Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

Á miðju ári 2007 ákvað stjórn Nýlistasafnsins að 30 ára afmæli þess, árið 2008, yrði best fagnað með því að staldra við og huga að endurskoðun á starfssemi safnsins. Jafnt sem skilgreiningu á innviðum Nýlistasafnsins, sögu þess og gildi fyrir íslenska myndlist í fortíð, nútíð og framtíð. Hægt var á almennu sýningahaldi en orku stjórnarliða, félagsmanna og samstarfsfólks í faginu  beint að skráningu, umönnun og kynningu á safneign og skjalasafni Nýlistasafnsins. Með það að leiðarljósi að koma safnkostinum í örugga geymslu til frambúðar í samvinnu við Listasafn Íslands. Stjórn Nýlistasafnsins gerði til þess áætlun til eins árs en skráningarferlið hófst formlega í janúar 2008.

Safneignarvinnna 2008

Með styrkveitingu frá Safnaráði, mikilli sjálboðaliðsvinnu og samstarfi við Listasafn Íslands var lagt af stað í verkefnið.  Í janúar var byrjað á  flokkunar og skráningarvinnu. Safneignin var sett upp í sölum Nýlistasafnsins og fyrrum geymslu breytt í ljósmynda og alhliða vinnurými. Hillusamsetningar voru settar upp sem hentuðu eigninni og fóru nokkrar vikur í að  grófflokka safnkostinn eftir miðlum og raða verkunum upp til auðveldrar yfirfærslu. Komu þá strax í ljós mikið af óskraðum verkum sem stækka safnkostinn til muna. Ólafur Ingi Jónsson forvörður Listasafn Íslands aðstoðaði Nýlistasafnið frá  byrjun og fór yfir hvernig verkum er raðað og staflað upp til að forðast skemmdir. Einnig ráðlagði hann stjórnarliðum varðandi meðhöndlun listaverkanna,  ljósmyndun þeirra, pökkun ofl. Farið var yfir skráningarkerfi safnsins: Virtual Collection. Forritið  var uppfært í viðhafnarútgáfu sem flest söfn landsins nota.  Ljósmyndatæki-og tól hefur Nýlistasafnið fengið að láni hjá Listasafni Íslands svo að ljósmyndun safneignarinnar sé eins faglega unnin og mögulegt er. Þrír nemendur frá Hákskóla Íslands og LHÍ þær Bryndís Björnsdóttir (BA-listfræði og BA-myndlist), Elín Þórhallsdóttir(BA-listfræði) og Hildur Rut Halblaub (BA-listfræði) hafa unnið við skráningi eignarinnar frá því á vordögum 2008.
Byrjað var að skrá verk eftir listamanninn Dieter Roth þar sem hann á langflest verk í eigninni eða um 500 talsins.  Því næst var farið í forskráningu á bókverkaeign safnins og  annarra tvívíðra verka. Vinna við þrívíð verk hófst í enda nóvember.  Veggspjalda-eign safnsins var skráð og frágengin af nemendum á öðru ári í grafískri hönnun LHÍ frá 27. ágúst  til 5. september undir handleiðslu prófessors skólans; Guðmunds Odds Magnússonar og Tinnu Guðmundsdóttur.


Áætluð lok skráningar safneignarinnar erum mitt ár 2009 og í framhaldi af því mun stjórn Nýlistasafnsins setja fram nýja og markvissa söfnunarstefnu í takt við breyttar aðstæður. Safnkosturinn verður metinn og út frá þeim forsendum gerð áætlun um að bæta við safneignina. Er sú mótunarvinna nú þegar hafin í skráningarferlinu og mun halda áfram að þróast.  Stjórnin mun leggja fram drög að nýrri söfnunarstefnu á aðalfundi 2009 til yfirferðar fyrir félagsmenn.

Smelltu

 


analoji fen bilgisi