26.09.2024

Viðburðir

Listamannaspjall: Helga Páley og Jóhannes Dagsson

Verið hjartanlega velkomin á listamannaspjall með Helgu Páley og Jóhannesi Dagssyni sem taka þátt í sýningunni Einhver málverk.

Einhver málverk spannar verk fjögurra málara; Boaz Yosef Friedman, Helgu Páleyjar, Jóhannesar Dagssonar og Sara Rossi. Með einstaka undantekningum, hefur hver og einn þessara listamanna vinnu sína út frá efni sem þau hafa safnað að sér þó það sé ólíkt í eðli sínu og útkoman enn ólíkari. Upphafspunktur þeirra, litur, sniðmát, mælikvarði og rými birtast sem viðbrögð við þessu fundna efni.

Helga Páley Friðþjófsdóttir (f. 1987) býr og starfar í Reykjavík, hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2011. Hún var hluti af Kunstschlager hópnum í nokkur ár og tók þátt í að reka Gallerí við Rauðarárstíg 1 og síðar í Listasafni Reykjavíkur. Síðast liðin ár hefur Helga sínt á ýmsum stöðum bæði á Íslandi sem og erlendis, þar á meðal í Listasafni Reykjanesbæjar, Safnarsafninu og Gallery Huuto í Helsinki. Helga vinnur aðallega með málverk og teikningu og sækir gjarnan innblástur í hversdaginn og náttúruna.

Jóhannes Dagsson (f. 1975) er heimspekingur og myndlistarmaður sem býr og starfar í Reykjavík.. Hann lauk doktorsprófi í heimspeki frá University of Calgary. Rannsóknarsvið Jóhannesar liggur á mörkum hugspeki, málspeki og fagurfræði. Í rannsóknum sínum fæst hann við spurningar um merkingu og skynjun í samhengi listaverksins. Þessar rannsóknir nýtir Jóhannes í kennslu, fræðilegri útgáfu og í myndlist sinni. Jóhannes hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.