Lestrarfélag Nýló: Consideration (As an Antidote to Critique)
Jóhannes Dagsson mun leiða næsta lestrarkvöld, fimmtudaginn 2. Mars kl. 20:30 í húsakynnum Nýló í Marshallhúsinu. Anna Líndal verður varða. Jóhannes hefur valið textann Consideration (As an Antidote to Critique) eftir Karen Schiff. Textinn fjallar um gagnrýni og hugsun, hvernig mismunandi hugmyndir og skilgreiningar eru notaðar í umræðum og greining hvernig við lærum og kennum listir. Textinn er úr bókinni Beyond Critique: Contemporary Art in Theory, Practice, and Instruction (2017) eftir sama höfund. Samtalið fer fram á íslensku.
Jóhannes Dagsson er heimspekingur og myndlistarmaður. Hann lauk doktorsprófi í heimspeki frá University of Calgary árið 2012. Rannsóknarsvið Jóhannesar liggur á mörkum hugspeki, málspeki og fagurfræði. Í rannsóknum sínum fæst hann við spurningar um merkingu og skynjun í samhengi listaverksins. Þessar rannsóknir nýtir Jóhannes í kennslu, fræðilegri útgáfu og í myndlist sinni.
Smellið hér til að lesa textann.