónur.

Sýningin Teikn er styrkt af Hlaðvarpanum og stendur yfir til 11. mars.

Sýningarstjóri er Gunnhildur Hauksdóttir.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna á hér

 
fimmtudagur, 9. feb 13:16

Smelltu

SAFNANÓTT
10.02.2012

Í Nýlistasafninu gefst gestum kostur á að skoða sýninguna Teikn með verkum eftir Myriam Bat-Yosef og Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur. Þrátt fyrir breitt aldursbil á milli þessara tveggja  listakvenna er að finna svipaðan streng í verkum þeirra þar sem þær umbreyta teiknum úr lífi sínu í sterkt og næstum yfirskilvitlegt myndmál. Þær sýna báðar málverk, myndbönd og gjörninga. Í safninu verður heitt á könnunni, opið frá kl. 19.00-24.00. 

Sjá nánar um sýninguna hér