Nýlistasafnið Í Reykjavík

Sýna og sjá fer í frí fram í ágúst. Dagsetningar verða auglýstar síðar. Von er á góðum gestum td. Andhéra, INRI, Yukatan, Kidda Kanínu, Stilluppsteypu og Rosebud.  

Smelltu

SÝNA OG SJÁ

Nýlistasafnið mun á næstu tveim mánuðum bjóða íslenskum óháðum tónlistarmönnum að koma í safnið og spjalla um feril sinn og setja tónlistarsköpun sína á fóninn. Þeir munu jafnframt skoða tilfallandi efni eins og plaköt, dreifimiða, hljómsveitaboli og fleira sem tengist tónlistarlífinu. Megin áhersla verður á eigin framleiðslu, sjálfstæða útgáfu og félagsskapinn í kringum listamannarekinn tónlistarheim á Íslandi. Einnig verður fókus á "litlu böndin" og hugsjónir. Við viljum gera þeim hátt undir höfði og rannsaka sérstaklega tímabilið 1990 til 1997, til eða frá.

Forsendur fyrir Sýna og Sjá dagskrá Nýlistasafnsins eru tengsl óháðra hljómsveita við safnið gegnum 30 ára sögu þess. Sveitir á borð við Bruna BB, Inferno 5, Oxsmá, Reptilicus og INRI nýttu sér Nýlistasafnið til tónleikahalds og gerðu þannig safnið að áhugaverðum tónlistarvettvangi.

Verkefnið er séð sem ákveðin heimildarölfun og rannsóknarverkefni. Ramminn utan um atburðina er hugsaður sem óformlegur og einfaldur; í höndum listamannanna sjálfra. Verkefnið tengist einnig hugsjóninni um Nýlistasafnið sem listamannarekið og lýðræðislegt fyrirbæri. Um 250 listamenn mynda Félag um Nýlistasafn; samfélag sem stendur vörð um starfsemina og vettvanginn og að halda starfseminni lifandi. Á þessu ári og því seinasta hefur safnið verið að vinna í stórri safneign sinni; sem er öll fengin að gjöf frá félagsmönnum og listamönnum sem hafa starfað með stofnuninni og víðtæku skjalasafni í tengslum við það. Markmiðið er að endurskoða og endurnýja hlutverk safnsins alls. Sýningar og tengdir viðburðir hafa átt sér stað í þessu samhengi, innan þess ramma. Sú starfsemi blandast þeirri vinnu og er Sýna og Sjá hluti af því enda hefur safnið verið vettvangur tónlistar í gegnum þrjátíu ára sögu þess.

Þær hljómsveitir og tónlistarspekúlantar sem fram koma í apríl og maí eru: Yúkatan, Arnar Eggert Thoroddssen um íslenska dauðarokkið, Saktmóðigur, Á túr, Andhéri og Curver. Einnig verða sýndar heimildarmyndir ss. um Uxa hátíðina ofl. Frekari upplýsingar má finna á nylo.is

Smelltu

Smelltu


analoji fen bilgisi