UPPSPRETTA
Drög að eflingu Nýlistasafnsins

Uppspretta eða Archive on The Run, er verkefni sem Nýlistasafnið fór á stað með árið 2009 sem hluta af innri vinnu safnsins. Markmið Uppsprettu er að móta framtíðarsýn safnsins og að fá stöðumat á hlutverki og möguleikum Nýlistasafnsins í kjölfar heildrænnar skráningar, endurmats starfseminnar og útgáfu sem átti sér stað í kringum 30 ára afmæli safnins 2008. Í mars á þessu ári var þátttakendum boðið til umræðufundar þar sem opnað var fyrir ólíkar áherslur og túlkanir á starfsemi Nýlistasafnsins og fortíð þess. Sýningarstjórar og fagfólk frá Norðurlöndum og Íslandi hafa heimsótt safnið og kynnt sér safneign og starfshætti þess og átt í samtölum við stjórn. Í vor var haldin málstofa í fjórum hlutum með þáttakendum verkefnisins, stjórn og völdum gestum í Listaháskóla Íslands þar sem hugmyndir um söfn og sýningarstaði voru reifaðar með Nýlistasafnið sem útgangspunkt. Verkefninu lýkur nú í haust 2012 með útgáfum.

Fjölmargir þáttakendur hafa komið að verkefninu auk stjórnar en meðal þeirra eru Bergsveinn Þórsson, Birta Guðjónsdóttir, Elena Tzotzi (SE), Huginn Þór Arason, Katrín Inga Jónsdóttir, Kim Einarsson (SE), Oddný Eir Ævarsdóttir, Tone Hansen (NO) ofl.

Í haust munu tvær útgáfur líta dagsins ljós.

Archive on the Run – Samansafn texta
. Rit sem samanstendur af verkum og textum eftir ýmsa fræðimenn, sýningarstjóra og myndlistarmenn sem komu að verkefninu sem þáttakendur í málstofu eða í aðdraganda verkefnisins. Útgáfunni er ætlað taka púlsinn með því að fá einstaklinga sem þekkja til safnsins til að skilgreina fyrir sér á gagnrýninn hátt möguleika, tækifæri eða hlutverk safnsins í dag útfrá stöðu sinni, vinnu og reynslu. Ritinu verður dreift til félagsmanna. Ritstjórn skipa, Ármann Agnarsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Gunndís Ýr Finnbogadóttir og
Unnar Örn Auðarsson. Umsjón útgáfu er í höndum Auðar Aðalsteinsdóttur en hönnun og uppsetning í höndum Ármanns Agnarssonar.

Archive on the Run - Catalogue Raisonné
. 20 binda innanhúsrit sem inniheldur myndir og upplýsingar um öll verk í safneign. Ritið fer ekki í dreifingu en verður aðgengilegt á safninu fyrir fræðimenn og áhugasama til að kynna sér safneignina nánar. Ein niðurstaða verkefnisins er að koma upp rannsóknaraðstöðu í Nýlistasafninu þar sem heimildasöfn og safneign verða gerð aðgengileg.
Uppsetning og hönnun Catalogue Raisonné hefur Þorleifur Gunnar Gíslason.





Myndir: Þorleifur Gunnar Gíslason

Uppspretta er styrkt af Norrænu Menningargáttinni.

 

 

 

NÝLISTASAFNIÐ 1978-2008

Smelltu
Áríð 2010 gaf Nýlistasafnið út bókina
Nýlistasafnið 1978-2008
.

Tilefni útgáfunnar var að fagna 30 ára afmæli safnsins, sem var 5. janúar 2008. Frá stofnun hefur Nýlistasafnið – Nýló verið mikilvægur þáttur í íslensku samfélagi og menningarumhverfi. Safnið er stofnað og rekið af listamönnum og hefur sinnt hlutverki sínu sem sýninga- og umræðuvettvangur með því að skipuleggja alþjóðlega listviðburði og tengjast ýmsum menningarstofnunum innanlands sem utan.

Tilgangurinn með ritinu er að ná utan um sýningasögu safnsins og vera heimild um merka stofnun í myndlist samtímans. Með þessari útgáfu er skjala- og gagnasafn safnsins opnað og þannig er áhugasömum gefin innsýn í hvernig safnið hefur kynnt sig og starfsemi sína í gegnum tíðina. Í ritinu er að finna grunnupplýsingar um starfsemi og hlutverk safnsins og miðast uppsetning þess fyrst og fremst við að auðvelt sé að leita upplýsinga og hafa ánægju af um leið.

Ritið er mikilvægt uppflettirit fyrir alla þá hafa áhuga á samtímamyndlist, grafískri hönnun, menningar- og safnafræði.

Ritstjórn: Tinna Guðmundsdóttir
Hönnun: Ármann Agnarsson

Nýlistasafnið 1978-2008 fæst í Nýlistasafninu, Útúrdúr, Eymundsson og Bókabúð Máls og Menningar. 

Einnig er hægt að panta eintak með því að senda tölvupóst á [email protected]

Smelltu

Smelltu

Smelltu

{mosi
mage}