|
|
|
|
|
|

NÝLISTASAFNIÐ Nýlistasafnið var stofnað árið 1978 og er sjálfseignarstofnun, rekin af samtökum listamanna sem nefnast Félag um Nýlistasafnið. Starfsemi þess hófst í 50m2 geymsluhúsnæði í Mjölnisholti, en árið 1979 flutti Nýlistasafnið í bakhús við Vatnsstíg 3b þar sem það var til húsa í 24 ár. Núverandi húsnæði Nýlistasafnsins er að Skúlagötu 28 26 en þangað flutti það árið 2010.
Nýló, eins og safnið er nefnt í daglegu tali, hefur þá sérstöðu að hafa ávallt verið rekið af myndlistarmönnum. Félagið var stofnað í upphafi árs 1978 af framsæknu myndlistarfólki, en kjarni þeirra hafði áður starfað innan SÚM-hópsins. Fyrsti formaður Nýló var Níels Hafstein, en hann og Magnús Pálsson voru aðalhvatamenn að stofnun safnsins. Stofnfélagar voru um tuttugu en í dag eru meðlimirnir um 300 og er aðild að félaginu opin öllu áhugafólki um samtímalist. Fimm manna stjórn skipuð til tveggja ára í senn sér um rekstur í samræmi við lög félagsins og ákvarðanir aðalfundar. Markmið Nýlistasafnsins eru: • að vera miðstöð nýrra strauma og tilrauna í myndlist. • að efla hugmyndafræðilega umræðu um samtímalist. • að vera vettvangur fyrir unga myndlistarmenn. • að gegna almennum skyldum listasafns. • að safna og varðveita listaverk eftir félaga safnsins. • að halda utan um og skrásetja sögu samtímalistar á Íslandi. • að styrkja stöðu sína sem helsta samtímalistastofnun landsins.
|