Laugardaginn 31. mars er von á góðum gestum á Fjölskylduskemmtun í Nýlistasafninu. Boðið verður upp á andlitsmálun allan daginn, en kl. 15.00 verður Ingó töframaður með magnaða töfrasýningu fyrir alla fjölskylduna.
Fjölskylduskemmtun í Nýlistasafninu er verk eftir Curver Thoroddsen, en sýningin stendur til 29. apríl og er gerð í samvinnu við Skátaland.is, Reykjavíkurborg og KSÍ.
Nýlistasafnið er opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 12.00-17.00
Sjá nánari upplýsingar hér
![]()
OPNUN
24.03.2012
Curver Thoroddsen
Laugardaginn 24. mars hefst Fjölskylduskemmtun í Nýlistasafninu
Næstu sex vikur tekur safnið á sig mynd leiksvæðis ætlað börnum og fjölskyldum. Allskonar leiktæki og þrautir verða á svæðinu auk heljarinnar hoppukastala. Um allar helgar sjá skátafélög um sölu á kandífloss, pylsum og blöðrum en einnig verður boðið upp á ýmiskonar skemmtiatriði fyrir yngstu kynslóðina. Leiksvæðið verður auk þess opið virka daga nema mánudaga og eru allir leikskólar, börn og foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur, vinir og kunningjar hjartanlega velkomnir til að leika sér og njóta aðstöðunnar, sem hentar t.d. einstaklega vel fyrir svokölluð "play-date" og hverskonar húllumhæ.
Mikið verður um að vera á opnunardaginn milli 15:00 og 18:00 og eru allir velkomnir. Vinsælasta barnahljómsveit landsins, Pollapönk, stígur á svið kl. 16:00, Skoppa og Skrítla koma í heimsókn um kl. 17:00 og boðið verður uppá andlitsmálun. Skátarnir verða viðstaddir og selja einsog áður sagði kandífloss, ljúfengar pylsur og blöðrur.
Fjölskylduskemmtun í Nýlistasafninu stendur til 29. apríl og er gerð í samvinnu við Skátaland.is, Reykjavíkurborg og KSÍ.
Sjá nánari upplýsingar hér
Safnið opnar aftur laugardaginn 24. mars með sýningu Curvers Thoroddsen.
TEIKN
29.01-11.03.2012
Sýningunni Teikn, með verkum þeirra Myriam Bat-Yosef og Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur, lýkur nú á sunnudaginn 11. mars 2012.
Verk Myriam og Jóhönnu voru valin saman á sýninguna vegna þess hve svipaðan streng er að finna í listsköpun þeirra þrátt fyrir hið breiða aldursbil sem á milli þeirra er. Báðar hafa þær notað málverk, myndbönd og gjörninga til að miðla tengslum þess sem unnt er að skynja en erfitt getur reynst að tjá með orðum. Þær hafa þróað myndmál sem í formum og litum mynda sterka táknrænu og fær á sig trúarlegt, jafnvel yfirskilvitlegt yfirbragð. Ríkjandi í verkum þeirra beggja er áhersla á frjálst flæði hugmynda sem rekja mætti til symbólisma og súrrelisma.
Sýningin er styrkt af Hlaðvarpanum og Reykjavíkurborg. Auk þess leggur Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sýningunni lið.
Sjá nánar um sýninguna hér
![]()
Mynd af gjörningi Hrafnhildar Arnardóttur Lonely
NÝLISTASAFNIÐ Á ARMORY
08.03.-11.03.2012
Dagana 8-11 mars mun Nýlistasafnið (Nýló) taka þátt í Armory listkaupstefnunni í New York, sem nú er haldin í 18 skipti. Á Armory sýna alþjóðleg gallerí og stofnanir og er sýningin yfirgripsmikill vettvangur í samtímalistum. Nýló deilir bás með Overgaden, leiðandi sýningarrými frá Kaupmannahöfn. Á Armory mun Nýlistasafnið veita innsýn í safneign sína og viðburði frá 34 ára sögu safnsins og verður rit safnsins kynnt sérstaklega.
Í básnum verður áhersla á gjörninga og fjölmargir listamenn ljá honum krafta sína bæði með flutningi gjörninga og framsetningu verka. Á vegum Nýló verða Hrafnhildur Arnardóttir a.k.a. Shoplifter og Curver Thoroddsen með daglegar uppákomur í rýminu.
Sjá nánari upplýsingar hér .