|
LÆSI
Áslaug Thorlacius, Birgir Andrésson, Dieter Roth, Douwe Jan Bakker, Finnbogi Pétursson, Franz Graf, Friðrik Þór Friðriksson, Hildur Hákonardóttir, G.Erlu, Gunndís Ýr Finnbogadóttir, Hlynur Hallsson, Jan Voss, Kristján Guðmundsson, Níels Hafstein, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Rúna Þorkelsdóttir, Rúrí og Steingrímur Eyfjörð.
Það er venja að bækur innihaldi texta, við göngum að því vísu í flestum tilfellum. Það er að sama skapi venja að horfa á myndir út frá formskynjun og hluti út frá rýmiskennd. Allt getur þetta skarast þannig að bækur höfði til formskynjunar eða rýmiskenndar, en myndir og hlutir við texta. Hefur það löngum verið glíma listamanna að finna slíka núningsfleti, brjóta mörkin upp og endurskoða nálgun okkar við hluti, myndir og texta. Sýningarstjóri er Jón B.K. Ransu, en hann hefur á undanförnum árum tyllt sér beggja megin borðs sem myndlistarmaður og skríbent. Hann skrifaði myndlistargagnrýni fyrir Morgunblaðið á árunum 2002 – 2010 og hefur einnig skrifað um myndlist í fagtímarit, sýningaskrár og bækur. Ransu hefur áður tekið að sér sýningarstjórn fyrir Nýlistasafnið, en það var árið 2005 vegna sýningarinnar „Tvívíddvídd“. Þá hefur hann einnig komið að gerð sýninga fyrir Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Gallerí 100° og Art Radionica Lazareti í Króatíu.
|
|