Nýlistasafnið Í Reykjavík

SVIÐIÐ – RANNSÓKNARSTOFAN – AKADEMÍAN

Smelltu

Eitt af verkefnum árisins 2009 er svokallað Svið [akademía - rannsóknarstaður].Sviðið er hugsað sem staður krítískrar, lýðræðislegrar umræðu; vettvangur til að gagnrýna, afbyggja og endurskoða hugmyndir og umhverfi skapandi hugsunar í samhengi við Ísland samtímans.


Markmið verkefnisins eru:

  • Nýlistasafnið verði tilraunavettvangur fyrir myndlist en með breyttum áherslum.  Áherslan verður lögð á þá þekkingu sem liggur í skapandi hugsun og miðlun þeirrar þekkingar.
  • Nýlistasafnið axli þá fagurfræðilegu ábyrgð sem fylgir því að miðla samtímamyndlist til almennings.
  • Sviðið / Rannsóknarstofan verði staður til að enduruppgvötva sögu Nýlistasafnsins og endurskoða stöðu þess í samtímanum.
  • Akademínan verði staður opinnar lýðræðislegrar umræðu, staður til að gagrýna, afbyggja og endurbyggja fagurfræðilegar hugmyndir í samtímanum. 
  • Nýlistasafnið verði vettvangur skoðanaskipta, bæði sem staður til að tjá skoðanir, mynda sér skoðun og endurskoða hlutina útfrá fagurfræðilegum/skapandi forsendum.


Á Sviðinu munu ólíkir viðburðir eiga sér stað á árinu. Margir þeirra eru þverfaglegir og mótast yfir tímabilið. Meðal dagskrárliða á vormánuðum má nefna dagskrána Sýna og Sjá, þar sem rannsókn er gerð á sögu óhefðbundinnar og óháðrar tónlistarútgáfu hér á landi, með áherslu á tíunda áratuginn. Í mars verður á dagskrá fundarröðin Á hverfanda hveli þar sem Leiklistarsamband Íslands tekur á stöðu og ábyrgð sviðslista í samtímanum.
Hugmyndin er sú að safnið verði þannig tilraunavettvangur fyrir umræðu og orðræðu myndlistar með nokkuð breyttum áherslum frá því sem áður hefur tíðkast.  Með þessu móti verður safneignin, myndlistin, rannsóknarverkefnin og umsýslan á mörkum hvors annars og á sífelldri og iðandi hreyfingu. Áherslan er lögð á þá þekkingu sem liggur í skapandi hugsun og fagurfræðilegum forsendum, möguleikum á miðlun og áhrifum þeirrar þekkingar á almenna orðræðu í samfélaginu. Með þessu leitast Nýlistasafnið við að axla þá ábyrgð sem fylgir því að miðla og skapa orðræðu um samtímalist.

Þessir viðburðir eru auglýstir á síðu safnsins  og get áhugasamir skráð sig á póstlista með því að senda póst á nylo@nylo.is eða skrá sig á facebook síðu safnsins og fylgjast þannig með dagskrá safnsins frá degi til dags.


analoji fen bilgisi