14.08.2024

Fréttir

Nýlistasafnið leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum safneignarfulltrúa, sem gegnir fyrst og fremst því hlutverki að hlúa einstakri safneign Nýló, sinna skráningarstarfi og öðrum safneignarverkefnum. 

Nýlistasafnið

Nýlistasafnið, eða Nýló eins og safnið er nefnt í daglegu tali, er eitt elsta listamannarekna safn og sýningarrými í Evrópu. Frá stofnun hefur safnið verið einn helsti vettvangur fyrir framsækna samtímalist á Íslandi, og varðveitir Nýló einstakt safn verka eftir íslenska og alþjóðlega listamenn frá sjötta áratug síðustu aldar og fram til dagsins í dag. Safnið heldur utan um þrjú megin heimildasöfn. Nýló er grunnvarðveislusafn á frumheimildum um listamannarekin frumkvæði á Íslandi og viðheldur og safnar heimildum um gjörningalist á Íslandi. Á hverju ári stendur safnið fyrir öflugri sýningardagskrá, auk þess að vera vettvangur ýmissa viðburða í náinni samvinnu við listamenn, sýningarstjóra, fræðimenn og almenning. Nýlistasafnið er listamannarekið safn með viðurkenningu safnaráðs og starfar samkvæmt safnalögum. Safnið er meðlimur af ICOM, alþjóðlegum samtökum safna og fylgir siðareglum ICOM.

Safneignarfulltrúi

Safneignarfulltrúi Nýlistasafnsins hefur umsjón með, og ber ábyrgð á allri umsýslu í kringum safneign og heimildasöfn Nýlistasafnsins. Safneignarfulltrúi vinnur náið með safnstjóra og framkvæmdastjóra, veitir stjórn ráðgjöf um ný aðföng og á í reglulegum samskiptum við listamenn, fræðimenn og annað fagfólk sem tengjast verkefnum safneignar. Meðal verkefna safneignarfulltrúa eru til að mynda:

  • Ráðgjöf um og eftirfylgni stefnu safneignar í samstarfi við safnstjóra og stjórn
  • Umsjón með skráningu, frágangi og varðveislu listaverka
  • Umsjón með varðveislurými safnsins og eftirlit með aðbúnaði
  • Styrkumsóknir fyrir verkefni sem lúta að safneign
  • Vinnsla lánssamninga og umsjón með flutningi verka
  • Rannsóknarvinna tengd safnkosti og heimildasöfnum
  • Fræðsla og miðlun safnkosts, sérstaklega móttaka fræðimanna og skólahópa

Starfsumhverfi

Starfslið Nýló er fámennt og vinnur þétt saman í skapandi en erilsömu umhverfi. Áhersla er lögð á sveigjanleika, jákvætt viðhorf, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Í safninu er enginn dagur eins og starfslið og stjórn leggjast á eitt við að sinna aðkallandi verkefnum. Við leitum því að einstaklingi sem getur stigið út fyrir sitt starfssvið ef þurfa þykir. Búast má við breytilegum vinnutíma á milli verkefna, en tími safneignarfulltrúa skiptist á milli Marshallhússins, þar sem skrifstofur og sýningarsalur eru til húsa, og Völvufells í Breiðholti, þar sem safneignargeymslur eru staðsettar og því er kostur ef viðkomandi hefur bíl til umráða.

Við leitum að einstakling sem:

  • er lipur í samskiptum, ræðu og riti
  • hefur reynslu af skráningarvinnu, þekkingu á meðhöndlun listaverka og getur metið hvenær þörf er á forverði/utanaðkomandi sérfræðingi
  • býr yfir skipulagshæfni og sveigjanleika til að mæta fjölbreyttum og ólíkum verkefnum á álagstímum
  • Er framkvæmdaglaður, sýnir útsjónarsemi og frumkvæði í starfi og vinnur sjálfstætt
  • hefur umtalsverða þekkingu á íslenskri samtímamyndlist
  • Býr að reynslu og/eða menntun sem reynist vel í starfi
  • Hefur grunnþekkingu á íslensku, en skráning safneignar er að mestu á íslensku.

Kostur er ef viðkomandi hefur áhuga á miðlun og undirbúningi sýninga, þar sem safneign tvinnast oft inn í sýningarverkefni safnsins.

Umsóknarfrestur

Tekið er við umsóknum til og með 4. september næstkomandi. Hæfustu umsækjendum verður boðið starfsviðtal. Viðtölin fara fram jafnóðum, og því við hvetjum áhugasama um að senda umsókn sem fyrst. Ekki verður tekin endanleg ákvörðun um ráðningu fyrr en að fresti liðnum. Um er að ræða 50% stöðu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. september 2024 eða sem fyrst eftir það.

Umsókn skal innihalda kynningarbréf (1 bls) og ferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur. 

Umsóknir merktar “Safneignarfulltrúi_umsókn” sendist á nylo(hjá)nylo.is. Fyrirspurnir sendist á Sunnu Ástþórsdóttur, safnstjóra Nýlistasafnsins, sunna(hjá)nylo.is