fimmtudagur, 19. júl 11:11

Smelltu
Níels Hafstein
Íhvolf  2011
Íhvolfir plastspeglar, ljósgræn steypt gleregg


OPNUN

28.09 2012

Laugardaginn 28. júlí kl.14:00 verður opnuð í Nýlistasafninu sýningin Viðkvæmur farangur II eftir Níels Hafstein.
Gestur: Ragnheiður Ragnarsdóttir

Safneignarsýning Nýlistasafnsins þetta árið er tileinkuð verkum eftir Níels Hafstein, aðalstofnanda safnsins, formanns stjórnar til margra ára og heiðursfélaga í félagi Nýlistarsafnsins. Á sýningunni eru ný verk í bland við eldri og fylgir henni gjöf verka til safnsins frá listamanninum. Nýlistasafnið á tuttugu og tvö verk eftir Níels unnin í ýmsa miðla, en við þetta tækifæri gefur hann níu verk og eru átta þeirra kynnt sérstaklega. Sýningunni er ætlað að veita innsýn í listsköpun Níelsar á breiðum grundvelli en í ferli hans er að finna fínlegan þráð í myndhugsun, allt frá efnismiklum skúlptúrum til örsmárra verka eða stemminga.

Varla er hægt að aðskilja listköpun Níelsar og það mikla framlag sem hann hefur átt í því vistkerfi sem íslenskur myndlistarheimur er. Hann hefur stofnað og komið á legg tveimur söfnum, Nýlistasafninu árið 1978 sem var stofnað til þess að varðveita og stuðla að rannsóknum á samtímamyndlist og svo Safnasafninu á Svalbarðaströnd árið 1995 sem helgar sig utangarðs- og alþýðulist.

Verkin á sýningunni spanna tæplega tvo áratugi í listsköpun Níelsar en elsta verkið, Ný Fjarvídd er í eigu Nýlistasafnsins og er frá árinu 1986 og sex þau yngstu frá þessu ári. Þrjú verk eru fengin að láni, tvö koma úr safneign annara safna en restin er frá listamanninum sjálfum. Níels hefur einnig valið eitt verk úr eigu safnsins eftir Ragnheiði Ragnarsdóttur myndlistarmann og arkítekt, ber það titilinn Blátt áfram og er frá árinu 1993, en það var sama ár og hún gaf það í kjölfar samsýningar ungra listamanna í Nýlistasafninu.

Í eldri verkum Níelsar er aðalviðfangsefni að tæma þá möguleika sem felast innan strangs ramma eða formkerfis en jafnframt gaf hann sér ákveðið frelsi í stærðfræðilegum strangleik, t.d. með því að bæta við tilfinningalegum þáttum. Í nýrri verkum er áberandi leikur með samsetningu tilbúinna hluta og óvæntra efnistaka. Verkin bera með sér vissan þokka sem birtist við leit að nýjum miðum í efnisvali og þeirri spennu sem fylgir því að uppgötva eitthvað nýtt á vinnustofunni; hrein sköpunargleði með vísindarlegu ívafi.

Það er stjórn Nýlistasafnsins sérstök ánægja og heiður að bjóða gestum safnsins innsýn í listsköpun Níelsar Hafstein með þessari sýningu. Dr. Hlynur Helgason ritar texta sem fylgir sýningunni. Hann mun vera með spjall um sýninguna í safninu og mun auk þess halda erindi um feril Níelsar í fyrirlestrasal Aríonbanka í höfuðstöðvum bankans við Borgartún 19. Tímasetningar verða nánar auglýstar síðar.

Sýningartími 29.07.-09.09 2012

Sjá nánari upplýsingar hér



 
miðvikudagur, 11. júl 13:55
Smelltu

Útgáfuhóf og kynning á ritverki eftir Geirþrúði Finnbogadóttur Hjörvar

Þriðjudaginn 17. júlí 2012 – klukkan 20:00


Mindgames
er ferhyrnd saga sem fjallar um blæbrigði í samspili sjálfstæðis og samvirkni. Bókin er byggð upp í fjórum einingum sem mynda eina taktfasta heild í 13 köflum. Söguþráðurinn byggir á ævisögulegum staðreyndum og lýsingum á tenglsanetum milli hugtaka jafnt sem persóna, frekar en að skapa mynd af ævi einstakra manna.  Í söguna er sóttur innblástur frá tónlistarmanni (John Lennon), fræðimanni (Henri Lefebvre), skáldi (Halldór Laxness) og siðspiltum einræðisherra Rómar (Caligula). Verkið er unnið með það fyrir augum að lesandi geti notið kaldhæðnis stílbrigða sjálfmenntaðra sérfræðinga (fanatics) sem ávallt hafa gert týndan fróðleik um staðreyndir heimsins að umfjöllunarefni sínu á víxl við hefðbundnari tilraunir til að skrásetja heiminn.
Höfundurinn mun gera nánar grein fyrir þeim hugmyndum sem búa að baki ritverksins auk þess sem valdir kaflar verða lesnir upp.

Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar er fædd í Reykjavík 1977. Hún hlaut MFA gráðu frá Malmö Art Academy í Svíþjóð árið 2005 og BFA frá Listaháskóla Íslands árið 2002. Hún sótti Rijksakademie í Amsterdam, Hollandi 2007-2008. Geirþrúður vinnur í þrívíða miðla, texta, gjörninga, málverk og innsetningar. Í nýlegri verkum byggir hún á sagnfræðilegri endurskoðun og geometrískum tillögum. Verk sem hún vinnur að um þessar mundir er meðal annars: The Grand Tour, sem er samstarfsverkefni Civic Virtue í samstarfi við W139 í Amsterdam.

www.geirthrudur.com
www.civicvirtue.info

Mindgames verður á kynningarverði við þetta tækifæri; 1200 kr.
Ritið mun svo vera til sölu í versluninni Útúrdúr við Hverfisgötu, og í fáeinum völdum verslunum í Evrópu.

Ritið er gefið út í maí 2012 í samstarfi við Werkplaats Typografie.
Hönnun er í samstarfi við Noah Venezia, Werkplaats Typographie, Arnhem og ArtEZ Institute of the Arts.
Ritið er á ensku.
Kilja 152 bls.
Upplag: 500
Stærð: 12 x 17 cm

 
miðvikudagur, 11. júl 13:37

Smelltu

VOLUMES FOR SOUND

Melissa Dubbin & Aaron S. Davidson
SÍÐASTA SÝNINGARHELGI


Sýningunni Volumes for Sound eftir bandarísku listamennina Melissa Dubbin & Aaron S. Davidson, lýkur nú á sunnudaginn 15.júlí 2012.

Verk Dubbin & Davidson hverfast um að koma óefniskenndum fyrirbærum eins og hljóði, ljósi, reyk í ákveðið form. Á sýningunni í Nýlistasafninu sýna þau ljósmyndir, myndbandsverk og skúlptúra úr viði sem gegna tvenns konar hlutverki, bæði sem form sem mynda innsetningu í rými og jafnframt sem hátalarar sem notaðir verða til að flytja hljóðverk.

Sjá nánari upplýsingar hér.

Sýninging er hluti af Sjálfstæðu Fólki / (I)ndependent People sem er myndlistardagskrá Listahátíðar í Reykjavík.
Listrænn stjórnandi er Jonatan Habib Engqvist.