Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

NÝLÓ 2009 

Dagskrá Nýlistasafnsins árið 2009 verður með óhefðbundnu sniði, líkt og á síðastliðnu ári þegar liðin voru 30 ár frá stofnun safnsins. Á fyrri hluta ársins mun áframhaldandi vinna við endurskráningu safneignar og flokkun skjalasafns Nýlistasafnsins renna sitt skeið á enda og lýkur þeirri vinnu með útgáfu á sýningarsögu Nýlistasafnsins sem áætlað er að komi út á haustmánuðum 2009. Í lok febrúar fór skjalasafn Nýlistasafnsins til vörslu í Borgarskjalasafn Reykjavíkur og við það tilefni var undirritaður samstarfssamningur sem veitir öllum almenningi, sem og fræðimönnum, aðgang að skjölum safnsins til glöggvunar og rannsókna.

Á afmælisárinu voru stofnuð formlega tvö gagnasöfn tengd Arkífi Nýlistasafnsins; Heimildasafn um gjörninga og sögu þeirra hér á landi og Arkíf um listamannarekin rými á Íslandi. Áframhaldandi vinna við söfnun heimilda í þessi tvö gagnasöfn mun halda áfram á árinu 2009 með það að markmiði að þau vaxi og dafni innan Nýlistasafnsins til framtíðar. Sú vinna, sem fram fer við skráningu og gagnavinnslu í öllum fyrrnefndum verkefnum mun eiga sér fastan samastað og fara fram fyrir opnum tjöldum. Þannig myndast staður fyrir gesti safnsins til að enduruppgvötva 30 ára sögu Nýlistasafnsins og endurskoða stöðu þess sem listamannarekið safn í samtímanum.


Annað verkefni á árinu er svokallað Svið [akademía - rannsóknarstaður].Sviðið er hugsað sem staður krítískrar, lýðræðislegrar umræðu; vettvangur til að gagnrýna, afbyggja og endurskoða hugmyndir og umhverfi skapandi hugsunar í samhengi við Ísland samtímans.
Á Sviðinu munu ólíkir viðburðir eiga sér stað á árinu. Margir þeirra eru þverfaglegir og mótast yfir tímabilið. Meðal dagskrárliða á vormánuðum má nefna dagskrána Sýna og Sjá, þar sem rannsókn er gerð á sögu óhefðbundinnar og óháðrar tónlistarútgáfu hér á landi, með áherslu á tíunda áratuginn. Í mars verður á dagskrá fundarröðin Á hverfanda hveli þar sem Leiklistarsamband Íslands tekur á stöðu og ábyrgð sviðslista í samtímanum.
Hugmyndin er sú að safnið verði þannig tilraunavettvangur fyrir umræðu og orðræðu myndlistar með nokkuð breyttum áherslum frá því sem áður hefur tíðkast.  Með þessu móti verður safneignin, myndlistin, rannsóknarverkefnin og umsýslan á mörkum hvors annars og á sífelldri og iðandi hreyfingu. Áherslan er lögð á þá þekkingu sem liggur í skapandi hugsun og fagurfræðilegum forsendum, möguleikum á miðlun og áhrifum þeirrar þekkingar á almenna orðræðu í samfélaginu. Með þessu leitast Nýlistasafnið við að axla þá ábyrgð sem fylgir því að miðla og skapa orðræðu um samtímalist.


analoji fen bilgisi